Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1963, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1963, Blaðsíða 7
Ég var i hlekkjum um þriggja mánaða skeið eða aðeins lengur. Fyrsta mánuðinum varði ég til andlegqa œfinga eins vel og ég gat gert þær eftir minni, og ég varði fjórum og stundum flmm klukkutímum á dag til hugleiðinga. Allan þennan tíma skynjaði ég góð leika Guðs, og ég reyndi það ör- læti, sem Hann sýnir hinum þjáðu þjónum sínum, þegar Hann hefur svipt þá öllum jarðneskum þsegind- um. Nokkrir dagar liðu, áður en óg var tekinn og yfirheyrður aftur. — Meðan ég var látinn afskiptalaus yfirheyrðu þeir og spurðu Richard Fulwood (svikarinn sagði þeim, að hann væri þjónn minn) og Litla- Jón, sem tekinn var fastur samtím is mér. Þeir reyndu að tæla þá og múta þeim, en þeir fengu þá ekki til að segja orð, sem gæti komið öðrum í vanda. Þá var gripið til hótana og valdbeitingar. En kraft- ur Heilags anda, sem var með þeim, var of mikill, til að menn fengju yf- irunnið hann. 1 þrjár klukkustund ir (held ég) voru þeir báðir hengd- ir upp með handleggina í járn- hlekkjum og líkamann í lausu lofti, — sársaukafull refsing, sem teygir á limunum, svo að engin leið er að þola það. En þetta kom að engu sögunni, enda gerir hann að jafn- aði lítið úr líkamlegum þjáningum sínum í fangavistinni. haldi. Hvorugur þeirra sagði orð, sem hægt var að nota í sakargift- ir gegn nokkrum okkar. Fagurgali, hótanir og misþyrmingar reyrídist jafn árangurslaust til að fá þá til að nefna nokkurn stað, þar sem einhver okkar hefði búið á, eða nokkurn mann, sem hefði hitt okk ur eða verndað. Þeir græddu ekkert á þessum tveimur mönnum, Litla-Jóni og Richard Fulwood, og ekki heldur fékkst hið kaþólska þjónustulið gestgjafa míns til að viðurkenna neitt, ekki einu sinnl, að það þekkti mig. Og þetta varð til þess, að þeir gáfu smám saman upp vonina um að þeim tækist að sölsa undir sig allar eigur og tekjur gestgjafa míns. Alltaf öðru hverju, þegar eitthvað nýtt kom upp gegn mér, var ég kallaður til yfirheyrslu. 1 eitt skipti var kallað á mig til að máta föt, sem höfðu fundizt í húsi gestgjafa míns. Svikarinn hafði sagt þeim, að ég ætti þau og þegar ég fór í þau, voru þau eins og sniðin á mig (þau höfðu líka verið saumuð á mig), en ég neitaðl að viður- kenna, að ég ætti þau. Young rauk þá upp í bræði og sagði, að ég væri bæði þrjózkur og helmskur. „Þá er Faðir Southwell eitthvað skynsamari", sagði hann. „Hann var elns og þú, þvermóðskufullur fyrst. Nú er hann fús tll að taka sinnaskiptum og vill tala við ein- hvern lærðan mann“. Eg svaraði: „Eg trúi ekki, að Fað- ir Southwell vilji gera það fyrir einn eða annan að falla frá trú sinni eða vilji læra af villutrúar- mönnum, hverju hann skuli trúa. Hann kann vel að hafa kallað á einhvern guðfræðing til rökræðna. Það gerði Faðir Camplon og marg- ir aðrir hefðu gert hið sama, ef þér hefðuð leyft það og fengið til hlutlausa dómara". Young tók biblíuna upp og kysstl hana. „Ég sver við þessa bók, að South- well hefur boðið ssettir með það í huga að taka við trú okkar". „Ég trúi þvi ekki, að hann hafi gert neitt slíkt“, svaraði ég. „Hvað er þetta“, hrópaði einn viðstaddra. „Trúið þér ekki Young, þegar hann sver, að hann segi satt?“ „Ég trúi honum ekki og vil ekki trúa honum", svaraði ég. „Ég heí' meiri trú á staðfestu Föður South- well en nokkru þyí, sem Young seg- ir. Án efa telur hann sig hafa rétt til að gefa yfirlýsingar sem þessa til þess að blekkja mig“. „Alls ekki“, svaraði Young. „En viljið þér taka sinnaskiptum, ef Southwell hefur gert það?“ Með „sinnaskiptum" eiga þeir við það að aðhyllast hin vansköp- uðu trúarbrögð þeirra. „Að sjálfsögðu ekki“, svaraði ég. „Ég held mér ekki frá villutrú og forðast samneytl við villutrúa-rmenn af því að hann eða einhver annar TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 535

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.