Nýja dagblaðið - 24.12.1936, Side 25

Nýja dagblaðið - 24.12.1936, Side 25
N Ý J A 25 D A G B L A Ð I Ð Og í fyrirmyndinni. Sjálfur mun hann hafa skilið rétt þetta einkennilega sálræna atvik. Hann var háður dularfullum innblæstri um allan skáldskap. „Volaða land“ var einskonar bergmái af hörmung- um átta hafís- og landbrotsára. En þessi eini sorgaróður í ljóðum sr. Matthías- ar er fyrir löngu gleymdur, nema sem sönnun um þá.óhemju hjartsýni og lífstrú, sem einkenndi allt hans starf frá barnæsku til grafar. Nú líta menn aðeins á hina háu, sólbjörtu tinda í kveðskap Matt- híasar. Ríki hans vex, því lengur sem tímar líða. Haxm er fyrir löngu seztur á bekk með þeim, sem valda aldahvörfum í bókmenntum þjóða sinna. — Hann hefir ekki aðeins gert lofsöng, sem þjóð hans hefir gert að þjóðsöng. Öll list hans var samfelldur lofsöngur um ísland, fólkið og sögu þess. J Ó L I N O e BÖRNI N svo kom hátíðin með gleði, frið og sálmasöng iiux í híbýli og hugskot manna. — Ljósið var tákn jól- ánna. Það lýsti í hverjum kima,, og ögraði skamm- degisnóttinni út um hvem einasta glugga. —* Og það lifði meira að segja alla liðlanga nóttma. — Var ekki að baki þess einhver annarleg birta, sem barðist til sigurs við myrkur hins ókunna og illa? Fólst ekki í sálmasöngnum eitthvert fyrirheit um i,fæddan friðargjafa“. Ef til vill sé ég þetta aðeins í rósrauðu skini hins liðna, en svo mikið er þó víst, að jólin skildu eftir yndælar minningar, sem endast enn í dag, því að enn í dag finnst mér allt verða betra á jólunum en endranær. — En hvað skilja jólin eftir hjá ungu kynslóðinni nú? — Ég veit það ékki. Þau koma líkt og áður með gleði og sálma- söng, en mér finnst margt vera tapað. — Hvar er íjósið, er það ekki orðið mislitt, ekki birta, heldur skraut. Og jólasálmana spilum við nú eins og jazz- lög með fullu „registri" okkar vélræna og villuráf- andi mannfélags.— En minningamar um æskujólin mín eru þess valdandi, að fátækt og félagslegur andhælisháttur er mér aldrei eins andstyggilegur og þá. Þess vegna minnist ég litla skítuga snáðans hjá „Edinborg“ í fyrra og gömlu konunnar með grænköflótta sjalið, sem handlék leikföngin, án þess að kaupa nokkuð. Þess vegna sárnar mér allt þetta auglýsingaskvald- úr, allar þessar jólafórnir — til Mammons. Á Þorláksdag 1936. Leiðrétting. 1 grein Próf. Ahlmanns á 4. síðu, 9. línu að neðan, í öðrum dálki, hefir misprentast Svínafell í staðinn fyrir Sandfell. Undir ægishjálmi Vatnajökuls ur varla byggð brú, svo straumhörð, sem hún er og farvegurinn gljúpur og breytilegur.--- „Hún er nú ekki svo mikil núna“, segir Guð- mundur. „Ef til vill minnkar hún í nótt, þegar veðrið verður svalara. Hún er minnst kl. 8—9 að morgninum“. Með söknuði kvöddum við fólkið í Skaftafelli, sem sagði að við skyldum vera velkomin aftur, þó við vildum vera þar allt sumarið. Við riðum hægt úr hlaði, fimm manns með sjö hesta. Hjá Oddi bætt- ist í hópinn, hann sjálfur, Nils Nielsen og förunaut- ar hans, Guðmundur úr Vestmannaeyjum og loks pósturinn, svo alls urðum við ellefu í hóp með átján hesta. Við snerum okkur við og veifuðum í kveðjuskyni í síðasta sinn. Uppi á túnbrekkunni stóðu þau enn- þá, bræðurnir þrír, Sigríður Gísladóttir og dæturn- ar. — Ef til vill var þetta hið fegursta, sem við sá- um í Skaftafelli, þessar sex manneskjur, sem stóðu þarna hjá heimili sínu, þar sem þau áttu fyrir hönd- um að inna af hendi sín daglegu störf, og færa fram lífið í sama nána sambandinu við náttúnma, sem hingað til — jafn blátt áfram, skýrt mótuð og trú- verðug eins og náttúran sjálf. Fyrir þeim lágu engir vegir opnir burtu frá húsi og heimili. Skyldu okkar leiðir nokkum tíma liggja hingað aftur? # ii —w ir~5CT

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.