Tíminn Sunnudagsblað - 05.08.1962, Side 14
VÍÐIVELLIR í BLÖNDUHLÍÐ. (Ljósmynd: Páll Jónsson).
oiði um það, að lengi hafi verið
reimt eftir Solveigu og getur einnig
þessara heitinga við séra Odd. Ber
hann prest sjálfan fyrir þeirri sögu.
Hann segir og, að nálega hafi ekki
sú nótt komið, að hun sækti ekki að
Jóni Steingrímssyni, og vegna þess-
ara aðsókna hafi hann hrökklazt frá
Miklabæ um vorið Jón Espólín segir,
að séra Oddur hafi gerzt undarlegur í
háttum og nefriir til marks um það,
að eitt sinn hafi hann hlaupið frá
öðrum mönnum til fjalla og verið
eltur. Er af þessu bert, að séra Odd-
ur hefur stundum ekki verið með
réttu ráði og mönnum vart eða ekki
þótt honum óhætt í verstu köstunum.
Ekkert er líklegra en dauði Solveigar
og draumar og fyrirbæri, sem menn
þóttust skynja að henni látinni, hafi
raskað jafnvægi prests, og það því
fremur sem samvizka hans kann að
hafa ýtt óþægilega vig honum.
Svo er einnig að sjá, að prestur
hafi á þessu skeið'i verið alldrykk-
felldur, sem raunar var ekki nýlunda
um presta á hans dögum, og talsvert
skort á, að 'hann rækti embætti sitt,
svo að vel þætti. Vildi hann þá einn-
ig eitt sinn komast brott frá Mikla-
hæ, því að hann sótti um Laufás árið
1784. Þá var Árni Þórarinsson orðinn
hiskup á Hólum, og gerði hann þá at-
hugasemd við umsókn séra Odds, að
hann væri. ekki viss um reglusemi
hans og kostgæfni.
Þó liðu svo átta ár, að ekki dró til
stórtíðinda. En þá var það' hinn fyrsta
dag októbermánaðar hau<d;’ ’Vfw
sextánda sunnudag eftir þrenningar-
hátíð, að séra Oddur messaðí á Silfra-
stöðum. Varg hann seinn fyrir, er
hann reig heim um kvöldið. og lenti
í myrkri. Kom hann að Víðivöllurn
til Vigfúsar sýslumanns Schevings
og var boðið til stofu eftir hætti
Drakk hann þar kaffi, en annars er
svo að sjá. að viðstaðan hafi verið
fremur stutt. I annálsviðauka, sem
skráður var af Jóni sýslumanni
Sveinssyni á Eskifirði, getur þess, að
prestur hafi verið „lítið hreyfður af
víni“, og gæti það þýtt alldrukkinn
á nútíðarmáli, enda þótti þá nálega
jafnnauðsynlegt, að prestar hefðu með
sér pyttluna sem bænabókina á ferða-
lögum um sóknir sínar, og brennivín
mjög veitt þeim gestum, er menn
vildu gera vel til.
Frost hefur verið talsvert dagana
áður og hörzl komið, því að prestur
reið skaflajárnuðum hesti, en nú var
hlákuveður og niðamyrkur. Sýslumað-
ur fylgdi séra Oddi á hest og kvaddi
til mann eða menn til þess að fylgja
honum. En prestur vildi ekki heyra
nefnda fylgd, enda ekki nema rösk-
lega einn kílómetri frá Víðivöllum
að Miklabæ. Segir séra Páll á Brúar-
landi, að sá, sem sýslumaður bauð
presti til fylgdar, hafi verið Jón sá
Bjarnason, er var heimildarmaður að
frásögn hans um þessa atburði, en
Gísli Konráðsson nefnir þar til Arna
Jónsson, er síðar varð bóndi á Utan-
verðunesi. Frásögn Gísla er á þá leið,
að Árni hafi farið af stað með presti,
þrátt fyrir mótmæli hans. Bjóst hann
við, að prestur riði út hjá Víkurkoti,
því að þar roru svellaðar mýrar og
greiðar yfirferðar þeim, er reið skafla
járnuðum hesti. En svo fór, að prestur
sló þegar í hest sinn, er hann reið
úr hlaði, en Árni sneri aftur við
vallargarð á Víðivöllum, því ag sá,
sem hann átti að f-ylgja, var horfinn út
í haustmyrkrið.
