Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Page 6

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Page 6
í norðvesturátt frá Sandvíkureyj- um, sem sumir kjósa fremur að nefna Hawaii upp á útlenzku, ligg- ur nær tvö þúsund kílómetra löng keðja af smáeyjum og skerjum. Eyj- arnar næst Sandvíkureyjum eru .skörðóttar klettaeyjar, leifar af fomu landi. Fjær eru eldfjallatind- .arnir löngu komnir niður fyrir sjáv- armál, og þar væru allar minjar um land horfnar, ef ekki hefðu stöðugt hlaðizt kórallar ofan á fjöllin og piyndað litlar sandeyjar, rif og lón þarna á miðju Kyrrahafi. Mannaferð- ir hafa lengst af verið litlar á þessum slóðum, og það er eflaust því að þakka, að þarna lifa einhverjar sjald séðustu skepnur á jarðríki. Munkselirnir eru einu tegundir eyrnalausra þ. e. venjulegra sela, sem , lifa í hlýjum höfum. Ættingjar þeirra halda sig nær eingöngu í köld- um sjó. Af munkselum er vitað um þrjár tegundir. Miðjarðarhafsmunk- selurinn (Monachus monachus) var alkunnur hinum fomu menningarþjóð um við Miðjarðarhaf, en nú eru pkki eftir nema litlar leifar stofnsins á einangruðum stöðum við Miðjarðar- haf og Svartahaf, við Madeira og Kanaríeyjar og á norðvesturströnd Afríku. Karabíski munkselurinn (Monachus tropicalis), sem Kólum- bus uppgötvaði fyrstur, var áður al- gengur við Bahamaeyjar og út af Florída. Hann er að öllum líkindum útdauður með öllu. Þriðja tegundin (Monachus schauinslandi) lifir við fjarlægari enda Sandvíkureyjakeðj- unnar. Hvernig stendur á því, að munksel- ir eru hvergi til nema á þessum stöðv- um, sem svo er langt á milli? Því er erfitt að svara með fullri vissu, en vísindamenn telja, að saga teg- undarinnar og selaættarinnar sé eitt- hvað á þessa leið: Fyrstu selirnir eru komnir af rándýrum, svipuðum otr- um, sem lifðu í vötnum í Asíu á míósentímanum fyrir um það bil 20 milljónum ára. Þegar vötnin fóru smáminnkandi, færðu forfeður sel- anna sig til strandhafanna. Sumir héldu norður og komust allt norður til íshafsins. Afkomendur þeirra eru norðurhafaselir þeir, sem nú lifa- Aðr- ir fóru til Tethyshafsins, sem er und- anfari Miðjarðarhafsins, og frá þe’m eru munkselirnir komnir (svo og suð- urhafsselimir og sæfílarnir). Munkselirnir hafa að öllum líkind- um breytzt minnst allra sela síðan á míósentímanum. Þeir hafa ekki þró- að með sér þau sérstöku einkenni, sem frændur þeirra, er héldu til kald- ari hafa, urðu að ávinna sér. Munk- selurinn hefur borizt út frá Miðjarð- arhafinu, -bæði vestur um haf til Karíbahafsins og austur um Kyrra- hafið til Sandvikureyjaklasans. Tengi- liðirnir milli þessara þriggja svæða liaf? svo fljótlega dáið út, og þá hafa þessir þrír hópar þróazt hver á sinn hátt, svo að nú má telja þá þrjár sérstakar tegundir. Um árþúsundir hefur munkselur- inn lifað óáreittur í eyjaheimkvnn- Á MIÐJU KYRRAHAFI LIFIR DÝRATEGUND, SEM AÐ- UR VAR AÐ ÞVÍ KOMIN AÐ DEYJA ÚT, EN ER NÚ AÐEINS FARIN AÐ RÉTTA VIÐ AFTUR. ÞAÐ ER MUNKSELURINN, EINHVER FORNLEGASTA OG SJALDGÆFASTA SELATEGUND, SEM UM GETUR í HEIMINUM FRÁ ÞEIRRI MERKILEGU SKEPNU ER NOKKUÐ SAGT Í ÞESSARI GREIN. [ 246 T I M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.