Nýja dagblaðið - 24.12.1936, Blaðsíða 15

Nýja dagblaðið - 24.12.1936, Blaðsíða 15
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 15 En þegar teið á kapphlaupið, greiddi hinn breiðfirzki sjómaður og bóndasonur sporið og komst fram úr keppinautunum. Og því meir sem tímar líða, því meiri er aðdáun íslendinga fyrir sínu mikla þjóð- skáldi, Matthíasi Jochumssyni. VI. Þjóðhátíðin 1874 varð áhrifamesta tímabil í sögu sr. Matthíasar. Hátíðin var haldin undir hinum fá- tæklegustu skilyrðum, en þjóðin var þrátt fyrir alla fátækt, full af sigurgleði yfir fengnu frelsi og sjálf- forræði eftir æfilanga baráttu Jóns Sigurðssonar og hinna þrautseigu samherja hans. Hin sama varð raunin á í Grikklandi eftir að vígamenn þjóðarinn- ar höfðu hrundið árás Persa, að þá túlkuðu skáldin sigurgleði þjóðarinnar í ódauðlegum skáldverkum. Vorið fyrir þjóðhátíðina virðist Matthías hafa lifað í sífeldri hrifningu. Hann yrkir hvert meistaraverk- ið af öðru á fáeinum dögum, öll hin glæsilegu minni, sem enn eru á hvers manns vörum. Lofsöngurinn er aðeins eitt af þeim. Og svo gagntekinn var Matt- hias af þessum óviðjafnanlega skáldadraumi, að hann gleymdi sigrum sínum og kunni ekki að meta þá. Samtíðarmenn hans sögðu, að hann hefði ekki áttað sig á hvílíkt stórvirki Lofsöngurinn er, fyr én hann varð var við aðdáun axmara. En þrátt fyrir öll þessi afrek gátu samtíðarmenn Matthíasar hvergi nærri viðurkennt yfirburði hans, svo sem hefði mátt vænta á árunum eftir þjóð- hátíðina. Hann verður í annað sinn prestur í sveit með miklum embættis- og búsáhyggjum. Um sania leyti byrjar hið ægilega harðindatí:nabil, þegar fjórði hluti þjóðarinnar bjargaði lífinu frá hungur- dauða með einskonar flótta til íjarlægs lands. En Matthías bognaði ekki. Skáldið í honum var það sterkt, að engir ytri erfiðleikar gátu beygt þrótt hans. En um þetta leyti koma fyrir tveir atburðir, sem bregða ljósi yfir það, hve langt var frá að sam- tíðai’menn hans kynnu að meta skáldskap hans að verðleikum. Annað er sálmabókarmálið, en hitt er ádeila GestS Pálssonar á skáldskap hans. vn. Öndvegishöldar hinnar íslenzku þjóðkirkju störf- uðu þá að því að undirbúa sálmabók þá, sem enn er í gildi fyxir þjóðkirkjuna. Enginn af þeim, sem stóðu að því verki höfðu til þess sérstaka köllun. Sumir þeirra voru hversdagslegir viðvaningar við að gera stuðlað mál. Þeir söfnuðu í eina bók afar- iniklu léttmeti og nokkru af því litla, sem til var af sálmum, sem höfðu bæði skáldlegt og trúarlegt gildi. En enginn þeirra kunni að meta sr. Matthías sem trúarskáld. Engum þeirra virðist hafa komið til hugar, að lofsöngurinn ætti erindi í sálma- bók þjóðkirkjunnar. — Yfirleitt var það stefna sálmabókarnefndarinnar að taka eins lítið og hægt var í bókina af sálmum sr. Matthíasar og þeir gátu raunar rökstutt mál sitt með því, að kirkju- stjórnin væri að hugsa um að reka hann úr prest- stöðu, fyrir vöntun á kirkjulegu lundarlagi. Skáldið beygði sig fyrir ofureflinu. Miklu af hans beztu sálmum var og er útskúfað úr þessari sálmabók. Matthías lét sér nægja að fullnægja sinni innri þrá, að yrkja og þýða ný lofkvæði í þjónustu þeirrar stofnunar, sem ekki þóttist þurfa hans með, og hann lét ekki staðar numið á þeirri braut fyr en hann var orðinn mesta sálmaskáld, sem þjóðin hefir nokkumtíma átt. En hin íslenzka þjóðkirkja hefir verið trygg við stefnu hinnar fyrstu sálmabókarnefndar. Bókin hefir verið gefin út óbreytt hvað eftir annað, eins og væri hún helgur dómur, en sum af snilldarljóð- um sr. Matthíasar, sem ekki fá að vera þar, eni sungin við aðra hverja jarðarför í landinu. — Fyrir nokkrum árum, þegar ég hafði um stund yfirum- sjón kirkjumálanna, fóru nokkur bréf milli mín og biskups um sálmabókina. Ég benti honum á, að til- gangslaust væri að halda mesta sálmaskáldi lands- ins frá sálmabókinni og lagði til að bókin yrði stytt og endurskoðuð, að meginið af leirburðinum yrði fellt niður, en í þess stað látnir koma sálmar Matthíasar Jochumssonar. Biskup gekk ekki inn á þetta eða ráðamenn prestastéttarinnar, heldur gáfu út lítið hefti til viðbótar hinni gömlu sálmabók. En svo sem kunnugt er, mishepnaðist þessi tilraun svo gersamlega, að nýja kverið var gert upptækt og brennt. Þannig endaði síðasti þáttur í viðskiptum hinnar íslenzku þjóðkirkju við sr. Matthías Joch- umsson og sálma hans. Um líkt leyti og þjóðskáldið át.ti í þessari baráttu um hina trúarlegu ljóðagerð við forráðamenn kirkj- unnar, var honum haslaður bardagavöllur af for- kólfum hinnar nýju skáldastefnu, sem Georg Brandes hafði flutt frá París til Norðurlanda. Gest- ur Pálsson hafði hér orð fyrir hinu nýja árásarliði. Gestur var listfengt smásöguskáld, en veigalítið ljóðskáld, maður vel ritfær, en haldinn af unggæðis- legum þekkingargorgeir. Gestur leit á sr. Matthías eins og hálfgerðan viðvaning, sem sæti á afskekktu brauði út í dreifbýli á afskekktri eyju og hefði að vonum orðið útundan, þegar straumar hinnar sönnu menntunar dreifðust frá þriðja keisaradæminu út um heiminn. I ritdómi Gests Pálssonar kom fram gagngert skilningsleysi á hinum miklu yfirburðum sr. Matthíasar, gáfum hans, andagift hans, skap- andi afli, mælsku og geisiléga hugmyndaauði. Rit- gerð Gests var tilraun bókmenntalegs farisea til að leggja alinmál hversdagsmennskunnar á þau verð- mæti, sem ekki verða mæld eða vegin af skjólstæð- ingum Brandesar.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.