Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Blaðsíða 8

Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Blaðsíða 8
DÝR OG FUGLAR EINS OG VIÐ kymnumst_þeim I HELGRI SKRIFT í skriftinni kynnumst við ísraels- lýð, jafnt við daglegar annir sem á fagnaðarstundum, á tíma neyðar- innar, þegar óvinir þeirra knésettu þá, og á því skeiði sögunnar, er þeir 'ioru meðal auðugustu þjóða heims- áis. Mikilvægustu atvinnugreinar þeirra voru búfjárrækt og jarðyrkja. ísraelsmenn urðu því sífellt að heyja stríð við náttúruna: Rándýr sátu um búpening þeirra, og engisprettur sviðu akra þeirra og aldingarða. í skriftinni er því oft vikið að sambúð ísraelsmanna og villidýranna, og af samlikingum ýmsum má ráða, hvaða eiginleika þeir hsfa eignað þessum dýrum. Veiðar margs konar voru stundað- ar í landi ísraelsmanna allt frá dög- um ættfeðranna. Esaú er fyrsti veiði- maðurinn, sem nefndur er. Minnis- stætt er, að hann kom heim af veið- um heldur slyppifengur, er bróðir hans, Jakob, kúgaði af honum frum- burðarréttinn, og - á veiðum var hann einnig, þegar Jakob sveik sér blessun föður þeirra. Okkur er svo hermt: að Esaú hafi haft boga og örvar að vopni. Annars notuðu þessar þjóðir mjög spjót í veiðiferðum sínum, og dýragrafir voru einnig tíðkaðar. Lítil dýr og fugla veiddu menn í snörur |og nekEn hvergi getur þess, að ísrelsmenn hafi notað veiðihunda. Ekki máttu ísraelsmenn neyta kjöts allra dýra. Þeim var skipt í hrein dýr og óhrein í Móselögum. Af spendýrum voru það einungis þau jórturdýr, er voru með klaufir, sem þeir máttu eta: Hirtir, rándýr, dádýr, steingeitur, villiuxar og gíraffar. En raunar er miklum vandkvæðum bund- ið að þýða sum dýranöfnin réttilega og það, sem kallað er rádýr í einni biblíuþýðingunni, er nefnt gasella í annarri, og margt annað er harla ónákvæmt í þessum fræðum. Skógardýrin voru dáð sökum frá- leik- síns og vaxtarþokka. Þegar Saló- mon konungur lýsir Súlamít í Ljóða ljóðunum, segir hann: „Brjóst þín eru sem tveir rádýrs- kálfar, skóggeitartvíburar, sem eru á beit meðal liljanna." Og að kvæðislokum segir hin unga stúlka við unnusta sinn: „Flý þú burt, unnusti minn, og líkst þú skógargeitinni eða hindar- kálfi á balsamfjöllum.“ í Orðskviðunum eru þessi heilræði: „Uþpspretta þín sé blessuð, og gleð þig yfir festarmey æsku þinnar: Elsku-hindinni, yndisgemsunni." Ljónið er konungur dýranna. Það var algengt við austan vert Miðjarð- arhaf í fornöld — til dæmis í Jór- danárdalnum, Líbanonsfjöllum og Hermon. Munu Ijón hafa horfið á þessum slóðum á krossferðatímunum. í ritning- unni segir, að ljónin hafi hafz við í skógum, þéttu kjarri og hellum fjallanna. „Ljón er risið upp úr runni sínum, þjóðaeyðir lagður af stað, farinn að heiman til þess að gera land þitt að auðn,“ segir Jere- mías. „Veiðir þú bráðina fyrir ljón- ynjuna, og seður þú græðgi ungljón- anna, þá er þau kúra í bæli sínu og vaka yfir veiði í þéttum runni?“ spyr Job. Ljón voru sterkust og hugrökkust dýra: „Þrír eru þeir, sem tigulegir eru á velli, fjórir þeir, sem eru tigu- legir í gangi,“ segir Salómon. Þar er fyrst „ljónið, hetjan meðal dýranna, sem ekki hopar fyrir neinni skepnu.