Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1968, Qupperneq 5
Gæzluvellir handa litlum
börnum eru á ýmsum stöðum
í bænum. Þeir eru til mikils
hagræðis mæðrum, sem þurfa
að geta skilið börn sín eftir á
öruggum stað, meðan þær skjót
ast frá.
Sex ára gömul böm fá ekki
aðgang að gæzluvöHum.
Þessi mynd er tekin gegnum
hliðið á gæzluvellinum við
Grettisgötu. Staðurinn er ágæt-
ur, þegar konur eiga erindum
að s'inna í miðbænum. En það
væri synd að segja, að hann
væri útbúinn af mikilli hug-
myndaauðgi.
Litla krílið neðst á síðunni
liérna á móti er ekki á hrakn-
ingl, þótt mamma sé veik. Það
fær góða umönnun í vöggu-
stofu Thorvaldsensfélagsins að
Hlíðarenda. Þar er rúm handa
þrjátíu börnum. Þau liafa kom-
ið þangað á aldrinum átta daga
og aUt til tveggja ára.
Þegar við litum inn, voru
um seytján kornbörn á heimil-
inu. Sum sváfu úti í litlum vögn
um, sum sprikluðu í rúmunum,
eins og þessi litla telpa, en þau
burðugri voru í löbbutúr að fá
sér frískt loft.
Á þessari vöggustofu eru
börnin allan sólarhringinn og
aðeins er tekið við þeim, sem
barnaverndarnefnd þarf að
koma í fóstur vegna heimilis-
erfiðleika, tU dæmis ýeikinda
eða jafnvel fráfalls móðurinn-
ar. Meðan þau eru á vöggustof-
unni, eru þau undir ströngu
lækniseftirliti, og allt er þarna
tandurhreint og sótthreinsað.
Barnavinafélag'ið Sumargjöf
annast daglegan rekstur. Auk
þess starfrækir félagið þrjár
dagvöggustofur sem delldir
venjulegra bamaheimila.
Þessi börn eru orðin sjö ára
og farin að fá tilsögn í Mela-
skólanum. Nú er rætt um, hvort
lækka eigi skólaskyldualdur nið
ur í sex ára aldur. Þar er þrösk
uldur í veginum: Húsnæð'isJeysi
barnaskólanna. Þrengslin eru
mest í nýju skólunum. Þeir eru
í nýjum hverfum, sem byggð
eru ungu fólki, sem alltaf er
að eignast fleiri og fleiri börn.
Það er ekki fyrr en þessl frum
byggjakynslóð fer að reskjast,
að sjatnar í barnaskólunum.
Önnur hindrun er kostnaður.
Það er hugsanlegt, að Reykja-
víkurborg yrði að taka hann að
miklu leyti á sínar herðar. Þeg-
ar um lögboðna skyldu er að
ræða, gre'iðir ríkið helming, en
óvíst er, að fé fengist vegna
þessa aldursflokks.
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
941