Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Síða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Síða 14
izt að lögum, með því að hann hefði fullnægt öllum formsatriðum eins og íhér er 6kráð, og afturkallaði alla ftrrri erfðagerninga eða yfirlýsing- ar um síðasta vilja sinn, hvort slíkt finnst skráð af honum einum eða með tilstyrk annarra fyrir þcnnr.r, dag, þar eð það er hans vilji og á kvörðun, að allir slíkir gernin.gar og ihver einstakur þeirra skuli álítast sem ógerðir“. Nú er sýnt, að hina næstu daga hefur prestur lúterska safnaðarins vitjað Björns, því að fjórum dögum síðar hefur verið bætt við svolátandi ákvæði: „Með skírskotun til fyrirvarans gefur hann eftir undirskrift lúterska söfnuði 200 Höfðaborgardali“. Degi síðar, hinn 4. dag janúaimán aðar, andaðist Bjöm. IV. Björn hefur sjálfsagt mælt svo fyrir, að fregnum um andlát hans yrði komið til Kaupmannahafnar o,g vísað þar til Gríms Thorkelíns, móð- urbróður síns. Ræðismaður Dana i Höfðaborg, Hancke að nafni, lét það ekki dragast úr hömlu. Fáum dög um eftir dauða Björns skrifaði hann skipstjóra einum í Kaupmannahöfn Kröyer að nafni, og bað hann að snúa sér til Gríms. Lét hann þess getið, að Björr*- heíði látið ættingjum sínum á íslandi eftir talsverðan avf seen hann bauðst til að ná út og koma áleiðis, ef hann fengi lögmætt um boð til þess Lagði hann til ýmis ráð hversu hyggilegast myndi að haga tilkalli til arfsins . Grímur Thorkelín var orðinn ald?- aður maður og nafði legið sjúkur á sjöunda n.ánuð, er Kröyer skip stjóri flutti honum þessar fregnir Samt sem áður tók hann sér penna í hönd í rúmi sínu og skrifaði Bjarna amtmanni Þorsteinssyni á Arnar stapa. Það bréf fékk Bjarni með vor skipunum 1827. Sigríður, móðir Björns, var lát- in, þegar hér var kocnið, og má ráða það af erfðaskránni, að honum hefur verið kunnugt um það. Syst- kini hans voru aftur á móti sjö á lífi og búsett víðs vegar um Dali og Snæfellsnes — Jór, bóndi á Gunnars stöðum, Hallgrímur bóndi á Dunk árbakka, Bjarni'bóndi í Lækjarskógi, Magnús, er síðar gerðist bóndi í Skálholtsvík á Ströndum, Sigurður bóndi í Arnartungu í Staðarsveit Þóra vinnukona á Skarði, Elísa bet húsfreyja á Gunnarsstöðum og Ragnhildur er átti heima úti í Rifi. Lét Bjarni amtmaður ekki und ir höfuð leggjast að tjá þeim öllum tíðindin. Var nú ráðgazt um, hvað gera skyldi, og varð það ofan á, að sex systkinanna veittu þeim bróðurn- um, er átti heima næst amtmann- um, Sigurði í Arnartungu, skriflegt og innsiglað umboð sitt til þess að kalla eftir arfinum. Áritaði Skúli sýslumaður Magnússon á Skarói þetta uimboð til frekari staðfestu. Sigurður framseldi síðan Bjarna amt manni umboðið, en hann sneri ser til kansellísins danska, bað um að- stoð þess í málinu og stakk upp n því, að sendiherra Dana í Lundúu- um yrði falið að grennslast eftir því, hvort þeim systkinum bæri arfur- inn og hve mikið fé væri um að tefla. V. Auðvitað gat ekki hjá því farið að það vitnaðist fljótt vestan lands, að þau Hlíðarsystkin ættu í vænd- um arf eftir bróður sinn. Bárust út hinar mestu tröllasögur um auð þann, er Björn hefði dregið saman, og dró það ekki úr, að sum syst- kinanna þóttust hafa sanna sögu a: því, að hann væri firnamikill. Meðal annars var það haft fyrir satt, ao hann hefði átt átján þúsund spesíur í útláni í Kaupsnannahöfn og ekki verið greiddir vextir af því láni i tíu ár. Gerðist margur til þess að öfunda systkinin en jafnframt óx virðing þeirra til muna, er það komst í almæli, að þau myndu innan tíðar verða stórrík. Hvar sem þau fóru, biðu þeirra framréttar hendur fólks, sem vildi koma sér vel við slík óska- börn gæfunnar, og