Tíminn Sunnudagsblað - 20.08.1967, Síða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 20.08.1967, Síða 7
Úr 'Fljótsdal. Ljósmynd: Páll Jónsson. með: „Það gjörum vér Jón prest- ur Koðráns og Teitur Þor- leiifsson, Tómas Tómasson, Stein- móður Þorvarðsson, Jón Oddsson, Jón Jónsson góðum mönnum kunn ugt með þessu voru opna bréfi, að þá er liðið var frá hingaðburð vors herra Jesú kristi 1514 ár, föstudaginn næsta eftir Lárentíus- armessu að vér vorum þar hjá sáum og heyrðum í skálanum á Brekku í Valþjófsstaðasókn að Valtýr Sigurðsson fékk og gaf jörðina Hvanná er ligg- ur í Hofteigsþingum í Jök- uldal klaustrinu á Skriðu til ævin- legrar eignar og frjáls forræðis, undan sér og sínum erfingjum os eftirkomendum með öllum þeim gögnum og gæðum sem greindri jörð fylgir og fylgt hefur að fornu og nýju og hann varð fremst að eigandi. Eftir þeim dóm og skil- ríki sem þar er um gjört. Var greindur Valtýr heill að viti og allri skynsemd, en sjúkur á lík- ama og skildi fyrrnefnd jörð Hvanná vera ævinlega eign Skriðu klausturs upp frá þeim degi er þá var komið hvort sem þrátt nefndur Valtýr stigi fram eður ekki. Og hér með hafandi handsöl að með herra príor Þorvarð for- mann heilags klausturs er þá var þar nærverandi og hans conventu- bróðir Jón. Og til sannenda hér um setjum vér fyrrnefndir menn vor innsigli fyrir þetta bréf hvert skrifað var heima á Skriðuklaustri þriðjudaginn næsta fyrir Nativitas beatae Mariae virginis á sama ári sem fyrr segir.“ Þetta bréf þarf engrar skýringar við og er svip- að öðrum gjafabréfum. Þorvarður príor kaupir hlut í Borgarhöfn árið 1520 og síðar, 1525, fær hann jörðina Seljamýi'i undir klaustrið. Ekki hafa allir bræður Maustursins verið aldæla. Bróðir Jón Jónsson gerði Oddnýju Hallvarðsdóttur barn, og er bréf um þetta mál dagsett 1. október 1524. Ögmundur biskup tók vægt á þessu broti. Var bróðir Jón Skyldaður til þess að kenna í klaustrinu og settur sacritanum yfir kirkju og klaustur. Er áður- nefnt bréf órækt vitni um skóla- hald á Skriðuklaustri. Þorvarðs príors er og getið í bréfagerð í sambandi við lauslæti Ragnheiðar nokkurrar Erlendsdóttur. Þorvarð ur lét af prlordæminu árið 1530 og var þá búinn að vera forstöðu- maður klaustursins í 24 ár. Hann er lifandi árið 1532 og er þá bróð- ir í klaustrinu. Jón Markússon verður príor á Skriðu 1530 og er þar til 1534. Hann var áður prestur við kirkju Jóhannesar skírara í Vallanesi eins og fyrirrennari hans. Er hann þar eigi síðar en árið 1504 og er líklega kominn á gamals aldur, er hann verður príor. Fað- ir Jóns er talinn af ættfræðingum Markús Magnússon, Markússon- ar, Þorsteinssonar af Skógaætt undir Eyjafjöllum. Sonur Jóns príor er talinn Markús sýslumaður á Víðivölium. Verður þá fyrir Brandur Hrafns son (f. um 1470, d. um 1552), stór- ættaður maður, sonur Hrafns lög- manns eldra Brandssonar í Rauðu- skriðu og Margrétar Eyjólfsdótt- ur riddara Arnfinnssonar. Var hann lengi prestur á höfuðbólinu Hofi í Vopnafirði og þjónaði ailra- heilagrakirkju þar frá því um 1494 og þar til hann varð príor á Skriðu í heilags líkamaklaustri þar eins og segir í vigslubréfi hans, sem sýnir að hann var jafnframt vígður til bróður í klaustrinu. Hefur hann því ekki verið þar áður og komið beint frá Hofi Pramhald 4 711. sfðu 1ÍMINN - SUNNUDAGSBLAi) 703

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.