Tíminn Sunnudagsblað - 06.08.1967, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 06.08.1967, Blaðsíða 4
—íisland hefur veri'ð kallað sögueyjan og íslendingar sögu- þjóðin, en fólk gerir sér ef til vill ekki grein fyrir því, að íslendinga- sögur liggja til grundvallar þess- um nafngiftum. Orðið saga hefur víðtæka merkingu í íslenzku og getur meðal annars táknað hið sama og historia á grísku, sem er alþjóðaorð og hefur verið þýtt sem sagnfræði á íslenzku. Kannski er hér að leita skýringar á því, að margir íslendingar gera sér ekki grein fyrir, hvað sagnfræði er Fróðleikssöfnun — aðdráttur heimilda — og sagnfræði er sitt- hvað. Við getum líkt þessu við sand og sement annars vegar og fullgert hús hins vegar. Fróðleiksmenn eigum við ís- lendingar mjög marga, en sagn- fræðinga fáa, eins og skýrt sést á þvd, að vafasamt er, að nokkur íslendingur geti talizt hæfur til Björn Þorsteinsson. háskólakennslu í almennri sögu, ef hlítt væri almennum kröfum, sem gerðar eru til slíkra manna. Þannig farast Birni Þorsteins- syni sagnfræðingi orð, er við sækj um hann heim í þeim tilgangi að spyrja hann um ýmislegt, sem fræðigrein hans varðar. — Ýmsar kenningar hafa kom ið fram um forsögu ídands. Hvað hefurðu þar til málanna að leggja? — Ég minnist þess að hafa heyrt hinn fræga ástralska forn fræðing Gordon Ohilde segja, að íslendingar væru lélegir fornfræð ingar og fyrr eða síðar hlyti eitt- hvað að finnast hér, sem benti til forsögu. En ekkert. hefur komið í leitirnar, sem bendir til byggðar hér á landi fyrir víkingaöld. Hafi einhverjir íslendingar verið til þá, hefur það verið huldufólk, eins og Kristján Eldjárn þjóðminjavörð- ur segir í viðtali í sumar. Kenn- ingar, sem ganga í berhögg við hina hefðbundnu skoðun á upp- runa íslendinga, get ég ekki tekið alvarlega. Barði Guðmundsson þóttist uppgötva, að Herúlar kæmu við sögu íslands, en sú 652 T f U I M N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.