Tíminn Sunnudagsblað - 19.05.1963, Blaðsíða 14
Þar setn sfeinninn stendur, bar fundum þeirra Livingstones og Stanleys saman
25. nóvember 1871. Freddie Persson sést hér virSa minnismerkiS fyrir sér.
inu. Ég var í Katanga haustið 1961,
og þá var barizt, bæði í september,
— um það leyti, sem Hammarskjöld
fórst •— og aftur í desember. Þetta var
algert stríð, ný reynsla fyrir Svía.
Þana fengum við að kynnast því,
!hvað stríð raunverulega er. Það er
hryllilegt, viðbjóðslegt, og það var
kraftaverk að ekki skyldu fleiri falla
úr liði Sameinuðu þjóðanna. Það staf-
aði af því einu að hermennirnir frá
Katanga kunnu ekki að skjóta. Það
var ákaflega erfitt að skipuleggja þá
í hersveitir, og þeir létu ekki að
stjórn. Hvítu málaliðarnir voru ekki
svo margir eftir þá, og þeir gátu ekk
ert ráðið við' þá innfæddu. Þeir flúðu
strax við minnstu mótspyrnu. Þeir
voru bæði huglausir og flóttagjarnir,
og það bjargaði okkur.
Hér vík ég talinu að bók eftir
O’Brien, írskan mann, sem á þessum
tíma var æðsti maður Sameinuðu þjóð
anna í Katanga, en lenti síðan á önd-
verðum meið við yfirboðara sína og
var látinn hverfa frá störfum. Hann
skrifaði bók um dvöl sína og störf í
Kongó, umdeilt verk, og kannski ekki
traust heimild í öllu, sé það mælt eft-
ir hlutleysiskröfum ströngustu sagn-
fræði, en alll um það fróðleg og
fjörlega skrifuð bók um atburði, sem
höfundur tók sjálfur miikinn þátt í. —
Ég nefni þessa bók við Persson og
spyr, hvort það sé rétt, sem O’Brien
segi, að hermenn frá Norður-Rhod-
esíu hafi átt mikinn þátt í bardögun-
um.
— Það getur vel verið, að það sé
rétt, að þeir hafi komið yfir landa-
mærin á nóttur.ni og skotið, en horf-
ið heim, meðan dagur var á lofti. Við
gátum ekki viiað svo vel alltaf, hverj-
ir það voru, stm héldu uppi nætur-
skothríðinni. Bók O’Briens er persónu
leg, en það er talsvert til í því, sem
segir vxða, t.d. um samvinnuna milli
hersveita frá ó.iíkum löndum. Hún
var mjög góð, meðan friður var. Þá
kom ekki til neinna árekstra, en það
var ákaflega erfitt að samræma og
skipuleggja hernaðaraðgerðir. Her-
mennirnir voru vanir ólíkum aðferð-
um og höfðu hlotið annars konar
þjálfun í einu íandi en öðru. Þar við
bættust svo tungumálaerfiðleikar. Það
im
.
'-:: -:- - - - :•: :■ -
Menn af Watbfsikyni í flótfamannabúðum í Burundi. Watutsar eru einhverjir hávöxnustu menn, sem um getur á jörSunni.
Margir þeirra eru meira en tveir metrar á hæð.
446
L~
T t M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