Tíminn Sunnudagsblað - 28.02.1965, Side 16

Tíminn Sunnudagsblað - 28.02.1965, Side 16
Ég var ellefu ára, þegar þetta gerðist. ÞaS var fyrsta skóladaginn eftir jólaleyfið, sem ég fékk heim- boðið. Öllum bekknum var boðið heim til Hinriks í afmælisveizlu hans, og við töluðum ekki um annað á leiðinni heim úr skólanum. Hinrik átti heima í stærsta húsi bæjarins. og það voru þrjár vinnukonur á heimilinu. Við áttum að fá heitan mat, og faðir Hinriks hafði fengið töframann til að skemmta okkur. Þessi töframaður gat töfrað lifandi, hvítar kanínur fram úr mannsnefi. Víst var ástæða til að vera glaður. Þau voru farin að borða hádegis- matinn heima. þegar ég kom. Pabbi var að blanda meðalið sitt, og Pontus missti skeiðina sína niður á disk- barminn, þegar hurðin skall í lás. Jörgen hélt rólegur áfram að borða, en mamma horfði á mig með ávít- unarsvip. Ég hafði alveg gleymt, hvað tímanum leið. Á leiðinni höfð- um við orðið ósammála um þetta með kanínurnar. og slíkt tekur alltaf sinn tíma. „Þú kemur seint. Seztu niður og farðu að borða.“ Pabbi tók inn meðalið og flýtti sér að renna niður fullri skeið af súpu á eftir Orð hans vörpuðu skugga a gleði mína. Pabbi var veik- ur og hafði ekkert unnið í þrjá mán- uði. Hrfnn hafði breytzt bennan tíma. Það var nærri bví eins og hann sæi okkur ekki. Eins og hann væri bú- inn að gleyma, að við værum til. Við urðum að hafa hljótt um okkur, til þess að hann hefði næði Mamma bað okkur á hverjum degi að hafa nú ekki hátt en það var afar erfitt að hlýða því. Hvers vegna mátti ég ekki láta I ljós gleði mína, þegar ég jar glaður? Ég gat því ekki þagað. Ég sagði frá afmælinu og heimboðinu. Ég stamaði af einskærum ákafa. Orðin hrösuðu hvert um annað á vörum mínum, og ég velti glasinu mínu um koll. Mamma hafði risið á fæt- ur til þess að ausa súpunni, og hún leit aftur til mín í ávítunarskyni, en það var of seint. Hún setti súpu- disk fyrir framan mig. „Nú, svo þú ætlar í afmælisveizlu.“ Ekkert meira. Hún sýndi engan áhuga, eriga gleði, og ég varð þögull. Einnig mamma var breytt. Veikindi pabba voru smit- andi á einn eða annan hátt. Hún var ekki beinlínis veik, en mér sýnd- ist hún ekki heldur vera hraust. „Eigið þið að ganga kringum jóla- tré?“ spurði Pontus. Hann var ekki farinn að ganga í skóla og fékk aldrei heimboð. Jörgen fór að leggja við hlustirnar. Honum hafði tvisvar verið boðið út, en hann kærði sig ekki um samkvæmi. Honum leiddist. Honum leiddist. ef hann fékk ekki að lesa. „Auðvitað göngum við kringum jólatré. Tréð hans Hinriks er svo stórt, að það nær alveg upp í loft.“ Ég ýkti raunar dálítið til þess að vekja áhuga Pontusar. Ég náði til- ganginum, enda þótt ég iðraðist orða minna, óðar en ég hafði sleppt þeim Pontus horfði á jólatréð okkar, sem stóð á saumaborðinu hennar mömmu Það var tæpur metri á hæð, og það var í fyrsta sinn, sem við höfðurn jólatré, sem stóð í blóma potti Við höfðum einnig haft jóla tré, sem náði upp í loft, en pabbi fullyrti, að þau stóru hefðu öll ver- ið uppseld, svo að við urðum að láta okkur nægja minna. „Það er ekki hægt að ná kanín- um út úr mannsnefi." Jörgen var tortrygginn eins og venjulega. Hann las svo mikið, að hann hafði fengið vitneskju um alla hluti, svo að ég mótmælti ekki. Reyndar efaðist ég sjálfur um þessa staðhæfingu. „Við sjáum nú til, hvort pabbi leyfir þér að fara.“ Mamma greip fram í samræðurn- ar, og ég leit skelkaður á pabba. Ég hafði þó samstundis þegið boð Hinriks. Hví skyldi ég ekki fá að fara? Það var þó ekki daglegur við- burður, að ég fengi heimboð. „Við tölum um að seinna. Borð- aðu nú.“ Pabbi batt enda á sam- ræðurnar, án þess að komast að nokk- urri niðurstöðu. Pontus horfði á mig dapur í bragði, eins og hann langaði til að sýna mér eins konar þögla meðaumkun, en eins og skapi mínu var farið þessa stundina, féll mér ekki þess háttar hluttekning. Ég var mjög vonsvikinn, og ég skildi ekki foreldra mína. Ég dró mig í hlé. Öllum bekknum var boðið, og ég mátti ekki fara. Hvernig gat pabbi fengið af sér að neita mér um að fara? Ég skildi hann ekki. Ekkert okkar mælti orð frá vörum, meðan á máltíðinni stóð, og síðan fór pabbi inn til sín að sofa. Ég vonaði. að hann segði eitthvað, áð- ur en hann lokaði dyrunum, en hann sagði ekkert. Hann hafði víst gleymt mér. Síðar um daginn kom mamma upp í herbergið okkar bræðranna, og þegar hún sendi Pontus og Jörgen út, vissi ég, að hún ætlaði að tala við mig. Við Pontus höfðum verið að leika okkur að tindátum, sem við höfðum fengið í jólagjöf, en það var ekkert gaman að leiknum. Hann hafði oft spurt mig, hvort við mynd- um fá banana hjá Hinrik, en ég vissi ekki, hverju ég ætti að svara. Bananar voru eftirlæti Pontusar, og hann hætti ekki að spyrja, fyrr en Það getur dregiS tði tíSðnda ð afmæiisveizlutn, jró aB pstirnsr séu ekkð mma tíu, eilefu ®Sa tólf ára„ í slíku samkvæsnð kunna a? hrjéta égæíi^eg o?Ó og siit- hva$ er$i$ mðnnisstæft — minnisstæóara ®n nokkurn fær grunaó. ítrongursnn var ellefu ára, eg Hinrik Mtlð bauíð honum » «s!t.... 184 I í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.