Nýja dagblaðið - 24.12.1936, Blaðsíða 2
2
N Ý J A DAGBLAÐ IB
Jónas Jónsson:
---- Jökulkirkjan
I meir en 19 aldir hefir mannvænlegasti hluti
mannkynsins glímt við að samþýða hinar hörðu og
kröfumiklu sambúðarreglur ki’istindómsins við sína
meðfæddu sjálfselsku. Það er ekki auðvelt að vera
að öllu leyti bjartsýnn um þessa þróun. Um þessi
jól er heiftarleg innanlandsstyrjöld í því landi
Norðurálfunnar, þar sem kirkjan hefir náð mestu
valdi yfir hugum manna. 1 öðru landi, þar sem
fólkið gerði fyrir fjórum öldum mikið þrekvirki til
að geta arfleitt eftirkomendur sína að andlegu
frelsi, er helmingur þjóðarinnar í grimmilegri á-
hauð, harðari og réttlausari en nokkur þrældómur
fyr á öldum.
Sem betur fer er þetta ekki nema hálf sagan.
Hugsjónin um bræðralag mannanna hefir líka dafn-
að. Samtíðin er eins og aldingarðar þar sem fagrar
og þróttmiklar skrautjurtir vaxa við hliðina á ban-
vænum eiturgróðri.
Hér á Islandi hefir baráttan um hina réttu sam-
búð mannanna verið örðugt viðfangsefni kirkjunn-
ar mönnum. Þar hefir gætt bæði sigra og ósigra.
'Mér kemur í hug endurminning um nokkra slíka
sigra, í afskekktu og lítt þekktu héraði.
I öræfunum er gömul og fremur óásjáleg torf-
kirkja, ein af þeim fjórum, sem enn eru til í land-
inu. Presturinn býr 65 km. frá kirkju sinni og
kemur þangað einu sinni í mánuði, til að messa.
En öræfingar eiga sér aðra kirkju, hina mestu
og stórfenglegustu sem til er í landinu. Öræfajökull
rís í allri sinni dýrð bak við sveitina. Hann skýlir
henni við norðangjósti. Hann heldur henni svo að
segja í faðmi sínum. Frá hjartarótum hinna miklu
jökla renna tvær voldugustu elfur landsins sín
hvoru megin byggðarinnar út til sævar. Og fram-
undan sveitinni er hafið, stundum blátt og hlýlegt,
oftar órótt og kvikt með hvítum brimfaldi niður
við sandana.
Öræfingar búa á einskonar eyju. Illfær vötn á
tvo vegu, haf og mestur jökull álfunnar til hinna
hliðanna. í þessari umgjörð, og við þessi skilyrði
hefir þróast sambúðarhæfileiki, sem myndi þykja
merkilegur í mörgum þeím söfnuði, þar sem mess-
að er á hverjum sunnudegi.
Fólkið í Öræfunum finnur að það er ein heild.
Því þykir undurvænt um sína fögru sveit. Það vill
ógjaman fara burtu. Drengur úr Reykjavík, sem
var settur þangað í fóstur, strauk austur þangað
með fyrstu póstferð, eftir að hann átti að setjast
aftur að í höfuðstaðnum og bað fyrri húsbændur
sína að mega vera lengur. Á flestum jörðum er
margbýli. Sumstaðar eru 8 eða 4 bændur á jörð,
en í tveim hverfum eru heimilin 8 eða 9 í hvoru.
Túnin liggja saman, og stundum eru fleiri bæir
sambyggðir. Nábýlið reynist vel. Menn vinna í. fé-
lagi, hjálpa hverir öðrum, og þegar meiningamun-
ur kemur fram, þá er stillt í hóf og hlýtt föstum
og prúðmannlegum reglum, næstum því eins og í
enska parlamentinu. öræfingum er ljóst að þeir
verða að standa saman, og að gott nábýli helzt
ekki við nema fyrir atbeina allra, sem hlut eiga að
máli. :v/- -
Mér kemur í hug ein jörðin. Þaf er þríbýli. J
einum-bænum eru fjórir bræður, sem hafa félags-:
bú. Á næsta bæ eru aðrir þrír bræður. Einn þeirra
er giftur. En þeir hafa sameiginlegan fjárhag. Ut
á við er heimilið eitt. í öðru hverfi voru þrír bræð-
ur, allir ógiftir, en bjuggu með móður sinni. Þeir
höfðu húsað bæ sinn prýðilega, höfðu ágæta raf*
stöð og margháttuð þægindi, vegna hugkvæmdar
og atorku. Á einni jörðinni búa tveir bræður í fé-
lagi. Annar er giftur og á nokkur hálfstálpuð börii.
Hinn er ógiftur, vinnur í heimilinu og fyrir sveit-
ina álla, án þess að hugsa um sérhagsmuni. Einn
bóndinn hafði verið í nánu sambýíi við mág sinn í
nokkur ár, en í vor sem leið hafði mágurinn fengið
aðra jörð í Öræfum og flutt búrtú. Þegar bóndinn,
sem býr eftir á jörðinni, er spurður um umbætum-
ar, sem gerðar hafa verið, þá segir tiann: Þær eru
allar að þakka mági mlnum. „Ef hann hefði ekki
verið hér, myndi mitt heimili líta næsta fátæklegá
út“. —
öræfingar eru að hugsa um að byggja sér nýja
og fallega kirkju niðri í byggðinni. Þéim mun vafa-
laust takast það. En þeir geta aldrei keþpt við
jökulkirltjuna miklú, sem gnæfir yfir býggð þeirra
og skýlir þeim. 1 skjóli hennar hafa þeir á mörg-
um öldum tamið sér sambúðarhæfileika, sem alstað-
ar geta verið til fyrirmyndar, J, J.
Nýja dagblaðið
dskar ollum lesendum sinum
gleðilegva jöla!