Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1963, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1963, Blaðsíða 6
Forn og mosagróin fiskbyrgi á Gufuskálum á Snæfellsnesi — minjar frá þeim tima, er menn flykktust víðs vegar að i verstöðvarnar á Snæfellsnesi. Ljósmynd: Þorsteinn Jósepsson. dagsbirtunni; eitt sinn tók hann til dæmis kembíngarlár og grýttj hon- um innanbæjar, hversu oft sem reynt var að láta hann á sinn stað. Varð hann nú svo frægur þar um slóðir, að hann var eingu síður kaliaður Sólheima-Móri eða Sólheimadraugur en sínu gamla nafni. Þar kom, að hver húskarlinn eft- ir annan var drepinn. Bjaini Þórð- arson hét bróðursonur eldra Finns; hann byrjaði að fá ásvifaköst og sá drauginn jafnan í köstunum, unz hann dó í einu kastinu 1827. Steinn, sonur Guðrúnar húsfreyju og fyrra manns hennar, lézt einnig snögglega 1831, „úr hidsigfeber", segir kirkjubó'tin. Jóhann hét maður, hann var sonur Samsonar Samsonarsonasr, þess er var meðal lífvarða Jörundar hunda- dagakonúngs. Jóhann var skáldmælt- uu, knár maður. og harðskeyttur. Hann kom til vistar að Sólheimum, og var hald manna, að hann legði hug á Þorbjörgu, dóttur Finns og Guð- rúrar. Jóhann kvaðst aldrei skyldu hræðast Móra. „Hann gekk til hrossa frá Sólheimum, tók sótt allskjótlega og heldúr kynjalega. Komst hann naumlega heim aff bæ þeim á Hömr- um heitir, og dó þar fttlu síðar". Aðr- ir segja: „Eitt kvöld kom hann ekki 222 heim í sama mund og vant var; var hans þá leitað og fannst hann þá dauður innf heytóft og líkaminn all- ur blár og blóðugur". Þetta var 1834 12. febrúar. Stytzt frá sagt lét draugurinn eig- inlega ekkert í friði á Sólheimum nema Kristján nokkurn Kristjánsson, sem sagan kaliar vesalmenni, og Finn bónda, sem aldrei hafði ótta af hon- um og kvað hann aldrei mundu buga sig. Enn má nefna Jakób Samsonar- son, föðurbróður Jóhanns. Hann tal- aði af njestu kokhreysti um drauginn, en sagt var, ag Jakob stykki stundum uppúr rúminu um hánætur og væri þá að fylgja einhverjum til dyra. Hugðu menn helzt, að hann héldi Móra rólegum með kveðskap. Þeim hjónum varð brátt örðugt að fá vinnuhjú. Finnur bóndi þótti sækja illa að á bæjum, og voru skepnur drepnar á undan honum, stundum margar í senn; þar fyrir utan voru smálegar skráveifur, braml og annað. „Einu sinni sáu menn, að Móri labbar inn á bæ þar í grenndinni og innar eftir baðstofu. Þar stóð borff með kaffi- áhöldum og leirílátum. Hann smokr- ar sér innundir borðið og rekur haus- inn uppundir það, svo að allt fór of- anaf því og brotnaði mélinu smærra. Að því starfi ioknu fór Móri út. Kom Finnur rétt á eftir og sá viðskilnað Móra. Varð fátt um veitíngar." Allvel hafði annars dugað að skvetta á hann úr hlandkoppunum, og iðkuðu gömlu konurnar það mest. Slys og villur ágerðust í Laxárdal; hröpuðu menn af björgum fram og álpuðust útí ár, allt fyrir tilstilli Móra. Kirkjuvegur að Hjarðarholti frá Sól heimum er það lángur að þegar lík- in voru flutt þaðan til kirkju, voru haíðir tveir líkhestar, hvíldir á víxl. En hvíldin var hæpin, í það minnsta þegar flutt var lík af þeim, sem Móri sá fyrir. Sagt var, að Móri sætj allt- af á þeim sem laus átti að vera, og var annar ævinlega sligaður eftir hann. o Hallur Hallsson hélt sig undir Jökli við svipaða liðan og áður er greint. Mesta hroðaorð fer af hon- um í munnmælasögnum. Þióðsögur herma, að hann hafi kvænzt þar vestra; hafi þau hjón misst dóttur sína og Hallur um svipað leyti reiðzt konu sínni svo herfilega, að hann réð- ist á lík barnsins á börunum og lék það svo illa að hann „braut í því T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.