Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Qupperneq 12

Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Qupperneq 12
Það var miður sólmáriuður. Inni í vertshúsinu var molluhiti, en svalt borið saman við sterkjuhitann úti, sem kreisti svitann úr snöggklædd- um vegfarendum eins og safa úr gló- aldini. Hitamælirinn á gráskellóttum kirkjuveggnum ^egnt kránni var eins og viðvörun til syndugra sálna með sín 32 stig á Celcíus, enda stríð- ur straumur reikulla manna inn um dyr guðshússins, ýmist til þess að gera syndajátningu eða forðast sól- arvítið, sem engu eirði. Siangur af gestum var í veitinga- stofunni. Sjálfur vertinn, rauðþrút- inn, þrekinn, roskinn maður, renndi i bjórkollur úr tunnunum innan við skenkinn. Svitastokkinn skóf hann froðuna ofan af kollunum með spítu. Stærðar glerbrúsa með rauðu og hvítu vininu handlék hann með gætni og umhyggju, eins og hann væri að rugga hvítvoðungi í ró. Fjórir yfir- þjónar, girtir hvítum svuntum, eins og slátrarar, voru á stöðugum þeyt- ingi með mjöð og glóandi vín til þyrstra manna og kvenna. Vertinn svolgraði í sig svalandi bjórinn úr útskorinni ölkrús í velþegnum hléun- um, sem urðu annað siagið. Sillí var í rósóttum, flegnum kjól — svo flegnum, að vel mátti sjá langt niður á bak. Hún leit út um gluggann sljóum augum, dreypti á víninu og mælti stöku sinnum eitt- hvað drafandi röddu, sem hitinn bræddi eins og malbíkið á götunum, srvo að ég skildi aðeins orð og orð af því, sem hún sagði. Sillí var dökk á brún og brá og öll bústin vel og þrýstin, en hárvöxturinn svo rýr, að minnti á kollótta rollu rétt fyrir rún- ingu. Hún hafði sama brúna augna- litinn og kjölturakkarnir, sem ríka fólkið teymdi í gullól og þóttu þægi- legri en krakkar. En í augum Sillíar var einhver blendingur af kímni og spurn, sem augu kjölturakkanna skorti alveg. Þeir vildu helzl alltaf móka, nema þegar eigendur þeirra stungu að þeim ostbita eða öðru góðgæti. Sillí hafði samrekkt mér um nóttina, aldrei þessu vant, því að móðir hennar var ströng, vönd að virðingu sinni og velviljuð dóttur sinni. Silli fæddist á kreppuárunum og bjó með móður sinni, ekkju, og tveimur köttum í kjallarakytru í út- jaðri borgarinnar. Þær mæðgur unnu báðar úti og létu kettina eina á dag- inn í íbúðinni hjá kolavélinni og myndunum af föður og syni, sem vesluðust upp og týndust í umróti stríðsins. Það hringlaði í peningaskjóðunum, sem þjónarnir báru, og ískur í spor- vagnahemlum og ómur kirkjuklukkna, sem kölluðu til tíða, barst inn í krána. Sillí var ekki víngefin, en varð rauð á vangann við fyrsta glas, sönðv in, ástleitin og til í allt. Ég kældi heit innyflin með freyðandi bjórn- um. Þjónninn bar matinn á borðið á meðan Sillí var að segja mér eitt- hvað, sem ég skildi ekki. Svitadrop- ar láku stöðugt niður með nefi þjóns- ins og inn í munninn, er hann opn- aði hann, svo að hann var loðmælt- ur, þegar hann bauð okkur að gera svo vel. Um leið og hann fór, greip hann kollu mína með sér til þess að fylla hana aftur. Stór hundur og maður komu inn, og maðurinn tók ölkollu, sem stóð á skenknum, ásamt mörgum öðrum, og setli á munn sér. Þjónninn stjakaði við honum, svo að hann hætti við að drekka og lagði kolluna frá sér. Þjónninn tók þá kolluna og svolgraði úr henni með lokuð augun, en vertinn benti manninum að taka aðra krús. Hund- urinn liorfði biðjandi augum á þá. Roskin hjón í fylgd með ungri stúlku voru niðursokkin í matseðil- inn við næsta borð. Stúlkan leit dreymin og fjarræn á okkur SiIIíu, fram hjá okkur og út um gluggann — horfði á sporvagnana koma á fleygiferð í krappa beygjuna, sem blasti við úti í brennheitu sólskin- inu. Er við greiddum reikninginn, var Sillí orðin heit og rjóð og draf mælt. Hún þakkaði þjóninum, sem saug upp í nefið og var þotinn a£ stað. til þess að bera þorstlátum gest- um meiri drykkjarföng. Úti var kliður radda, hvin í hjól- börðum í bráðnuðu malbiki, spor- vagnaskrölt, og í fjarska heyrðist þungur, alvarlegur klukknaómur gegn um titrandi tíbrána. Sterkan óþef lagði upp úr holræsunum eins og frá fiskvinnslustöðvum á heitum sumar- degi. Kvenfólkið var svo léttklætt, sem velsæmið frekast leyfði og karl- ar margir hverjir berleggjaðir. Við Sillí létum berast með mannhafinu, sem lyktaði af svita og púðri. Sillí vildi ganga út í skemmtigarð og aka í rafmagnsbíl. Ég var þungur í höfð- inu og vildi senda hana heim, en lét þó tilleiðast, þar eð þetta var sunnudagur, og bjórinn gat læknað öll mein, andleg og líkamleg. Forvitnir karlar og konur sátu á gangstéttarkaffihúsum og góndu á vegfarendur, eins og naut á nývirki. Nokkrir dökkir, griskir skeggjar leidd ust syngjandi eins og kærustupör. Það var svalt sem í kirkju í göng- unum, sem lágu undir torgið, og loftið mengað ryki og mannaþef. Falskir dragspilstónar léku sér í ryk- inu þarna inni í rökkrinu. Einfætt- ur, tötrum klæddur manngarmur sat flötum beinum í rykinu, þar sem göngin voru þrengst, og þandi nikk- una. Apaskrípi steypti sér kollhnís og lék aðrar kúnstir fyrir framan mann- inn. Derhúfa með nokkrum skilding- um lá við hlið þeirra. Sillí' bætti ein um í. Ég fékk ofbirtu í augun, er upp úr göngunum kom, og við íylltum lungun heitu loftinu, sem straukst um andlit okkar eins og gælandi meyj arhönd. Gífurlegur mannfjöldi ráfaði eirð- arlaus milli skemmtitækjanna í garð inum. Fólk, hávaði og leiktæki — allt rann saman í marglita, svitastokkna fordæðu. Við Sillí fundum veitinga- garð í forsælu undur þungu trjálauf- inu. Við settumst undir gamla eik. Stöðugur straumur fólks var inn og út úr garðinum. Þjónar með kringl- ótt víntrog yfir höfði sér smugu milli borðanna, liðugir eins og nautabanar. Inni í sjálfu veitingahúsinu léku nokkrir Ungverjar í þjóðbúningum angurvær Sígaunalög. Við Sillí lífg- uðum upp á sálartetrið með víni og bjór. Ilún var nú orðin alldaður- gjörn. Ég minnti hana á rafmagns- bílana. Þegar Sillí var farin til þess að fullnægja þessari ökuþörf sinni, 84 T f M I N N — SUNNUDAGSBI.AO

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.