Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Síða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Síða 7
KetilsstaSir á Völlum. (Ljósmynd: Gisli Gestsson). kom að og skildi þá; höfðu illa atazt rúmföt sýslumanns af lýsinu“. Um þær mundir sem sýslumaður stefnir Agli, stóðu Sunnefumál sem hæst, en við þau er Wíum sýslumað- ur laungum kenndur. Fóru hugir þeirra Wíums og Péturs lítt saman í því máli, sem og reyndar flestum málum, því þeir áttu í brösum svo áratugum skipli. Wíum hélt nú þrjú þíng með vitna- leiðslum um mál Egils, og að lokum kvag hann upp dóm að Egilsstöðum 28. marz 1749. Var Agli þar gert að greiða smávægiiegan málskostnað, en að öð'ru leyti var hann sýknaður; þess að auki getið, að Egill hljóti að teljast bilaður og sé móður hans skylt að gæta hans sem slíks. Þvi var eitthvað fley.gt, að Egill hafi hér notið óvildar þeirra Wíums og Péturs, en l.íka er vert ag minnast greiðabragðs Jens Wiums föður Hans, við Egil forðum. Pétur sýslurnaður undi þessum málalokum hið versta og skaut mál- inu til alþíngis. Dæmdi Björn Mark- ússon lögmaður í því þann 16. júlí 1751 og breytti dómi Wíums svo, að Egill skyldi greiða Pétri sex hundruð á landsvísu í bætur fyrir „ósæmileg stóryrði" en málskostnaður eða önn- ur hegníng falli niður sakir fásinnu Egils. Wíum skyldi hins vegar greiða 8 ríkisdali í málskostnað. Kemur raun ar fram í dómnum: að með réttar- höldum Wíums sé „ekki meg vitnum fullkomlega bevísað, að Egill Snotru- fóstri sé aldeilis vitstola maður“. Sumar sagnir halda því fram, að Egill hafi sjálfur komið til alþíngis vig þetta tækifæri, „lét hann þar enn ærilega, gekk um búðir með brauki og bramli, svo til banda var hann tek- inn; illyrti hann og ýmsa höfðíngja"; en ekki verður séð af alþíngisbókum að Egill hafi verið á þínginu, enda telja menn ósennilegt að honum hefði verið sleppt lausum þángað. Þegar dómur Hans Wíums féll á Egilsstöðum 1749, hefur Jórunn á Ketilsstöðum, sem nú var háöldruð, séð hver hlífiskjöldur Wíum gat reynzt, samtímis því ag illa horfði um samskipti Péturs sýslumanns og sonar hennar. Hún gerði því ferð sína til Eiða á fund Wíums og gerði samníng við hann, dagsettan 26. júlí 1749. Lýsir Jórunn gamla þar ángri sínu vegna fásinnu og eymdar sonar síns, og kveðst lítt fær um að gæta hans sem vert sé. Annars er aðal- efni samníngsins það, að þar gefur Jórunn Wíum sýslumanni allt góss þeirra mæðgina í föstu og lausu, en á móti lofar Wíum ag taka ’Egil að sér eftir hennar dag, eða fyrr, ef henni þólcnast. Skyldu þó eignir Egils renna til hans aftur, ef honum batn- aði veikin. Jórunn fékk konúngsstaðfestíngu á þessu gjafabréfi 6. apríl 1753. Það ár gera Pétur sýslumaður og Wíum sýslumaður einnig samníng með sér, 11. september. Er þar ákveðið, að Pét- ur skuli leyfa Agli dvöl á Ketilsstöð- um meðan móðir hans lifi, en eftir lát hennar skuli hann fara til Wíum3. Þetta sama haust andaðist Jórunn á Ketilsstöðum, 73 ára gömul og södd mæðusamra lífdaga. Egill fór því til Wíums á góu um veturinn, en naut ekki leingi vistai þar. Næsta sumar, 1754, andaðist hann nálægt Þíngmaríumessu, 52 árs ag aldri. Þess er getið að „eitthvert stapp“ hafi orðið útaf lausafé Jórunnar að Agli látnum. en jörðunum hélt Wíum sýslumaður. Þar lýkur raunalegri sögu þess van heila gáfumanr.s Egils Guðmundsson * ar, er kallaði sig Staffeldt og Snotri fóstra; eftir hann liggur snyrtile. rithönd á prédikanaafskriftum i Landsbókasafni, þó ekki sé þar trú- arjátníng Snotru í frumriti. (Helztu heimildir: Sýslumanna- ævir; Huld; Blanda V.; Þjóð- sögur Jóns Árnasonar; Jónas Jónasson: íslenzkir þjóðhættir; Jón Helgason: Handritaspjall; Björn Th. Björnsson: Á íslend- ingaslóðum í Kaupmannahöfn). T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 943

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.