Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1963, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 10.03.1963, Blaðsíða 20
EINAR SIGURFINNSSON: DAGUR FERJUBONDANS svo að þau mynda nokkurs konar hlóðir, síðan hefur svo fjórða bjarg- inu verið velt þar upp á. Öllum er það hulið, hvaða áhöld fornmenn gátu haft til slíkra stór- virkja, því að björg þessi eru hvort um sig mörg tonn að þyngd, sérstak- lega það efsta því að þag er ætið langstærst. Sem ég var parna að skoða safnið þá. kom orðsending frá stórkaup- manninum, sem öllu þessu hafði safn- að, ag hann bæði íslendinginn að heimsækja sig sumarbústað sinn ut- an við bæinn. Eg brá við og heim- sótti karlinn, sem tók mér með kost- um og kynjum. Það kom í ljós, að hann var niér mikbi fróðarj um forn- minjar á fslandi og fornminjagröft þar. Og hann sagði, að við þyrftum ekki að halda, að þeir Danir hefðu alveg gleymt gömlu fjarlægu sögu- eyjunni nbrðm við Dumbshaf. Mér féll mjög ve! við dönsku þjóð- ina, eftir þeim kynnum, sem ég hafði af henni þennan vetrarhluta. Fólkið var sérlega háttprútt og kurteist, en þó glaðvært og frjálslegt i framkomu. Skilyrði til búskapar virtust mér harla ólík í Danmörku og hér hjá okkur. Landið var ætíð rétt við býl- in, svo að um 'angræð'i var ekki að ræða. Til að lét.ta störfin og auka af- köstin höfðu þeir márgs konar vélar, verkfæri og áhóld, bæði innan bæjar og utan. Flest af þvi var þá óþekkt hér hjá okkur Samt fannst mér þó nóg um erfið störf hjá þeim. Ekki töldu bændumir, að gott væri að búa, þó að kaupgjald væri sér- lega lágt hjá þeim um þessar mundir. Þeir sögðu, að allt, sem kaupa þyrfti, væri svo dýrt, og verðlag á afurðum búanna lágt. En skattarnir væru óhóf- lega miklir, þvi að konungsfjölskyld- an væri þjóðinn? svo kostnaðarsöm. Útgjöldin til landvarna og hernað- ar sögðu þeir líka drjúg, en þeim kostnaði væri þó algerlega á glæ kastað, þvi að vonlaust mundi fyrir slíka smáþjóð að verjast öflugum her- veldum, ef til átaka kæmi. Gaman höfðu dönsku bændurnir af að heyra um oúskapinn hér á landi, og furðulegar þóttu þeim sögurnar af smölun fjárins upp um fjöll og heiðar. Mér er ekki grunlaust um, að þeim hafi þótt ótrúlegt, hvað ég fékk mörg villiandaegg og veiddi mikinn silung, en þetta voru kurteis- ir menn og rengdu ekki það, sem ég sagði. En þeir létu f ljós, ag líklega mundi bæði vera gott og skemmti- legt að vera bóndi á íslandi. Hrædd- ur er ég þó um, að þeim hefði brugðið við ýmislegt, ef þeir hefðu átt að skipta og stunda búskap hér á landi á þeim árum, því að ekki duldist mér, að dönsku bændurnir stóðu okkur að ýmsu leyti miklu framar um þessar mundir Ekki sízt vegna marg- víslegra rannsókna, sem gerðar höfðu BÆRINN IÐA er á millj hárra hóla norðaustanvert við Vörðufell, nokkru vestar en Stóra-Laxá samein- ast Hvítá. En Hvítá rennur þarna til vesturs, áður en hún beygir til suð- urs vestan við Vörðufell. Bærmn er nokkurn spöl — 800-900 metra — frá árbakkanum að sunnanverðu. Þar hefur verið tvíbýli svo lengi sem vitað er. Næstu bæir handan árinnar eru Laugarás, læknissetrið, og Skál- holt. Hjá Laugarási er nú gróðurhúsa þorp. Ferjustaður hefur verið á Iðu- hamri frá ómunatíð. Þar fellur áin í þröng milli blágrýtisklappa. Nú er þar komin traust og falleg brú, sem léttir þungri kvöð af Iðubúum og er ómetanleg samgöngubót og öryggi héraðsbúum, ásamt nýlega gerðum vegi að henni báðum megin. Klukkan er