Ekki er tryggt, að þessi frásögn
sé í öllum atvikum hárnákvæm. En
ekki er fjarri lagi að álykta, að hér
stígi annað tveggja fram mynd af
drukknum manni eða ofsareiðum, er
tyrjar ferð sína meg því að berja
hest sinn og þeysi út í myrkrig frá
gestgjafa sínum og fylgdarmanni.
Þessu næst víkur sögunni til Mikla-
bæjar, og fer hún nú að taka á sig
kynjamynd, er ber blæ þjóðsögunnar
í vaxandi mæli. Fólk var þar mjög
myrkfælið orðið, segir Gísli Konráðs-
son, vegna reimleika þeirra, sem af
Solveigu stöfuðu — ekki sízt prests-
konan. Nú bar það vig þetta kvöld,
að þeim, sem í baðstofu sátu, heyrð-
ist komið upp á bæinn og að glugga,
og segja sumir, að síðan hafi heyrzt
sem sá renndi sér niður aftur, er
þar var á ferð, eða væri dreginn
brott. Heimafólk nugði prest kom-
inn, og var sonur hans, Gísli að nafni,
átta ára gamall, sendur fram til þess
að opna bæinn fyrir föður sínum.
„Farðu fram, Gísli litli, og taktu
opinn bæinn. Hann fað'ir þinn er
kominn“, segir séra Páll á Brúar-
landi, að einhver í baðstofunni hafi
sagt við barnið.
Það er sögn sumra, að drengurinn
hafi farið til dyra, en einskis orðið
var, en séra Páll telur, að hann hafi
ekki þorað að opna sakir myrk-
hræðslu, og hafi því enginn skyggnzt
út. Eru um þetta r kreiki ýmsar sagn-
ir, sem lengi gengu í munnmælum og
voru skráðar löngu síðar. En á því-
líku eru ekki reiður hendandi.
En að morgni stóð hestur prests
með reiðtygjum öllum skammt frá
bænum. Nefna þar sumir til túnið,
en aðrir jafnvel hlaðið. Voru vett-
í hnakknum, en hattur hjá bæjar-
vegg. Þó sögðu nokkrir, að vettling-
lingar prests og keyri undir sessunni
arnir hefðu verið á bæjarveggnum og
keyrið á kirkjugarðsveggnum.
Fólki á Miklabæ varð að vonum
hverft við, og þegar spurnir bárust
af brottför séra Odds frá Víðivöllum
kvöldið áður, gat engum dulizt, að
váleg tíðindi höfðu gerzt. Voru þá boð
send á bæi í Blönduhlíð og leit hafin.
Var leitað í marga daga, og tóku að
minnsta kosti fjörutíu til fimmtíu
menn þátt í henni — sumir nefna
hundrað. Jón Espólin segir, að fjöru-
tíu menn hafi leitað í átta daga.
Fyrir neðan Miklabæ er kíll sá,
sem heitir Gegnir, djúpur mjög, og
liggur til Héraðsvatna. Ætluðu marg-
ir, að prestur hefði farið ], kílinn, og
var ieitað þar með stöngum og l^rók-
um, að því er séra Páll á Brúarlandi
segir með skírskotun til Jóns Bjarna-
sonar, er sjálfur var í leitarflokknum
dögum saman. En allt kom þetta fyrir
ekki. Séra Oddur fannst ekki.
Gerðust nú margar getgáturnar um
endalok prests, og voru þeir ófáir,
sem þóttust þess fullvissir, að Solveig
hefði dregið hann til sín í dys sína.
Vildu sumir rjúfa dysina og leita
prests þar, og fullyrðir séra Páll, að
prestsmaddaman hafi haft á því mik-
inn hug. En Vigfús sýslumaður Schev-
ing bannaði það, því að honum þótti
slíkt tiltæki votta óviðurkvæmilega
hjátrú.
Loks er þess ekki að dyljast, að í
hvíslingum hefur verið haft, að
minnsta kosti þegar frá leið, að prest-
ur kynni að hafa horfið af mannavöld-
um, og ppp komu þær raddir, að sjálf-
ur sýslumaður hefði gerzt ráðbani
50
T í M 1 N N
SUNNUDAGSBLAÐ