Tíminn Sunnudagsblað - 20.10.1968, Blaðsíða 9
' *»
..
" • 'u !
sSppglII
■ ■;
:
Menn geta fengið lærdómstitla og aðrar nafnbætur á hóflegu verði og án háskalega mikillar áreynslu,
|Lærdóms-
|merki
I°g
plgnar-
|titlar
|á lágu
|verfei
Við tölum milcið um lýðræði og
jafnrétti og erum upp með okkur
af því, að við skulum lifa við slik-
ar dásemdir. Þó er sannast sagna,
að hvort tveggja á harla örðugt
uppdráttar meðal okkar. Lýðræði
okkar er vissulega meira í orði
en á borði, og jafnrébtið er eins
og skip úti í hafsauga. Þeir, sem
hvassasta hafa sjónina, eygja það
kannski í órafjarlægð Og í sam-
ræmi við þetta er h ugarfar al-
mennings eins og náttúrlegt er.
Fæstir þrá jafnrétti, heldur for-
réttindi.
Um allan hinn vestræna heim,
í sjálfri háborg hins umkomulitla
lýðræðis, er sí og æ þreytt kapp-
hlaup um titla eins og aðrar mann
virðingar og veraldargæði flest.
Þeir, sem einhver pemingaráð
hafa, en aru fátækir í andanum
og veiíkir í getunni, þegar til lær-
dómssaka kemur, opna budduna
til þess að hreppa titla, er ben.da
eiga til nokkurs menningarþroska,
og margir, sem af lágum stigum
eru, breiða yfir þá ljótu staðreynd,
að þeir eru komnir af alls konar
slordónum, vinnulýð og undirtyll-
um, með því að kaupa aðalsnafn-
bót. Slík vegsemd eru auðfengin,
bæði i Norðurálfu og Vesturheimi,
ef það er til, sem við á að éta og
æðra er öllu á himni og jörðu í
okkar virðulega menningarheimi:
Peningar.
Það er til dæmis næsta létt að
verða dr. phil. í hinum lofsæla
Universidad Sintetica y Ameri-
cana í San Salvador, og engu tor-
fengnari er prófessorsnafnbót hjá
Academia Universale del Governo
Cosmo-Astrofia í Tríest. Hvorugt
útheimtir langt og fyrirhafnarsamt
nám. Sú hæfnin ein skiptir máli,
að menn geti borgað titilinn. Og
raunar er einnig farið mjög hóf-
lega í sabirnar í því efni: Svo sem
átta þúsund krónur nægja. Og þeg
ar þær eru komnar á vísan stað,
genigur allt annað af sjál'fu sér.
Einhvern daginn kemur pittur eða
húsmóðir, sem ber út póstinn, á
bíl eða bifhjóli að húsdyrnm þín-
um og færir þér stórt, gult bréf
með faliegum frímerkj um og
skrautlegum áletrunu'ca hinnar
virðulegu stofnana. Og markinu er
náð'.
í Bandaríikjunum verða að
minnsta kosti sjötíu og fimm þús-
und menn doktorar árlega með
viðlíka hætti — og enda oft með
minni tiikostnaði. Þar meta þess
konar stofnanir doktorshattinn að
jafnaði á fjögu-r til tíu þúsund
krónur. Fólkið, sem þessi kaup
gerir, er frá mörgum löndum, og
það þarf auðvitað ekki að ómaka
sig að heiman fremur en það sjálft
vill. Þvi eru sendir spurningalist-
ar hvert á land sem er, og það
svarar spurningunum í góðu tómi
heima í stofu sinni. Síðan kemur
útnefningin frá háskólanum. Var-
nagia verður þó að slá, og hann
felst í stuttu og gagnorðu bo'ð-'
orði: „Safety first.“ Doktorsritgerð
in telst sem sagt ekki varin til
fullnustu fyrr en kaupverðið er
komið í réttar hendur.
Mörgu er nú logið, kann fóik
að hugsa. Og ekki er allt satt, sem
menn kasta á milli sín og jafmvel
eilitlu rangað til í blöðum og fjöl-
miðlunartækjum, þegar nokkuð
liggur við. Þó er þetta sönn saga.
Doktonar og prófessorar af þessu
tagi eru víða eins og að líkuin
lætur.
Ekki skal fullyrt, að þeir finn-
ist í lamdi okkar, er keypt hafa
titla með þvílíku móti, og þar að
auki væri elcki vel gert að nafn-
greirna þá, eða tilfæra á anman
hátt, þótt þeiir uppgötvuðust. En
við getum brugðið okkur út yfir
TÍMI NN - SUNNUDAGSBLAÐ
825