sex. Alllangt er til birtunnar. En hennar mátti ekki bíða, því að ekki mun morgunninn verða of langur. Ég á að fara með mjólkina í dag, og það er um tólf kilómetrar suður á þjóðveginn, en þar er mjólkurbíllinn um klukkan níu. Út er farið og hestunum færður sinn morgunverður. Síðan er skropp- ið í fjósið og kúnum gefinn sinn skammtur. Að því loknu er gengið í bæinn, þar sem ilmandi, sjóðheitt kaffi er tilbúið, ásamt vel útilátnum bita. Ekki má doka. Mjólkurbrúsarnir eru látnir á vagninn og bundnir vand- lega. Hrossin, Tinna og Blesi, eru leidd út, hnakkur og aktygi lögð .á. Sambýlismaðurinn spennir fyrir með mér. Svo er lagt af stað, — niður að verið í þágu landbúnaðarins og margs konar tækni, sem þeir höfðu yfir að, ráða við bústörfin. En þetta var fyrir fjörutíu og tveimur árum, og hvað þeir standa okkur miklu framar nú, er mér ekki kunnugt. Sjaldan kann þag góðri lukku að stýra fyrir bændur að yfirgefa bú sín til langframa. Eg hafði líka ætjað mér að kanna fleiri stigu, áður en heimleiðis yrði haldið, sem óumflýj- anlega hlaut að verða með vordög- unum. Eftir rúmlega tveggja mánaða dvöl í Langalandi varð ég því ag kveðja það góða fólk, sem ég hafði komizt í kynni við þar. Hvítá, austur með henni og svo suð- ur Laxárbakka. Jörg er alhvít, snjóhreytingur og stinningsvindur af norðaustri. Illt er að greina loft frá láði, og enn þá verr sjást ójöfnur á veginum, ef veg skyldi kalla: Þetta er niðurgrafin moldargata, sums staðar vatnspollar með nýlögðum ís, sem brotnar undan fótum og hjólum. Þag er komið við á nágrannabænum o.g mjólkurbrús; tek inn þar. Áfram mjakast. Tinna gamla held- ur götunni, þótt lítil skil sjáist, það er öruggt. Snjókoman fer vaxandi, og seint birtir. Og loksins er komið að brúsapallinum, skammt fvrir sunn- an Reyki. Enginn er kominn og eng- in bílför sjáanleg. Nú verður að bíða eftir tómu brúsunum, og svo er von á einhverjum vörum. Biðin verður nokkuð löng, auðvitað er snjórinn og bylurinn farinn að tefja bílinn. Fleiri mjólkurpóstar koma að pallinum. — Hestarnir jóðla heytugguna úr haus- pokum sínum og virðast rólegir. Mað- ur verður að berja sér, svo að hlýja haldist í skrokknum. Og loksins grill ir í eitthvert ferlíki í gegnum snjó- kófið. Bíllinn stanzar, allur uppfennt ur. Bílstjórinn kemur út og hefur hröð handtök. — Það er vont að keyra núna — segir hann, þag sér ekki fyrir vegköntunum, nema á stöku stað, allt ein blindandi, grá- hvít mugga. Það gengur vei og fljótt að taka á móti því, sem kemur, og ganga frá öllu á vagnana, enda hjálpar hver öðrum, þeir sem þarna eru í sömu erindum. Reykjabóndinn býður okk- ur að skreppa inn og þiggja eitthvað volgt — að minnsta kostj veitir þehn ekki af, sem lengst eiga heim, að fá kaffisopa. Þetta er þakksamlega þegið og tefur lítið, því að húsfreyj- an veit, hvað bezt kemur sér, enda oftast heitur ketillinn á bænum þeim. Heimferðin gengur sæmilega, þótt veðrið sé slæmt og færð fari versn- andi. Strax er hrossunum komig í hús og Ijúffengt hey látið í stallinn, svo eí farangur tekinn af vagninum og hvað eina látið á sinn stað. Að því búnu er gengið í bæinn. Gott er að koma inn í hlýtt húsið og setjast að vel búnu matborði. Matarlystin er góð, en ekki má lengi sitja. Strax verður að fara út aftur. Sauðféð hef- ur elckert fengið enn. Konan hefur lokig fjósaverkum og mjöltum, eftir að ég fór.. 236 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.