Vísir Sunnudagsblað - 24.12.1939, Blaðsíða 51
VlSIR
51
Það er gaman
að búa til teppi
úr tuskum
og það er sérstaklega gaman
þegar atliugað er, að þau eru
búin til úr engu, þ. e. efni, sem
annars hefði yerið fleygt.
Þér vitið það~ kannske, að
þúsundir Japana lifa á þvi að
búa til tuskuteppi. Það er engin
list að búa þau til, en góður
smekkur er aðalskilyrðið. Tepp-
in eru fljótunnin og reyna ekki
um of á þolinmæðina. Og í
hverju húsi er einhver blettur,
sem maður gæti hugsað sér að
á væri höfð smáteppi. Og ef þér
hafið ekki efni á að kaupa yður
teppi, þá ættuð þér að taka
tuskuteppin til athugunar. —
Fyrst er að athuga allar skúff-
ur, hvort ekki leynist þar ónýtir
sokkar eða undirfatnaður og af-
gangar. — Alt er hægt að nota
— baðmull, ull og silki. Einlit
efni eru best til þessa fallin og
best er að hafa þau hvorki of
þunn né of þykk, heldur þar á
milli •— eitthvað svipað og
þykt á baðmullarefni. — Siðan
klippið þér alt efnið i mjóar
ræmur — ca. 2 cm. á breidd —
og eins langar og hægt er að
hafa þær. Best lengd fæst með
því að klippa í hring. — Þá er
best að „slá upp“ eins mörgum
Iykkjnm og breiddin á að vera
— og heklið síðan alt með
venjulegum fastamöskvum.
Ágætt er að nota gamla silki-
soklm i þessi teppi og gerir
ekkert til þó lykkjuföli séu á
J>eim, «• Teppi úr þessu eru
auðvitað ekki eins þykk og þau
sem búin eru til úr vefnaðar-
vöruafgöngum, en þau eru auð-
veldari viðureignar. Það er
ágætt að nota þau til hlífðar
góðum teppum, á stöðum, þar
sem mikið er gengið um. —
Gerfisilkinærföt eru auðvitað
ágæt til þessa og svo fæst svo
mikið efni úr hverju fati t. d.
náttkjólunum.
Hagnýtið yður gömlu silki-
sokkana og búið til smáteppi
eða mottur í baðherbergi, eld-
hús eða barnaherbergi. Það er
ódýrt og allra auðveldasta
vinna.
Gömul silki-nærföt, sokka og
aðrar tuskur má lika nota i ofin
teppi, en það útheimtir auðvitað
vefstól.
£------------
Jóhanna 'lnglmundar Kirkjuhvoli:
Bandsnyrting.
Ein mesta prýði hverrar
ungrar stúlku er fögur og vel
snyrt hönd. Það er þess vegna
nauðsynlegt að gæta handa
sinna, verja þær fyrir skaðleg-
um áhrifum og halda þeim í
sem bestu horfi.
Við skulum fyrst athuga
nöglina. Það er ekki gott að
sverfa eða klíppa neglur of ná-
lægt hörundinu; séu þær sorfn-
ar of langt, þá verða þær veik-
ar fyrir og hættir við að brotna
eða flagna upp að framan, og
þaö er bteöi óþægUegt og Ijótt,
Lengd naglarinnar á að sjást
frá fingurgómunum, en ekki að
sýnast löng með því að sverfa
hana út við hörundið. — Þið
skuluð lika athuga það, að nögl-
in þarf að „anda“ eins og aðrir
hlutar líkamans, og þess vegna
má ekki lakka Iiana upp við
rótina. Ef lakkið snertir nagla-
rótina, þá getur nöglin eyðilagst
vegna bólgu og sjúkdóma, sem
hlaupa í rótina.
Nú er það lika komið í tísku,
að hafa „mána“ og það útilok-
ar, að neglurnar séu lakkaðar
upp að rótum. — Ef nöglin er
þunn, þá er ráðlegt að borða
kalk.
