Tíminn Sunnudagsblað - 15.07.1962, Blaðsíða 2
ERTÍJ MANNÞEKKJÁRI?
Ein aðferð mannsins til þess að
átta sig á umhverfi sínu og gera
sér þag undirgefig er sú, að skipa
fyrirbrigðum náttúrunnar niður í
flokka. Þessi flokkunarástríða manns-
ins, gömul og ný, er í dag orðin svo
yfirgripsmikil, að einstakur maður
þyrfti a.m.k. þúsund ár til þess að
kynna sér allt, sem er á boðstólun-
um. Mönnum nægir varla ein jarð-
vist til þess að verða sérfræðingar í
einhverri flokkun. ÖUu er skipað nið-
ur í flokka, flokka-flokka og undir-
flokka fyrir utan öll einstök atriði og
undantekningar. Dýr merkurinnar
eru flokkuð, fuglar himinsins og
fiskar sjávarins, pöddur og köngul-
lær, allt, sem nöfnum tjáir að nefna.
Og maðurinn hefur einnig bent
flokkunarástríðunni að sjálfum sér,
skipað eiginleikum sínum og útliti
niður í mismunandi flokka til þess
að leita orsaka og afleiðinga marg-
víslegra gerða sinna og skapa sér
handfestu og öryggi í ringulreig tíl-
verunnar, inn á við og út á við.
í þessu sambandi mættu lesendur
minnast íslenzks kennara, sem birti
fyrir 2—3 árum mannflokkaniður-
stöður sínar, þar sem hann skipti
mönnum í beinhyggju-, flathyggju-
og rúmhyggjumenn. Það eru þó ekki
kenningar hans, sem Sunnudagsbiað-
ig birtir að þessu sinni lesendum
sínum til gagns og gamans, heldur
birtum við hér nokkra mannflokka,
samkvæfnt kenningum þýzka lækn-
isins og sálfræðingsins Ernst Kre-
schmer, en mannflokkakenningar
hans þykja bera af öðrum slíkum.
Kreschmer skiptir mönnum í tvo
heildarflokka, hringhuga og kleyf-
huga og svarar ákveðin líkamsbygg-
ing til ákveðinna skapgerðareigin-
leika. Hringhugar eru í stórum drátt-
um þykkvaxnir og hraustlegir, en
kleyfhugar ýmist smávaxnir og grann
ir eða hávaxnir, grannir og krafta-
legir. Þá eru hringhugar frekar fé-
lagslyndir og úthverfir, en kleyfhug-
ar fremur ófélagslyndir og innhverf-
ir. Margt annag kemur til greina,
svo sem höfuðbygging og útlimir, en
þetta verður látig nægja hér. Hér
fara svo á eftir helztu undirflokkar
h$nghuga og kleyfhuga og geta les-
endur blaðsins borið manngerðirnar
saman við þjóðkunna menn, kunn-
ingja síná — og jafnvel sjálfa sig,
og kannað á þann hátt mannþekkingu
sína.
Undirflokkar
hringhuga:
Heiztu afbrigði
1. flokkur:
Masgefmr og glaS-
lyndir menn
Það heyrist til þessara manna á-
Iengdar, og þeir eru jafnan fremstir
í flokki, þar sem líf er í tuskunum.
í hverri samræðu koma þeir að ein-
hverri áberandi athugrsemd, og í
hverri veizlu hafa þeir á takteinum
langa ræðu og hávært grín. Þeim
geðjast betur að leik og drykkju en
ströngu vitsmunastarfi. eða harðræð-
um og ávítuBum. Þeir eru fjörg-
andi, léttir og yfirborðslegir, vel
látnir og elskulegir, makráðir, líf-
miklir og góðhjartaðir, en stundum
þreytandi vegna skorts á háttvísi og
fágun; gorts, barnalegrar eigingími
og þrotlauss kjaftæðis.
2. flokkur:
Rólyndir og gamansamir
menn (án illkvitini)
Þeir sitja álengdar án þess að
segja margt. Þeim þarf að hlýna,
áður en þeir gefi sig ag öðrum mönn-
um. Öðru hvoru skjóta þeir inn at-
hugasemdum, sem eru frábærar.
