Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1963, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1963, Blaðsíða 16
tfrá hirðinni vegna þess, að móðir hennar hafði fallið í ónáð, tungan var skorin úr hennj 0g hún dæmd í útlegð til Síberíu. Furstinn sagðist ihafa viljað kvænast dótturinni, en sætt sig við að taka Katrínu, af þv; að frænka hans óskaði þess. Katrín hlust »ð'i og roðnaði óg undraðist, hve ó- gætinn hann var í tali og dómgreind- arlítill. Nú voru Katrínu fengnir þrír kenn- arar, einn átti að uppfræða hana í grísk-kaþólskri trú, annar að kenna henni rússnesku og sá þriðji að kenna henni að dansa. Hún fór fram úr rúminu ánæturnar til að íæra rúss- mesku lexíurnar, ofkældist og fékk lungnabólgu.Læknarnir héldu, að hún væri með bóluna og vildu taka henni blóð, en því harðneitaði móðir henn- ar og ávítaði telpuna þegar hún stundi af kvölum. Á fimmta degi kom drottn iiigin úr ferðalagi, þá var Katrín með vitundarlaus og læknarnir og móðir hennar í háa rifrildi. Drottningin skip aði umsvifalaust að láta taka Katr- ínu blóð og segist hún þá strax hafa rankað við sér, en í 27 daga var hún miili heims og helju. Drottningunni gazt ekki að framkomu móður Katrín- ar og ekki bætti úr skák, þegar henni var sagt frá því, að meðan Katrín var sem veikust, sníkti móðir hennar af henni kjólefni, sem henni hafð'i ver- ið gefið fyrir Rússlandsferðina. Þegar Katrin loksins komst á fæt- ur, segir hún, að fáum hafi verið upp- lyfting í að sjá sig. Hún hafi verið horuð eins og beinagrind og stækkað' svo að andlitsdrættirnir tognuðu. — Hafði hún misst hárið og var bleik sem nár. Um það bil mánuði seinna kom Lestocq greifi til Katrínar og sagði henni væri sæmst að' taka saman fögg ur sínar, það ætti að senda hana heim, móðir hennar væri fallin í ó- náð. Henni virtist stórfurstanum myndi ekki falla sérlega þungt að sjá henni á bak og segir, að sér hafi svo sem verið sama um hana, en ekki um kórónu Rússlands. Orsökin að hessu uppþoti var, að móðir Katrínar hafði rætt ógætilega við fulltrúa Frakkakonungs við hirðina, en drottn ingin fyrrgaf henni þó eftir mikla sennu. Næst kom að því að Katrín átti að skirast til grísk-kaþólskrar trúar og trúlofun hennar og stórfurstans skyldi opinberuð. „Menn sögðu, að ég hefði borið fram trúarjátningu mína mjög vel. Ég las á rússnesku, sem ég skildi ekki eitt orð í, með fullkomlega réttum framburði, fimmtíu fólíosíður — hátt og skilmerkilega, og fór svo með trúarjátninguna utanbókar. Þegar ég var búin, sá ég, að margir viðstaddir grétu, þeirra meðal var drottningin. Ég stillti mig og fékk hrós fyrir. Á eftir leiddi drottningin mig til altar- is og þegar við komum úr kirkjunni, gaf hún mér hálsband og brjóstskraut úr brilliantsteinum. Um kvöldið fór- um við, án þess að á bæri, til Kreml, gamallar hallar, sem keisararnir höfðu búið í. Þar var mér fenglð her- bergi svo hátt uppi, að ég eygði þá naumast, sem voru á gangi fyrir neð- an múrana. Daginn eftir átti að opinbera trú- lofun okkar. Snemma um morguninn var mér færð mynd drottningarinnar, skreytt demöntum og nokkru síðar mynd stórhertogans í sams konar um- gerð. Stuttu seinna sótti hann mig sjálfur og við fórum saman til drottn ingarinnar, sem gekk fremst í skrúð fylkingunni, skrýdd kórónu og keis- araskikkju, undir silfurhimni, sem átta hershöfðingjar báru“. Um sumarið' fór drottningin og hirð in til Kiev og gekk á ýmsu í ferðalag- inu og féllu margir í ónáð, og rógur og njósnir voru iðkaðir af kostgæfni. Um haustið var aftur farið til Moskva og þar skemmtu menn sér við óper- ur, leiksýningar og grímudansleiki. Katrínu þótti gaman að dansa, enda barn að aldri. Stundum skipaði drottn ingin svo fyrir. að á grímudansleikj- unum skyldu karlar vera í kvenfötum og konur í karlmannsfötum og voru karlmennirnir yfirleitt heldur fúlir 1 skapi við þau tækifæri, enda óvanir að bera sig um í krínólínum. Eitt siim segist Katrín hafa verið að dansa „polonaise" við Sievers kammerherra, sem var í kríólínu, sem drottningin hafði gefið honum. Hann sveiflaði sér svo rösklega, að pilsið hans skellti greifafrú, sem var fyrir aftan hann og hún skellti aftur Katrínu, sem valt undir krí'nólínunia á Sievers. Hon um varð svo hverft við, að hann datt og þaxna lágu þau þrjú í þvögu og Katrín uppundir pilsi dansherrans. —• „Ég var að deyja af hlátri“, segir hún, „og reyndi að rísa á fætur, en að lokum varð að koma okkur til hjálpar því í hvert sinn og eitt okk- ar reyndi að rísa á fætur, ultu hin tvö aftur um koll“. En þó mikið væri um samkvæmi og skemmtanir, var lífið ekki eingöngu leikur fyrir Katrínu. Einu sinni á leik sýningu sendi drottningin Lestocq til hennar til að skamrna hana fyrir hvað hún væri orðin skuldug. Hún lét strax næsta dag færa sér reikningsuppgjör og sá að hún skuldaði sautján þúsund rúblur. Drottningin hafði gefið henni fimmtán þúsund rúblur áður en hirð in fór til' Kiev og kistu fulla af lé- legum kjólefnum, en ætlazt var til að hún klæddi sig ríkmannlega. Hún reyndi nú að gera hreint fyrir sínum dyrum og skuldaði ekki nema tvö þúsund, þegar frá öllu var gengið, en ástæðan til skuldasöfnunarinnar var sú, að hún kom illa búin heiman að bæði, að fatnaði og líni, en við' hirð- ina var þess krafizt, að skipt væri um klæðnað þrisvar á dag. Henni hafði verið' sagt, að í Rússlandi skipti miklu máli að gefa gjafir til vinsælda og svo hafði henni loksins verið fengin hirðmey, sem var ofsalega eyðslu- söm og hafði út úr henni stórfé. Þar að auki varð hún alltaf að reyna að blíðka móður sína með gjöfum, því hún gerðist æ viðskotavenrí, og jafn- framt kólnaði vináttan milli hennar og drottniingar. Þar að auki þoldi hún illa, að Katrín skyldi sett sér ofar; samkvæmt hirðsiðunum. Er ljóst, að Katrín átti stður en svo skjól hjá móður sinni. En brátt fór að bera á miðqr æski EN BRÁTT FÓR AÐ BERA Á MIÐUR ÆSKILEGUM EIGIN- LEIKUM HJÁ UNNUSTANUM, STÓRFURSTANUM, SEM EKKI FÉKK ÞÁ MENNTUN, SEM TIL VAR ÆTLAZT OG REYNDIST 1 OFSAFENGINN í SKAPI. - HANN VEIKTIST AF MISLINGUM OG SEI|NA AF BÓLUNNI OG AFSKRÆMDIST í ANDLITI AF 544 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.