Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1968, Qupperneq 17

Tíminn Sunnudagsblað - 24.11.1968, Qupperneq 17
aaidi, leyndist mildur og viðkvæm- ur persónuleiki. Laindiskika nokkurn sagðist Moondoig eiga einhvers staðar i New York-fylki, en ekki sagði hann berum orðum, hvort sá skiki væri hýstur eða e'kki. Svo hefur þó senniiega verið, því að hann minnt ist á, að hann færi þangað öðru hverju til stuttrar dvalar. Allmikið sagðist hann hafa ort, en bæði var, að ég æskti þess ekki, að hann lét mig heyra neitt af ljóðum sínum, e,nda bauðst hann ekki heldur til þess að fyrra bragði. En í áður- nefndu viðtali við New York Times sá ég síðar tvíhendu eina, sem blað m taldi gott dæmi Ijóðagerðlar hans. Hún hljóðaði þannig í is- ilenzkri iþýðingu: Höilkustyrjöld krisit'indóms gegn kórviUum og illu kemur mér fyrir sjónir líkust iUri villu. Blaðið nefndi það einnig, sem Mo'ondog fræddi mig um þennan dag, að þó nokkrar tónsmíðar hans hefðu verið leiknar inn á hljóm- plötur. Þar að auki hefði hann nok'krum sinnum komið fram bæði í næturklúbbum o,g í sjónvarpi. Þrátt fyrir þetta, sagði blaðið — en á það minntist Moondog ekki við mig — ynni hann að mestu leyti fyrir sér með betli. í því sam- bandi var það eftir honum haft, að hann áliti slíkt síður en svo niiðurlægjandi. „Hómer beiddist beininga“, á hann að hafa sagt, „og slíkt hið sama gerði Jesús Kristur." Um búning sinn lét hann svo um mælt, að það væri sinn Ibáttur að mótmæla. Loks lærðist mér af þessu blaða viðtali, sem óg hafði kveinkað mér við að spyrja Monndog um sjálfan, Ihvernig honum hefði áskotnazt auknefni sitt. Hann' var sagður hafa tekið sér nafnið eftir hundi einum, sem hann hafði eimhvern tíma átt og haft haf'ði þann vana sem fleiri rakkar, að geyja að tunglinu. Skýringán kann að vera sönn, eða kannski e,r hún heima- bökuð í ofni bláðamannsins. Ég sel hama ekki dýrar en ég keypti. Þegar ég reis á fætur og greip tösku míma til brottferðar þetta kvöld, var ég ekki óánægður með árangurimin. Ef mér hefði auðnazt .að kenna Moondog eitthvað um lamd mitt og tungu, hafði ég líka lært nokkuð sjálfur. Og landsskik- inn, sem hann hafði sagt mér fró, friðaði samvizku mína að mestu. Fyrst hann var „lendur“ maður, gat afkoma hans tæplega verið jafnibáigborin og ætla hefði mátt. Hlunkarnir i vasa mínum léttust til muna. Ekki kvaðst Moondog að svo stöddu vita, hvenær hann mundi óska næstu kennslustundar — sagðist ekki vita, hvernig dagar sín ir yrðu áskipaðir í náinni framtíð. Ég fullvissaði hann um, að það sfeipti minnstu máli. Hann vissi. hvar hann gæti náð í mig, þegar og ef þar að kæmi. Við kvöddumst með góðum virktum. Einis og mig grunaði þá þegar, fór svo, að þessi fyrsti fundur okkar Moondogs varð einnig hinn síðasti. Hringingin, sem boða skyldi næstu kennslustund, kom aldrei. Sjálfur var ég skömmu síð- ar fluttur á annan vinnustað hin- um megin í borginni, og tækifæri gerðust því fá til að líta Moondog við „vinnu“ sína heldur. Stöku sinnum íhugaði ég þó með nokkunri furðu, hvaða tilgangi ís- lenzkukennsla mín þennan dag hefði átt að þjóna. Sú litla fræðsla, sem ég hefði veitt honum, var varla svo mikið sem reykurinn af þeim réttum, sem Edda hefur upp á að bjóða. Skýringuna fékk ég ekki fyrr en urn haustið. Þá var það einn dag, þegar við May vorum á gangi niðri í Green- wich Village, þar sem við eigum heima, að við rákumst á götuaug- lýsiingu festa á ljósastaur. Hún var þess efnis, að einþáttungurinn THOR AND THE NORDOOM eftir Moondog yrði fluttur í kaffihúsi einu á tilteknu kvöldi. Því miður var þetta kvöld þá þegar liðið, svo að ég fékk aldrei vitneskju um efni þessa leiks, sem ég hafði þó sennileiga á óbeinan hátt átt minn þátt í að undirbúa. Né heldur látið mér tál hugar koma, hvað „Nor- doom“ ætti að merkja, nema ef vera kynni, að það væri frumleg þýðing skáldsins á ragnarökum — nok'kurs konair „dómsdagur norð- ursins“. Ótviræða skýringu orðsins hef ég enn ekki fengið. Siðan þetta gerðist, er blaðavið- tal það, sem áður er getið, hið eina, sem ég hef séð eða heyrt af Moondog. Til þess var stofnað af þvi tilefni, að þessi síðasti áhang- andi Ásatrúar hafði þá nýverið breytt um búning. Almynd af hon um, sem viðtalinu fylgdi, sýndi hann klæddan nýrri flauelsskikkju — sú gamla hafði verið gerð úr af'gangsteppum frá hernum — og hetti úr litskæru skairlati, sem gekk í odda niður á milli augn- anna, líkt og nefbjörg á hjálmi. Á fótum hafði hann nú ilskó úr nautsleðri, bundna þvengjum upp yfir ökla, ekki ósvipaða forngrísk- um fótabúnaði. Elgsklaufin var enn hin sama, en í stað stafs þess hins mikla, sem hann bar í hendi Ifyrst þegar ég sá hann, hafði hann nú þriggja álna spjót, búið vígalegum stáloddi. Allt virtist út- lit hans hálfu víkingslegra en áð- ur hafði verið. Sízt vil ég staðhæfa, að kiæða- breyting Moondogs hafi að neinu leyti átt rætur að rekja til áhrifa af fundi mínum við hann. enda gerðist hún ekki fyrr en alllöngu síðar. Hitt get ég aftur á móti full- yrt, að sá fundur var hönum ekki úr minni liðinn fremur en mér. í bréfi, sem mér barst frá íslandi haustið 1966 — rúmum þrem ár- um eftir kennslustundina góðu — gat að lesa þessar línur í gagnorð- um stíl móður minnar: „Það kom kona til mín nýlega, sem ég hef þekkt síðan hún var krakki. . . Hún var nýkomin frá New York ásamt manni sínum. Ekki hittu þau þig, en þau tölUðu við blindan mann, furðulegan i klæðaburði, sem þar stóð daglega á sama götuhorni. Þau undraði mest, hvað hann vissi mikið um ísland. Hann kannaðist við þig — hafði talað við þig. . .“ Þeir sem senda Sunnu dagsblaðinu efni til birtingar, eru vinsam- lega beðnir aS vanda til handrita eftir föng- um og helzt að láta vél- rita þau, ef kostur er. Ekki má þó vélrita þéttar en í aðra hverja línu. T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 953

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.