Tíminn Sunnudagsblað - 11.12.1966, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 11.12.1966, Síða 13
FYRRI HLUTI VIÐTALS: VITAVÖRÐURINN „Sjáðu logasterk augun er svipast um milli sviptibyijanna isjáðu svipuna reidda yfir höfði far mannsins og sveifludans hin»a svipþungu oneyja." Ég hef numið staðar hjá trönum yzt á Nesinu. Eiðið er allt úr sjó. Öðrum megin sveHur hafið og brotn- ar á boðum, hinum megin er stillt og rótt, en brimstrókar rísa og hniga í fjarska. Fióinn er í vetrarham. Ég fikra mig niður sj'ávarbakkann. Gijúpur sandur og þaradyngjur, sem dúa undir fótum eins og hold ægivaxinnar ótfreskju. Síðan feta ég traustan maiarvöll, stórgrýti, sjö- po'ila, og seitukeimur fyMir vitin. Fyret í stað þykir mér ég vera langt írá mömmum, þar sem ég staulast Albert f Gr6ttu °B *iévarnargarðurinn. Myndirnar, sem viðtalinu fylgja voru ytfir eiðið, en slí'kt er fjarstæða. AJ’s flestar teknar í maí áriS 1940. fltp. Við megum ekki masa svona i símanum. Maður getur blaðrað all- an daginn. — Bg ber upp hjá þér klukkan níu i fyrramálið. — Já, gjörðu svo vel. Ég verð kom inn á ról. Ég fer venjulega á fætur klukkan hálf átta. En þú skalt ekki aka á bál yfir eiðið. — Ég nota fæturna til hins ýtr- asta. — Gott og vel. Og síðan rigndi blessunarorðum á foáða bóga. Laugardagur, og svefnþrungin and lit með timburmenn gægjast undan næturtjöldum að horfa í mjúlkur- hvíta morgunbirtuna. Vestanvindur feykir snjóföl upp að garðsstólpa og göturennu. Nokkrir Seltirningar, sem sæta hinum þungu örlögum að þurfa að tfara til vinnu eftir föstudagskvöld, standa bláir af kulda í stigaþrepum, bölva næðingnum, lofa sængurhlýj- una og þá verkjar í kviðinn eftir hálfvolgt hitakönnukaffið. Hin and- stuttu erfiðissog ótal bifreiða drynja sem undirleikur við reykingahó.sta og hrolistunur, svo hryglir í öllu hverf- inu. Ég ek frarn hjá Mýrarhúsaskóla og áfram út Nesið, ríkið í ríkinu, þar sem kerlingarnar skvetta ekki leng- ur úr koppum á túnin, en fólkið kastar af sér í Skerjafjörðinn og Ko'Hatfjörðinn eins og „siðaðir" Reyk víkingar. Val'húsahæð, Nes við Sel- tjörn, brautin þrengist, og ég þræði grámaðan veg milli niðurfallinna tún girðinga, en fram undan gnæfir vit- inn í móskunni. staðar hasilar maðurinn sér völl. Á miðjum „hafsbotni“ rek ég augun í gult skiíti, þar sem letrað er svört- um, greinilegum stötfum: Óviðkom- andi aðgangur bannaður! Ég held áfram. í þetta sinn er ég undan- tekning. Loksins. Að síðustu stend ég í túninu hans Berta. Skammt frá vitanum kúrir Mtið, vinalegt timburhús, klætt báru- járni, og ég stefni þangað. Inn um glugga sé ég Albert sitja við borð og lesa dagblað. Hve menn virðast ein- ir, þegar þeir sjást inn um glugga. Ég ber að grænmáluðum dyrum. Hann rís á fætur, tekur af sér gler- augun, brýtur blaðið saman . . . Ég honfi til hafs. Að rannsaka hegð- un fólks í gegnum glugga er argasti dónaskapur. — Þá er ég kominn til leiks, segi ég, þegar góða skapið í Berta hefur flætt ytfir mig Mkt og ylríkur geisli á ganginum. — Og vertu velkominn og komdu þér úr frakkanum, svarar Berti. — Eigum við ekki að fá okkur í nefið, spyr Albert, þar sem hann situr við borðið, klæddur blárri duggarapeysu og þykkum, svörtum buxum. — Ég nota ekki í nefið, svara ég. En mætti ég kveikja mér í pípu? — Það er allt í lagi. Ég opna gluggann, og þá kæfirðu mig ekki. — Er þér sýnt um að kafna? — Olíukyndingin nær kæfði mig um daginn. Það er einskær heppni, að ég skuli enn vera í lifenda tölu. Hann snýtir sér hressilega, svo smáhlutir nötra í stofunni. Ég tendra eld í pípu minni. — Hvenær tekur þú við vitavarðar- embættinu, Albert? — Nítján hundruð þrjátíu og tvö, í september, að því er mig minnir, var ég skipaður vitavörður. — Og hvers vegna gerðist þú vita- vörður? — Það er nú dálítið einkennilegt við það. Ég var staddur norður í landi og hafði útgerð þar. Þá var Th. Krabbe vitamálastjóri, og hann hringir til mín, skömmu eftir að fað- ir minn deyr, og segir, að fól'kið hér í eyjunni verði að fara. Mér þótti að vonum nokkuð hart, að systir mín TtMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 1069

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.