Þéir eru fæddir frásagnarsnillmgar
og í munni þeirra verður hver ein-
faldur atburður þægilegur, blátt á-
fram og „kyndugur". Þeir tala lítið,
breitt og þægilega og án allrar
gervi-áherzlu. í samkvæmislífi og
starfi fyllast þeir oft eldmóði og
verða þá stundum áhrifamiklir, á-
kveðnir og óheflaðir. Þeir eru ánægð-
ir með heiminn eins og hann er, og
eru gæddir náttúrlegri góðvild gagn-
vart mönnum og börnum, en lítið
um grundvallarreglur og kaldrana-
hátt gefið. Þeir eru tryggir vinir og
leyfa mönnum að halda sínum hátt-
um, og eru lagnir að fást við ein-
staklinga. Þeim geðjast bezt að heið-
arlegum og alþýðlegum lifnaðarhátt-
um.
3. flokkur:
Kyrrláfir og IsSíð-
lyndir menn
Bezti náungi, þunglamalegur, en
hlýr í sér. Hreyfir sig með varfærnj
og er ófús að taka ákvarðanir. Hann
vekur samúð manna án þess að segja
nokkuð og lifir í sátt og samlyndi
vig allt og alla. Hann á fastan, þægi-
legan kunningjahóp, er brosmildur,
en einnig skjótur til tára. Hann tek-
ur engu meg léttúg og færist ógjarna
mikið í fang og kemur ekki miklu
í verk.
4. flokkur:
iakráo átvögi
og vínsvelgir
Vitsmunir eru takmarkaðir og upp-
eldið fremur menningarsnautt. Oft
koma þeir fram sem „útþynning“
af hinum „gamansama og blíðlynda
manni“. Hér gætir einnig góðvilja
og hlýlyndis og þægilegrar gaman-
semi, en án dýpri alvöru og hugs-
unar. En ódulin er ánægja þeirra á
öllu efnislegu, áþreifanlegu, nálægu
og hlutstæðu. Atvinna þeirra er oft
eins konar tómstundavinna meg að-
alstarfinu. Feitir af ofáti.
5. flokkur:
Blendingsflokkur
Sameinar fjör og trúnað og heil-
brigða dómgreind annars og þriðja
flokks. Hjartað er á réttum stað, og
þeir geta aUs staðar orðið ag liði.
Þeir eru í öllúm nefndum og hlaðnir
störfum, vinna án þess að þreytast
og hafa mikig og jafnan margt fyrir
stafni og eitthvað nýtt annað slagið.
Hneigjast ag hlutlægum og hagnýt-
um störfum. Gengur mikið undan
þeim. Þeir eru liprir að miðla mál-
um, en þó ákveðnir. Segja skoðun
sína skýrt og skorinort, en eru þó í
góðu skapi. Sumir eru metnaðar-
gjarnir, en fleiri eru þeir, sem vagga
sér í öruggu sjálfstrausti og njóta
sinna eigin verðleika og skeyta minna
um frama og viðurkenningu en hress-
andi starfsgleði. Þeim er lítið nm
hugsjónarlegan eldmóð, ofsa og
spennu. Festa sig aldrei við neitt, en
fást við eitt og annað; en einnig
er í þesspm hópi fólk, sem stjórnar
umhverfi sínu með barnalegri stór-
mennsku og hagnýtri sérgæzku.
KSeyfhugar
1. flokkur:
Fíngeröir, fágaöir menn
Forðast allt auvirðilegt. Hættir til
grashósta (ofnæmis). í samkvæmis-
lífi umgangast þeir strengilega val-
inn hóp. Þessum mönnum býður við
þeim, sem eru meg hávaða og skríls-
læti. Líkamssnyrting mjög vandvirkn-
isleg. Leggja rækt við eigin persónu-
leika og fylgjast grandgæfilega með
458
TlMINN - SUNNUDAGSBLAÐ