allir höfðu uppi heillaóskir og margvísleg fagurmæli. Hér hafði skipazt svo veður í lofti, að það var ævintýri líkast. Bræðurn ir voru samstundis dubbaðir upp ) signora og settir til jafns gildusta nefndarbændum. Sum Hlíðarsystkina höfðu búið við fátækt, og ekkert þeirra var meira en bjargálna. Nú hefði mátt ætla, að fólk, sem lengi hafði þraukað þol inmótt og ekki látið baslið buga sig, hefði getað þreyð nokkur misseri við sömu kjör og áður í von um það, að senn rættist úi, svo að um mun aði. En þessu virðist hafa verið öðru vísi farið. Vitundin um hin mikl:i auðæfi virðist hafa gert systkinin, að minnsta kosti sum þeirra, ósáttari við lífið en áður: Fjárvonin olli því, að þau fundu meira til þess en fyrr, hve að þeim kreppti. Og undir niðri brann þessi spurning. Hvernig skyldi ganga að ná arfinum frá Höfðaborg? Allir vissu, að sá stað- ur var órafjarri, en sumir hafa þó sjálfsagt ,haft óljósa hugimynd um, hvar á hnettinum hann var. Það gat ekki hjá því farið, að nokkur uggur um það, að treglega gengi að heimta arfinn, læddist að mönnum. Það er auðséð, að hina helztu kaup sýslumenn vestan lands hefur fljót- Iega farið að klæja í lófana, þegar þeir heyrðu nefndar hinar svimháu tölur, sem menn báru sér í munn, er rætt var um auð hins látna beykis frá Hlíð í Hörðudal. Þess var þá ekki heldur langt að bíða, að þeir færu að hugsa um, hvernig þeir gætu komið svo ár sinni fyrir borð, að þeir yrðu sjálfir aðnjótandi ein- hvers af þessum auðæfum. En til þess þurfti talsverða kænsku, þó a‘5 sú væri bót í imáli, að bændur voru auðtryggnir við þá, sem voru þeim veraldarvanari. Um þessar mundir var Jón Kol- beinsson kaupmaður í Stykkishólmi, ríkur maður og fremur vinsæll og átti mikil skipti við Dalamenn. Hon- um lék hugur á því, að Höfðaborg- ararfurinn færi ekki með öllu fram hjá honum. Hann var gagnkunnugtir þeim bræðrum frá Hlíð, og munu sumir þeirra, að minnsta kosti Hall- grímur á Dunkárbakka, hafa verið í talsverðri skuld við hann. Upp úr miðjum febrúarmánuði 1828 var Hallgrímur staddur í Stykk- ishólmi, og virðist augljóst, að Jón Kolbeinsson hafi kvatt hann þangað á sinn fund. Sýnt er og, að hann hef- ur verið búinn að erja jarðveginn rækilega — ala á fjárþörf Hallgríms og þeirri tvisýnu, er vsgri á því, að arfurinn næðist, þó að vitanlega væri alls engin reynd komin á það, þar eð vitneskjan um andlát Björns hafði fyrst borizt hingað til lands vorið áður, en málarekstur allur varð að ganga í gegnum margar stjórnar- skrifstofur í Danmörku, Englandi og Höfðaborg, áður en von var urn, að svör fengjust. Að sjálfsögðu hafði Jón Kolbeinsson svipu á Hallgríim, þar sem voru verzlunarskuldir hans, þó að ekkert verði um það sannað, að hann hafi beitt því vopni. Hitt er jafnvel líklegra, að honum hafi dugað fortölur einar og gyllingar til þess að koma ætlun sinni fram. Af því er skemmst að segja, að hinn 18. febrúar gerðu þeir Jón og Hallgrímur næsta furðulegan samn- ing, sem verður að virða Hallgrími til mikillar fákænsku og Jóni til ófyrirleitni í skiptum við þennan hrekklausa bónda. Meginatriði samn- ingsins felast í þeim kafla hans, er hljóðar svo: „1. Ég, Hallgrúmur Magnússon, tek mér hér með fullmektugan og með ráði bræðra minna og fleiri góðra vina áfýsingu innset herra kaup- mann J. Kolbeinsen í öll mín rétt- ugheit til, mín vegna, innkalla og bestýra höfuðstólnum af arfalóði því, er mér ber . . . 2. Ef kapítalinn af mínu arfalóði yrði upp á 6000 spesíur, þá er minn vilji, að 3000 setjist á rentu, annað hvort á kóngsins kassa eða annars staðar, móti gildu hypóteki, 1000 254 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.