Tíminn Sunnudagsblað - 15.07.1962, Side 16
Sögnin um tréhestinn, sem hermenn Grikkja földu sig í, áöur en hann var færður inn í Tróju, hefur hrifið hugar-
flug manna allt frá tímum 'Hómers til vorra daga. — Mynd þessi er eftir hinn þekkta ítalska málara Tiepolo (d. 1770).
lítið, sjálfstætt ríki, en vel vopnutn
búið. Og tæplega er mögulegt að
kalla umsátrið vel heppnað. Umsát-
ur, sem stendur samfleytt í tíu ár,
er mikil blóðtaka hverri þjóð og get-
ur ekki talizt til sigra, þótt borgin,
sem setið er um, falli að lokum.
í stuttu máli má segja, að menn
hetjualdarinnar, eins og hetjur allra
slíkra tíma, hafi sóað verðmætum og
þrótti og gert það skeytingarlaust.
Príam konungur kvartaði sáran und-
an kostnaðinum við umsátur Tróju
og minntist hinna góðu, gömlu daga
velmegunar og hamingju. Og konung
ar Þebu og Mykene fundu einnig, að
hallaði undan fæti í viðhorfi til lífs
og breytni. Þetta er fylgifiskur allra
styrjalda og allra tímabila, þar sem
hetjan, hermaðurinn, er kynnt sem
sú manngerð, er allir skyldu taka sér
til fyrirmyndar.
Um 1200 eða 1150 f. Kr. voru allir
skipulagðir iífshættir bronzaldar
Mykene að'eins svipur hjá sjón,
óstöðugir og þróttlausir. Hetjur
Hómers kunnu ekki lengur að
skrifa. Margar þeirra voru einfaldir
menn, sem sinntu sínum búverkum
og gættu búsmala síns. Þeir eru ekki
lengur hinar glæstu manngerðir, sem
gull- og silfurfjársjóðirnir í konung-
legu grafhvelfingunum í Mykene og
öðrum borgum Grikklandsskaga gefa
í skyn. Stöðugt hallar undan fæti fyr-
ir menningu þeirra allri, svo og al-
Iírítar, en í ríkara mæli þó. Krítverj-
ar höfðu látið sér nægja að flytjast
til Grikklandsskaga, en Mykene og
Þeba beindu útflutningi sínum í all-
ar fjórar höfuðáttirnar. Og í því var
fall þeirra falið. Þeir sendu sína
beztu leiðtoga til annarra landa og
sína hraustustu hermenn. Umsátrið
um Tróju er aðeins einn margra á-
þekkra viðburða. Þótt þeir kæmu að
suðurströnd Litlu-Asíu, yfirráðasvæði
Hittíta, eingöngu sem innflytjendur
og kaupmenn jafnréttháir íbúunum,
þá réðust þeir á Tróju, sem þá var
Þessi guilbikar er af mínóskri gerð. Hann fannst í grafhvelfingu í Vafio sk'ammt
frá Spörtu.
472
TfMINN —
SUNNUDAGSBLAÐ