Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Blaðsíða 4
Skilin milli hagnýtra og fræðilcgra rannsókna eru sjaldan glögg. Það, sem í dag virðist aðeins hafa gildi
fyrir vísindamanninn sjálfan, er máske á morgun orðið ómetanlcgt öllum almenningi.
Þegar ég er spurður, hvort nokkurt gagn sé að þcssari eða hinni rannsókninni, verður mér stundum hugs-
að til karla í Neskaupstað, sem fyrir nokkrum árum býsnuðust yfir Kobba á Strönd, sem þættist vera far-
inn að læra um fiskinn af bókum úti í Aberdeen! Þeir höfðu ekki mikla trú á slíkum stúderingum.
En pilturinn frá Strönd, öðru nafni Jakob Jakobsson fiskifræðingur, hefur ásamt samstarfsmönnum sínum
við fiski og síldarrannsóknir, fyrir löngu opnað augu sjómanna og almennings fyrir nauðsyn rannsókna og
öflun þekkingar á þessu sviði. Skipstjórar sýndu hug sinn til hans í verki, þegar þeir héldu honum veglegt
samsæti í Lídó síðast liðið haust.
Og enginn þorskur hló.
• ' •
■
; ■
. ■
■
xw/My/.
Vestur á Melum,‘ rétt sunnan við
Háskólabíó, er löng og mikil tveggja
hæða bygging í smíðum. Að utan
er hún fullgerð, en inni strita málar-
ar og smiðir með býsna brauki.
Hús þetta er framtíðarheimili
Raunvísindastofnunar Háskóla ís-
lands. í kjallarann er kominn raf-
reiknir með sínum fylgifiskum og á
efri hæðinni • hefur smástofa verið
pússuð og máluð handa fyrsta eðlis-
fræðingnum, sem flutt hefur með haf
urtask sitt í húsið.
Hann heitir Örn Helgason og fæst
nú um sinn við mælingar á segul-
magni í grjóti.
Til þess að mæla bergsýnishorn
á stærð við flöskutappa hefur hann
fyrirferðarmikið tæki, um mannhæð
á hvern veg. Sýnishorninu er kom-
ið fyrir í gripi í miðju tækinu,
þannig að það geti snúizt um tvo
ása. Ofan við sýnishornið hanga tveir
litlir seglar í þræði og milli þeirra
spegill. Ef sýnishornið er segulmagn-
að, má snúa seglunum og þar með
speglinum með því að snúa sýnis-
horninu Ljósi er kastað á spegilinn,
og endurkastast það á kvarða, sem
af má lesa segulstyrkleikann. Steínu
segulmættisins má einnig finna með
snúningi sýnishornsins um hina tvo
fyrrnefndu ása. Við víðtækari athug-
un á sýnishorninu er nauðsynlegt
að upphefja jarðsegulsviðið og önn-
ur utanaðkomandi seguláhrif. Eru til
þess hafðar gjarðir, sem rafstraumi
er hleypt á. Það segulsvið, sem þann-
ig myndast, upphefur jarðsvioið á
sýnishorninu, og er það þarna i eins
konar segultómi.
Þessar varúðarráðstafanir nægjá
þó ekki, ef ó'ooðinn járngestur kem-
allt í einu of nálægt segulmælinum.
Örn verður að taka af sér armbands-
úrið, meðan hann vinnur. „Og áður
76
T í M 1 N N — SUNNUDAGS5EAÐ