Tíminn Sunnudagsblað - 18.08.1963, Blaðsíða 20
Efrt myndin heitir Etiopia
heildarstærS 300x235 cm.
— myndofin 1935; heildarstærð 155x390 cm„ ert sú neSrl Grámann
— myndofln 1960—61; —
stödd burtu táknast með efst settri
mynd hennar jafnstóiri þeirri neSstu,
fjarlægðarskynjun sú sama og hjá
börnum og frumsfcæSum þjóðum sum-
um, fjarvíddarleysið þénar sem fjar-
íægðarleysi og þetta kunnátfculeysi er
hinn sterki leikur í myndvef, þarna
óvart?
Umrenningskonan er ekki sú eina,
sem boðið er inn fyrir þröskuldinn.
Þær fara þar um garð fleiri konurn-
ar og hinkra við í vefjunum. Hanna
Kyggen saoisamar sjálfa sig konum
tímanna liðnu, bý.ður þeim í bæinn
sinn og siær um þær vef umhyggju.
Óskipt ást sjálfrar hennar skerpir
innsæið, slær ljósi á örlög annarra
kvenna, saga konunnar er eigin saga,
sjálf orðin tengiliður í ættanna blandi
yrkir hún í ullina um Evudæturnar
hinar, þær alvöldu, þær dœmdu, þær
bersyndugu, slær vef um móðurina í
mannlífinu og staðsetur hana á ör-
landinu, slær vef um móður náttúru
og tdeinkar sjálfri sér, vefur urta-
garð örlands inn í daglegt iíf þessarar
fámennu fjölskyldu, sem á afkomu
sína undir höfuðskepnunum.
í einum þessara vefja notar Hanna
Ryggen í fyrsta skipti vitandi vits
episkan frásagnarirnáta í myndvef,
bekksetur í tilbrigðum teygðar mynd-
eindir í endurstöku láréttrar röðunar.
Þetta er frásögnin af daglegu lífi Ör-
landsbyggjanna. Hún lýsir þar af ein-
lægri ástúð væntumþykjunni til hús-
dýranna, þetta er óður til móður jarð-
ar, til fábrotins lífs úthjarans, röð
einfaldrar myndasögu af viðburða-
leysi.
En einnig í þessum friðsæla mynd-
vef, þar sem samhljóman náttúru,
dýra og manna er lýst svo nærfærið
í björtum, samræmdum litum kyrrð-
668
T í M I N N - SUNNUDAGSBLAD