Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Síða 15

Tíminn Sunnudagsblað - 30.01.1966, Síða 15
beitt til þess að aftra því, að þeir hefðu eðlileg áhrif á löggjöf landsins og þeir slitu sér út í látlausri styrj- öld við valdhafana og hörðum deilum innbyrðis. Það, sem öðru fremur setti svip á baráttu þeirra, var krafan um þing- ræði. Saman við þá kröfu fléttaðist andspyrna þeirra gegn vígbúnaði þeim, sem Estrup vildi koma fram, og var hún að sumu leyti sprottin af því, að þannig gátu þeir gert ríkis stjórninni óleik, og sumu leyti af því, að margir vinstrimenn voru í Ujarta sínu andvígir vígbúnaðinum að meira eða minna leyti, þótt ekki tækist þeim að mynda sér sameigin- iega skoðun, er þeir fylgdu fram allir sem einn. „Við keppum að markmiði sem er háleitara en víggirðing Kaupmanna- hiafnar,“ sagði Kristinn Berg: „Dana- veldi skal rísa í brjósti hvers dansks manns.“ Eitt var þó það sera vinstrimenn hefðu viljað kaupa dýru verði — fyrir það hefði Estrup getað fengið margar fallbyssur. Það var tekju- skattur. Um þessar mundir voru rík- isskattarnir nálega einvörðungu fast- eignaskattur. En nú var sú fcreyting orðin á atvinnuháttum, að margir gerðust stórefnaðir, án þess að eiga fasteignir að neinu ráði, svo sem kaupsýslumenn ýmsir. En rétt- indi þau, "em stjórnarskráin veitti mönnum, hvíldi einmitt á gamla skattakerfinu, og Estrup sá fyrir, að ný skattalög myndu mörgu raska, þar á meðal aðstöðu gósseigendanna sem nutu margvíslegra forréttinda í skjóli þess, að þeir bæru svo miklar byrðar. Efnamenn í borgunum voru einnig andvígir breytingunni, því að þeir sáum fram á, að þeir yrðu að leggja meira að mörkum, ef hún næði fram að ganga. Hægrimenn vildu ekki ljá máls á nýjum skatta- lögum, enda þótt þeir fengju í stað- inn fjárveitingar til þess að steypa fallbyssur og reisa virki. Var þess nú skammt að bíða, að fvlkingum lysti saman. Leynivopn vinstrimanna var 49. grein stjórnarskrárinnar: „Skatta má ekki innheimta, fyrr en fjárlög hafa verið samþykkt. Enga fjárveitingu má inna af höndum, nema til komi heimild í fjárlögum eða aukafjárlögum.“ Þetta voru afdráttarlaus fyrirmæli, og ætlaði ríkisstjórnin að sitja í þrássi við þingmeirihlutann, varð að svæla hana út úr greninu með því að fella fjárlögin. Hægrimönnum varð starsýnna á 2'ó. grein stjórnarskrárinnar: „Þegar sérstök nauð þrengir, getur konungurinn í fjarveru þingsins sett bráðabirgðalög, sem þó mega ekki stangast á við stjórnarkrána, og verður ávallt að leggja þau fyrir þingið, er það kemur næst saman.“ Jakob Brönnum Scavenius Estrup, haldreipi dansks afturhaldsd lok síöustu aldar. Þaö var hvorki honum að þakka nc konungnum, heldur þolgæöi og stiliingu dönsku þjóðarinnar, að ekki kom til uppreisnar og borgarastyrjaldar, er hann framdi verstu gerræðisverk sín. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 87

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.