Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 09.12.1962, Qupperneq 10
Ár- í Rangárþingi. (Ljósmynd: Svavar Jóhannsson). Guðjón Jónsson í Ási: fieir hituðu stóran nagla á kolaglói Broi úr fimmtíu ára gamalli sjúkdómssögu tssammMMK Foreldrar mínir, Guðrún Filippus- dóttir og Jón Eiríksson, byrjuðu bú- skap í Bjóluhjáleigu árið 1859 og bjuggu þar síðan í fjörutíu og sex ár. Þau eignuðust þrettán börn, og dóu sex þeirra í æsku úr barnaveiki og taligaveiki. Sjö synir komust á þroskaaldur, en tveir dóu uppkomn- ir, Filippus, elztur systkinanna, úr lungnabólgu árið 1890, þrjátiu ára gamall, og Sigurður 1897, tuttugu og sex ára. Hann veiktist mjög hastar- lega 26. september, klukkan þrjú síð- degis, og var látinn klukkan fjögur um nóttina. Ólafur héraðslæknir Guð- mundsson var hjá honum, en gat ekki að gert, nema deyft mestu kvalirnar. Eiríkur, næslelztur barnanna, lærði trésmíði og stundaði þá iðn í nokkur ár á Eyrarbakka, Stokkseyri og í Reykjavík. En hugur hans stefndi alltaf að sveitabúskan. Veturinn 1909 frétti hann, að hálf jörðin Bjóla væri föl og laus til ábúðar vorið eftir. Hann kom austur að Bjólutojáleigu og færði í tal við mig, að við keyptum jörð; ina saman og færum að búa þar. í mér var eriginn búskaparhugur. Eg var kóngsins lausamaður, hugsaði ekkert um konu, börn eða búskap. Samt lét ég til leiðast vegna löngun- ar Eiríks til þess að koma undir sig fótum í sveit. Hann treystist ekki til kaupanna einn, því að efni hans voru lítil, líkt og min. Jörðin fékkst keypt. Það var samið um kaupverðið, og allt virtist ætla að ganga að óskum. En af vissum ástæð- um rann þó þessi ráðagerð út í sand- inn. Eiríkur fór vonsvikinn og væng- stýfður til Reykjavíkur. Nokkru seinna frétti Eiríkur, að hálf jörðin Ás í Holtum væri laus til ábúðar. Hann falaði hana, og var honum gefinn kostur á leiguábúð í eitt ár, enda keypti hann þá hús jarðarinnar af bónda þeim, sem þar hafði verið áður. Þetta þótti okkur ekki aðgengilegt. Þó fór svo, að við tókum jörðina með þessum kjörum. Og þetta réðst betur en á horfðist. Um haustið festum við bræður kaup á henni afarkostalaust. ★ Vorið 1909 fluttumst vig að Ási og byrjuðum þar búskap í félagi. Efnin voru lítil og bústofninn ekki mikill, en við vorum vonglaðir og bjartsýn- ir, treystum guði og lukkunni. Það hefur ekki brugðizt mér í lífinu. Við heyjuðum vel um sumarið, og allt gekk sæmilega vel. En í janúar- mánuði 1910 veiktist Eiríkur af höstugri lungnabólgu með háum hita. Hann var lengi máttfarinn á eftir, en óeirinn að liggja í rúminu og fór fljótt á fætur, líklega ekki hitalaus. Upp úr þessu fór hann að fá verk í annan fótlegginn ofan við öklalið- inn. Verkurinn fór vaxandi og varð að kvalaköstum. Kom í Ijós, að farið var að grafa í mergjarholinu í leggn- 946 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAB

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.