Tíminn Sunnudagsblað - 10.07.1966, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 10.07.1966, Blaðsíða 2
ÓLÖF JÓNSDÓTTIR: ÉG ER AD FL ÝTA MÉR Fyrst ég var nú kominn út á Nes hvort sem var, datt mér í hug að líta inn til afa og ömmu, sem eiga þarna heima rétt við sjávarmálið. Þau hafa átt þar lengi heima, svo lengi sem ég man til. Húsið þeirra er lítið timburhús, gult með grænu þaki og hvitum glugg- um. Sólargeislar léku sér í glugganum, hoppuðu til og frá, frjálsir og kátir. Ég staldraði ögn við og virti hús- ið þeirra fyrir mér, þennan gamla vin, æskuvin. Hér hafði ég leikið mér barn í sandinum, veit mér og byggt heilar borgir úr sandi. Þessa daga tíndi ég nú saman í huganum, þeir voru dýrar perlur í minningunni. — Þetta gat eins verið sama grasið í túninu og þá. Stráin teygðu úr sér, og sóieyjan kinkaðf kolli, til þess að ég tæki líka eftir henni. í sömu andrá settist þröstur á snúrustaur- inn og song um vorið, um háan him- ininn, hvelfinguna yfir höfðum okk- ar. Einu sinni 'skvömpuðu litlir berir fætur í flæðarmál, og smáar hendur tíndu skéljar. Það er logn á Nesinu, og reykinn úr strompinum á litla húsinu leggur hátt upp. Ég ranka við mér og geng hægt heim, stikla nýsópaða, gráa gang- stéttarsteinana. — Allt er vel hirt hjá ömmu. Og nú man ég það, að þessi sunnudagur heitir Sara í al- manakinu eins og amma. Ég kný dyxa. Gömul og lotin kona kemur fram. Hún er nett vexti og fisiétt í spori eins og dansmær. Löngu flétt- urnar hennar eru farnar að þynn- ast og grána. Hún ber hönd að enni og strýkur hár frá augum, brosir og heilsar fagnandi gesti. Ilm af flatkökum leggur fram. Hún er að steikja þær á gamalli glóðar- hellu. Hún faðmar mig að sér og segir það né gott ég komi núna. Ég sé rétt eins og kölluð, því að afi sé veik- ur. „Afi?“ sagði ég, knúskyssti ömmu- og hraðaði mér inn göngin, þreif- aði fyrir mér með höndunum og rambaði upp þröngan stigann, upp á ioftið, inn til afa. Hann hefur blundað, en hrökk óð- ara upp við bröltið í mér. „Þú kom- in, Vala mín. Skelfing er gott að sjá þig.“ Mér var dimmt fyrir augum, og ég rak mig á eitthvað. Afi rekur upp þett.a iíka litia öskur. — „Ætl- arðu að brjóta á mér lappaskrattana, eða hvað gengur á?“ .yHvernig gat ég vitað, að þú sperrt ir fótinn langt íram á gólf, afi?“ „Og hvað er að sjá þig, er það fót- urinn á þér, þessi ófreskja?“ „Hvað sýnist þér, Vala litla. O-ho— ég þurfti nú sko að demba ofan á mig heilu lóðartrdgi í fyrradag. Var að enda við að beita, rann til á slorugu gólfinu, og það fór nú svona eins og þú sérð. Þetta er helvítis kvalir síðan.“ „En hafið þið ekki náð í lækni?“ „Og sei, sei, hún Sara bað hann að líta inn, en hann hefur nú ekki sézt hér enn. Það er í mörg horn að líta hjá þessum doktorum nú til dags, vist um það. Nú, nú, þeir hirða nú víst fyrir mann hjá samlaginu, þó þeir komi svo sem aldrei. Hann hefur nú fengið að vera í friði fyrir mér til þessa, kvölin sú arna.“ „Þetta er ekki hægt, ég hringi í helgilækni.“ „Helgilæknir,“ át afi upp eftir mér, „helgilæknir, hvað er það nú?“ „Nú sunnudagalæknir.“ „Eru þeir góðir? sagði afi. „Það eru allir misjafnir, þeir líka, en látum okkur sjá.“ Og ég sló á þráðinn. Afi bað um vatn að drekka. Ég hljóp eftir vatni, lyfti höfðinu á honum, og hann drakk, svaiandi kalt vatnið. Mikið var höfuð hans heitt. „Hvað ætli sé að hlaupa í löppina á mér, Vala? Ég finn þessi reiðinn- ar ósköp til. Æ, æ,“ veinaði hann, „fer nú ekki þessi læknir að koma. Skelfing er hann lengi, rétt eins og þetta sé þingmannaleið hjá honum, iþennan spöl hér út á Nesið.“ í þessu er barið. „Sko, nú kemur hann, doktorinn," sagði ég hughreystandi. Eftir andartak stóð hann inni á gólfi. Loksins var langþráður læknir kominn, allvörpulegur ásýndum. „Hvað er að yður,“ sagði hann hásum rómi. „Nú hér hafið þér fótinn,“ og afi teygði hann fram. Framhald á bls. 574. 554 TÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.