Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Page 13

Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Page 13
Svipmynd frá hálendinu i Austur-Kongó. un við landsmenn og sló eign sinni á allt óræktað land. Innfæddum var gert að safna fílabeini og gulli fyrir félagið og urðu að hlýða öllum boð- um þess og bönnum. Þegar mótmælunum gegn þessum stjómai'háttum fór sífellt fjölgandi, sá Leopold þann kost vænstan að láta af stjórn Kongós og liafa sig á brott með þann ágóða, sem orðinn var. Eft- ir dálitlar vangaveltur tók stjórn Belg íu við landinu og gerði að nýlendu sinni. Þetta var árið 1907, tveimur árum fyrir andlát Leopolds II. Hér verður ekki rakin saga nýlendu stjórnar Belgíu á Kongó, sem stóð í 53 ár. Efttr síðari heimsstyrjöldina fóru Kongóbúar eins og aðrir Afríkumenn að una yfirráöum erlendra manna verr en áður. Kröfurnar um sjálfstæði urðu æ háværari. Belgíustjórn stakk við fótum eftir mætti, en allt kom fyrir ekki. Sama sagan gerðist í Kon- gó og áður hafði geizt í öðrum lönd- um Afríku og enn er að gerast í Afr- íku. Nýlenduveldið féllst að lokum á að veita nýlendunni sjálfstæði. 30. júní 1960 var því hátíðlega lýst yfir í Leopoldville, höfuðborg lands- ins, að lýðveldið Kongó hefði verið stofnsett. Áður höfðu þingkosningar verið látnar fara fram í landinu, for- seti kjörinn og ríkisstjórn skipuð. í Leopoldville var mikið um dýrðir þennan dag, og viðstaddur hátíða- höldin var Baldvin konungur Belgíu, tákn þess, að skílnaðurinn færi fram í bróðerni og vináttu. Atburðarásin varg hröð eftir að sjálfstæðinu hafði verið lýst yfir 30. júní. Óeirðir brutust út á nokkrum stöðum í iandirm, og 10. júlí hertóku sveitir belgískra fallhlífarhermanna Elizabethville, höfuðborg námufylkis- ins Katanga, auðugasta hluta ríkisins. Daginn eftir. 11. júlí, lýsti Tshombe, forseti fylkisstjómarinnar í Katanga, því yfir, ag Katanga væri sjálfstætt ríki og í engum stjómarfarstengslum við Kongó. 12. júlí fóru þeir Kasawu- bu forseti og Lumumba forsætisráð- herr'a þess á leit við Sameinuðu þjóð- irnar, að þær veittu rikisstjórninni hernaðaraðstog við að koma reglu á f landinu. 14. júlí hélt öryggisráðið fyrsta fund sinn um málefni Kongós (en þeir áttu eftir að verða fleiri), og á þeim fundi var skorað á Belgíu að kalla heim hersveitir sínar þar í landi og jafnframt samþykkt ag verða við tilmælum ríkisstjórnar Kongós að senda þangað herlið. Daginn eftir, 15. júlf, komu fyrstu hersveitir Samein- uðu þjóðanna íil Kongó. Á þeim tæpu þremur árum, er síð- an hafa liðið, hafa miklir atburðir orðið í Kongó og mörg harmsagan gerzt þar. Enn hafa Sameinuðu þjóð- irnar þar herlið, en í flestu öðru til- liti hafa þar orðið miklar breytingar. Katanga hefur nú aftur verið samein- uð Kongó og stjórnarfar landsins er T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ að komast á réttan kjöl. En sá ár- angur hefur kostað miklar fórnir og mikið blóð. Alvarlegasti þrándurinn í götu þess, að unnt yrði að friða land- ið og koma þar á nokkurn veginn eðli- legu mannlífi, var án efa sjálfstæðis- tilraun Katangafylkis. Af þeirri til- raun var ekki látig fyrr en eftir blóð- uga bardaga, umfangsmikið stjórn- málalegt iaumuspil allra stórvelda og margra smáTikja, morð fyrsta for- sætisráðherra landsins og fall fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Fyrir skömmu var staddur hér á landi maður, sem kynnzt hafði þessu nafntogaða landi af eigin raun. Þetta var sænskur maður, sem gegnt hafði henþjónustu í liði Sameinuðu þjóð- anna í Kongó — Ég náði tali af hon- um á heimili Eggerts Kristjánssonar póstmanns, en Eggert er kunningi Sví ans og var gestgjafi hans þá fáu daga, sem hatin stóð við hérlendis. Freddie Persson heitir hann og var leutenant að nafnbót, myndarlegur Vermlendingur, hávaxinn og hermann legur, ljós yfirlitum og einbeittur á svip, — greinilega góður fulltrúi nor- rænna manna meðal framandi þjóð- flokka. — Við tókum tal saman um Kongó. — Ég var nærri þrjú ár í Kongó og líkaði þar að flestu ágæta vel. Landið er gott, hreinasta pai'adís, perla meðal landa. Að minnsta kosti í friði og fyr- ir venjulegt fólk. Það er kannski dá- lítið annað fyrir hermann, sem getur þurft að eiga í ófriði, en yfirleitt fannst mér gott að vera þar. Hitann í Kongó er alls ekki eins örðugt að þola og ætla mætti fyrir fram. Lofts- lagið venst fljótt og eftir hálfs mán- aðar dvöl er hitinn alls ekki lengur til neinna óþæginda. Það er að vísu ákaflega heitt og rakt loft í Leopold- ville, en annars staðar er þetta betra. Margir staðir í Katanga, sem ég var talsvert í, t. d. herstöðin í Kamina, eru allhátt yfir sjávarmál, og fyrir bragðið er þar svalara en á láglend- inu. Veðráttan þar ,er álíka og á fögr- um hásumarsdegi í Svíþjóð. — En andrúmsloftið var óstöðugt. Það lá þarna alltaf einhver órói í loft- 445 .

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.