Ibviðu tií séhjbiœbiMfys
— Þér leiðist útlit þitt og
piltunum líst ekki á þig. Eg
skil þetta, finst mér. En það er
hægt að hafa mikil áhrif á út-
lit sitt. Þú efast, en það er á-
stæðulaust! Eg gæti sagt þér
frá mörgum dæmum. Ein af
vinstúlkum minum liafði kaf-
loðna vörtu á öðrum vangan-
um. Hún tók upp á þvi, að
klippa vörtuna, það er að segja
hárin, sem út úr helnni uxu.
Það varð til þess, að þau uxu
um allan helming og urðu hörð
og þroskamikil, eins og skegg
á karlmanni, og aumingja
stúlkunni leist ekki á blikuna.
Hún klipti og klipti og altaf
hélt vörtu-„skeggið“ áfram að
vaxa. Hún kom til mín í öng-
um sinum og eg sagði við hana:
Góða — farðu til sérfræðings!
Sérfræðingar taka vörtuna i
burtu. Hún trúði þessu varla,
aumingja stúlkan, en fór samt.
Eftir fáeina daga var ólukku
vartan horfin og stúlkan í sjö-
unda himni.
önnur hafði ógnarlega poka
undir augunum. •— Vinkonur
hennar sögðu: Þetta eru nú
meiri skjóðurnar — þær taka
sjálfsagt hálfpela, hvor um
sig! Og þetta verð eg að hafa
alla mina æfi, sagði vesaling-
urinn. Hún var ósköp hnuggin
og eg vorkendi henni. Farðu til
læknis, sagði eg. Vittu hvort
sérfræðingarnir hafa ekki ein-
hver ráð. Og stúlkan fór. Hún
kom til mín síðar og bá höfðn
..pokarnir“ minkað til muna.
Eg vona að þeir séu alveg
horfnir núna. ™ Og svona er
með margt og margt, aem aS
er, ög lýtir. Margt af þvi er
hœgt »6 íttga, ei’ leitað er tU
MATREIÐSLA
KÁLSÚPA.
3 1. vatn
1 kg. kjöt.
l/2 kg. hvítkál
‘/2 kg. jarðepli
V2 kg. gulrófur
10 gr. smjörlíki
35 gr. liveiti
Salt.
-—• Kjötið er þvegið og síðan
Iátið í pott með sjóðandi vatni,
sem þegar er saltað. Gætið þess
að veiða froðuna vel ofan af.
Þá er hvítkálið, gulrófurnar og
jarðeplin sett saman við og soð-
ið þar til það er meyrt. Þá er
alt tekið upp úr nema kálið. —
Smjörlikið er hrært lint í skál,
hveiti hrært saman við og því
bætt í súpuna. Gulrófur og jarð-
epli er brytjað niður og sett i
súpuna og salti bætt í ef þarf.
Borið fram með kjötinu.
SMÁÞYRSKLINGUR í
KARRYSÓSU.
6 litlir þyrsklingar
Hrísgrjón
Ivarrysósa.
Þyrsklingarnir eru hreinsaðir,
jierraðir, velt upp úr eggi og
tvíbökumylsnu og steiktir I
plöntufeiti. — Þeir eru siðan
látnir á fat og hrísgrjónum rað-
að öðru megin á það. Karrysósa
borðuð með.
PIPARRÓTARSALAT.
IV2 dl. rjómi
1 matsk. edik
1 matsk. sykur
1 matsk. piparrót
25 gr. makaróni
50 gr. hangikjöt
Steinselja.
— Piparrótin er flysjuð, skaf-
in mjög smátt. Rjóminn er
siðan þeyttur og soðið maka-
roni, piparrót, edik og sykur
hrært saman við rjómann.
Þetta er svo sett í miðjuna á
fati og saxað kjöt raðað i kring-
um ]>að. Steinselja sett i miðj-
una.
þeirra, sem þekkingu hafa á
hverju fyrir sig. Það hefi eg
sjálf reynt. Og það hafa marg-
ar stúlkur reynt.
Þegar vinkonur mínar koma
til min og kveina og kvarta
un'dan hinu og öðru smáræði,
sem eg þykist vita, að hægt sé
að laga, þá segi eg æfinlega:
—r Blessuð góða, láttu ekki
shsvonal Fajfp til »ér«
fræöingal
84