“ Hinir mestu garpar ísraelsmanna, svo sem Samson, unnu samt á því með berum höndunum. Hjarðmenn- irnir urðu oft fyrir þungum búsifj- um af völdum ljónaana, sem hremmdu sauðfé og geitur, og stund- um urðu þau mönnum að bana. Það voru ekki allir hjarðmenn jafnokar Davíðs, sem lýsti viðbrögðum sínum í hjásetunni með þessum orðum, er hann bauð Sál konungi að fara á móti Filisteanum: „Þjónn þinn gætti sauða hjá föður sínum. Ef þá kom Ijón eða björn og tók kind úr hjörð- inni, þá hljóp ég á eftir honum og felldi hann og reif kindina úr gini hans. En ef hann réðst í móti mér, þreif ég í kampa hans og laust hann til bana.“ Öskur ljónanna var geigvænlegt. „Ljón öskra eftir bráð og heimta æti sitt af guði.“ Fátt olli slíkri skelf- ingu nema þá reiði konungsins: „Konungsótti er eins og ljónsöskur: Sá, sem egnir hann á móti sér, fyrir- gerir lífi sínu.“ Á dögum postulanna var farið að líkja andskotanum við reitt ljón: „Verið algáðir, vakið: Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim sem hann geti gleypt," segir Pétur postuli. Björn sá, sem skriftin kynnir okk- ur, var slæmur vágestur, sem gerði tíðum usla eins og ráða má af orð- um Daviðs. Harðfengir menn og grimmir voru sagðir „eins og birna á mörkinni, sem rænd er húnum sín- um.“ Og mannskæðir voru þeir. Þeg- ar tveir drengir skopuðust að Elíasi spámanni, formælti hann þeim, og sú formæling var kyngimögnuð, að tveir birnir komu úr skóginum og rifu í sundur fjörutíu og tvö börn. Slæmum konungum var líka líkt við tryllt villidýr, þar á meðal björn: „Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn — svo er óguðlegur drottnari yfir lítilsigldum lýð.“ Samt taldi Sal- ómon ekki reiðan björninn verstan alls, sem orðið gat á vegi manns: „Betra er fyrir mann að mæta birnu, sem rænd er húnum sínum, heldur en heimskingja í flónsku hans." Úlfurinn var allra landa kvikindi fyrr á tímum. Enn er hann til í ísrael, þótt orðinn sé hann harla sjaldgæfur. Úlfarnir voru gráðugast- ir dýra. Þegar Sóffónías spámaður las Jerúsalemsborg reiðilestur sinn, sagði hann meðal annars: „Höfðingj- arnir í henni eru sem öskrandi ljón, dómendur hennar sem úlf-ar að kvöldi — þeir leifa ekkert til morg- uns.“ En það var fræknleikur úlfa, hve fljótir þeir voru að hlaupa. Af því spruttu ýmsar líkingar. Hestar Kaldea voru til dæmis sagðir „skjót- ari en úlfar að kvöldi dags.“ Það er auðvitað engin tilviljun, hve oft er vitnað til atferlis úlfanna á kvöldin: Þá voru þeir helzt á ferli. Refa getur oft, en oft getur eins vel verið, að átt sé við sjakala. Á dögum Jesú var refurinn rómaður fyrir kænsku sína. Hundar voru líka á reiki, oftast hálfvilltir, og rifu í sig sorpið, sem hent var út. Það er að ráða af ritningunni, að ekki hafi ver- ið fátítt, að þeir ætu lík, og í hunds- kjafta fór hún Jessabel heitin. Sjald- an er það, að hundum séu eignaðir lofsverðir eiginleikar, en oft farið um þá niðrandi orðum. Það gerir jafnvel hinn vísi Salómon: „Eins og hundur sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskinginn, sem endurtekur fíflsku sína.“ Ekki 80 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAU

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.