Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Side 19

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Side 19
steinum kastað út að því og barið í vatnið með árunum, en þetta er ein- mitt aðferðin til þess að reka þann silung í netið, sem fyrir innan það kann að vera. Þama er svo grunnt, að flárnar á netinu standa upp úr. Engin t'iá hreyfist. í þetta skiptið hefur ekk- ert „komið við". Við höldum nú að þeim endanum, sem byrjað var að leggja, og ég dreg netið tómt inn í bátinn. Þannig höldum við áfram næstu lögn, en þá sjáum við, að flámar fara í kaf öðru hvoru, þrjár til fjórar saman. Það hefur „komið við“, og þá er von um veiði. Þegar ég er um það bil hálfnaður að draga netið, sé ég blika á stóra og fallega bleikju. Eg tek heldur meira í neðri teininn, svo að poki komi á netið fyrir neðan hana, því að ég geri ráð fyrir, að hún sé alveg laus í netinu. Síðan innbyrði ég fenginn, bráðlif- andi og sprettharðan. Svona höldum við áfram fram eftir nóttinni og er- um búnir að fá allmikla veiði. Það er aðeins eftir ein lögn, sem ekki hefur verið reynd. „Oft hafa urriðar verið á þessari lögn“, segir Lalli um leið og ég byrja að leggja netið. Lalli rær nú inn fynr það eins og venja er til, en allt í einu færist netið í kaf um miðjuna. „Urriði!“ verður okkur báðum að orði. Við sjáum snöggvast á sporðinn upp úr vatninu og boðaföllin ganga langt út frá honum, eins og þegar stórum steini er kastað í djúpt vatn. Eg byrja að draga netið hægt og gætilega og því hægar, sem nær dreg- ur veiðinni. Urriðinn hreyfist ekki, og ég sé á módröfnótt bakið rétt unl ir yfirborði vatnsins. Hann er utan við netið aðeins flæktur á tönnunum, svo að með einu snöggu átaki gæti hann rifið sig lausan. Eg halla mér út yfir borðstokkinn og tek báða teinana á netinu, sinn með hvorri hendi, sveifla bvi utan um urriðann niðri í vatninu og innbyrði „snurt- inn“ í einni svipan. Lalli tekur svo við honum og kastar honum fram í barka. Eftir litinn tíma er róið heim á leið. Napur vestankaldi golar á móti okkur, en svo lygnir von bráðar aft- ur. Öll náttúran hefur vaknað við geisla morgunsólarinnar, og alls stað- ar er líf og fjör. Við lendum í svokölluðu Hrauns- nefi, setjum bátinn í naust og teljum silungana, þrjátíu og fjóra, ofan í pokann og iátum urriðann ofan á. Lalli snarar pokanum á bak sér, og við höldum heimleiðis. Eg lötra á eftir, hálfdofinn af kulda eftir hreyf- ingarleysið í bátnum. Blágrár reykurinn liðast upp úr eldhússtrompinum heima. Mamma er farin að hita morgunkaffið. Já, það er margs að minnast fyrir þá, sem lifað hafa hinar fögru vor- nætur við Þingvallavatn, séð fjalla- hringinn brenna í aftanskini hinnar hnígandi kvöldsóiar, og eftir andar- taksstund allt austurloftið í logabáli fagnandi sólstafa nýrrar dagrenning- ar. En næturþokan getur líka verið töfrandi, þegar hún umlykur hólma, nes, víkur og voga í mjúklátum faðmi sínum, dýpkar kyrrðina, sVæfir sil- unginn og blessar starf veiðimanns- ins. En þessi afli hafðist þó ekki með sitjandi sældinni. Margur var blaut- ur, þreyttur og kaldur eftir írekstr. arveiðina. Það tók í bakið að leggja og draga alla nóttina. En slíkt gleymd ist furðu fljótt. Svo kærkomin var blessuð björgin, ljúffengt nýmetið, eftir hinn gamla og fábreytta mat vetrarins. Hin síðari ár, eftir að mark T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 259

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.