Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Page 20

Tíminn Sunnudagsblað - 15.03.1964, Page 20
aður greiddist til Reykjavíkur, var mörgum heimilum hin bezta hjálp að silungssölunni, því að hún var þá oft hinn eini tekjustofn vorsins. Þótt vornæturnar séu Ijúfar við Þingvallavatn, þá er það ekki alltaf jafnblítt á svipinn. í stormum og stórviðrum verður það allt að einu freyðandi brimlöðri og með öllu ó- fært hinum litlu veiðibátum, sem við það hafa verið notaðir. Veiðibátarnir við Þingvallavatn hafa flestir verið litil sjóskip. Þeir voru löngum heima smíðaðir, oft af litlum efnum, enda miðað við, að einn maður réði við þá, bæði á Jandi og vatni. Báran á Þingvallavatni getur orðið nokkuð stór, og hún er alltaf kröpp og brotn- ar mjög. Er því einnig þar gæftaleysi, stundum dögum saman. ísalög Það er gamalla manna m-i, að ekki verði Þingvallavatn alísa fyrir jól, nema vetur leggist snemma að með aftaka írosthörkum. Sú er líka reyndin, að þetta hefur mjög sjald- an komið fyrir í minni núlifandi manna. Þó er þess getið í annálum. Þar er t. d. sagt, að árið 1753 hafi ís komið á Þingvallavatn viku fyrir jólaföstu og iegið á því, þangað til í fimmtu viku sumars. Aftur á móti þykir það bera vott um mjög mildan vetur, ef það leggur aldrei allt. En hversu snemma það leggur og hversu lengi ísinn helzt, f.er auðvitað állt eftir tíðarfarinu. Grunnar víkur og voga leggur oft fljótt, en sá ís brotu- ar þó tíðast upp aftur í álandsvindi. Þegar stormar og umhleypingar ganga, hrekst íshroði stundum um vatnið tímunum saman, en fer svo í samfellda hellu, þegar aftur still- ir til með kælu. Oft sjást, einkum fyrri hluta vetr- ar. gufuslæður stíga upp úr vatn- inu, líkt og upp af laugavelgjum. Þetta á sér aðeins stað, þegar veður er stillt og kalt, og stafar þessi upp- gufun af blöndun hlýja vatnsins frá botninum við hið kalda yfirborðsvatn. Fyrir kemur, að allt vatnið leggur með bláís á einni nóttu, ef kyrrt er veður, og er þá eins og risastór speg- ill yfir að líta. Öll fjöllin í kringum það spegla ásjónur sínar og virðast standa á höfði, en til botns sést á margra metra dýpi. Aldrei verður bláís mjög þykkur. Það sem fyrst og fremst gerir ísinn þykkan, er snjór og krap, sem verð- ur samfrosta, þegar á skiptast snjóa- lög. hlákur og frost. Veturinn 1918 varð ísinn á Þing- valiavatni um einn metri á þykkt, en meira mun hann sjaldan verða. Oft heyrast brestir og drunur í ísn- um, einkum þó í bláísnum, svo að undir tekur í fjöllunum. Er það talið boða þíðyiðrí, ef inikið þýtur í ísn- um. Þar sem kaldavermslislindir renna í vatnið, svo sem í kringum Vellan- kötlu, kringum Þingvelli og vestan við Skálabrekku, haldast alltaf auðar vakir við landið, hversu hart sem frýs. ísinn er ætíð ótryggur þar í nánd, og þar leysir fyrst á vorin. Stórir brestir koma í ísinn, þegar fram á veturinn kemur, og þá jafnan á sömu slóðum ár hvert. Stærsta - sprungan liggur venjulega úr Rauða- kusunesi út í Sandey og þaðan suður í Hagavíkurhraun eða Lambhaga. Verður sprunga þessi oft svo breið, að hún er ótrygg yfirferðar og stund- um ófær. Háar jakahrannir rísa oft upp af þessum brestum, því að ís- inn bifast nokkuð til í stórviðrum, og rísa þá skarirnar upp á misvíxl. Einnig gengur ísinn oft nokkuð á land, einkum þegar aftur linar eftir langvarandi írost. Rífur hann þá með sér grjót, möl og sand, svo að eftir verða urðarhryggir á ströndinni, þeg- ar ísana leysir. Umferð var oft mikil yfir vatnið, er það var á ís, allt fram að því, er samgöngutæki breyttust á síðari tím- um. Fóru bændur úr ofanverðum Biskupstungum, Laugardal og Gríms- nesi þá tíðum kaupstaðaferðir á út- mánuðum og fram um sumarmál, til Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, með langar lestir klyfjahesta yfir vatnið til að stytta sér leið. Oftast Iögðu þeir út á vatnið nálægt Arnarfells- bænum og tóku þá aftur land fyrir neðan Heiðarbæ. Var þá stundum ógætilega farið, einkum ef langt var liðið á vor, og ísinn tók að gerast ótraustur. Sérstaklega var stundum djarflega teflt við ísinn á austurleið, og þá einkum ef menn voru við skál. Ekki hef ég þó heyrt, að þetta hafi valdið stórslysum. Þá var það al- gengt, að vermenn gengju vatnið, er þeir fóru til sjóróðra. Einnig þeir, sem heima áttu við vatnið, gengu ísinn milli bæja, og var þá eigi síður treyst á fremsta hlunn, enda nokkur dæmi þess, að það yrði mönnum að aldurtila og þó furðu sjaldan. Eitt dæmi skal hér nefnt um djarí'- lega ísaferð á Þingvallavatni: Litlu fyrir síðustu aldamót áttu bræður tveir heima í Arnarfelli, ung- ir og hraustir og hinir mestu full- hugar. Lögðu þeir eitt sinn á vatnið, er lagt var ísi einnættum, og vildu þeir að Skálabrekku, eða þar í grennd. Frost var og hreinviðri, og ísinn sæmilega traustur við land. En er lengra kom út á vatnið, þar sem dýpi var meira, varð ísinn ónýtari, og krossbrast hann undan þeim í hverju spori. Þótti þeim þá ekki ráð, nema vera langt hvor frá öðrum, og lögð- ust þeir síðan niður og skriðu á fjór- um fótum til að dreifa þunganum. Sleðakugg lítinn, með létting á, höfðu þeir með sér, og dró annar þeirra hann á eftir sér í löngu bandi. Náðu þeir svo að lokum landi, og þótti flestum nóg um það ferðalag. Nú er ferðir um Þingvallavatn að vetrarlagi orðnar færri en áður var. Helzt er það, ef æskulýður Reykja- víkur ekur þangað á sunnudögum og sprettir úr spori á stærsta skauta- svelli íslands. Já, og á síðari árum hafa jafnvel sézt bifreiðir þjóta um vatnið þvert og endilengt, en það er vissulega ekki hættulaus leikur. Slysfarir Þung er báran á Þingvallavatni í hauststormunum, og viðsjáll er á því ísinn, einkum á vorin. Voveiflegir at- burðir hafa gerzt í sambandi við þetta, bæði fyrr og síðar, en þó furðu sjaldan, þegar borið er saman við Snjóbíll Guðmundar Jónassonar úti á ís á Þingvallavatnl. 260 T ! M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.