Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1969, Side 19

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1969, Side 19
Himmi vafðist tunga um höfuð: hann hafði þess konar augu heldur sljó og gæflyndisleg hvunndags, sem undrafljót eru að sortna af ósvífinni tuddaillsku, þegar þann- ig ber að. S'á með syfjuðu fiskaugun hafði á réttu að standa, aldrei þessu vant. Þarna var ekkert nema þessi eini pálmi, ekki strá, ekki vatnstoól, ekki blóm, varla vottur af grænni skóf kringum öflugan stofninn, sem stóð þarna einn síns liðs upp úr sandinum: það hefði mátt ætla að honum hefði verið stungið þarna niður líkt og gert er við símastaura. Annað var enn furðulegra: með tilliti til aðstæðna hefði mátt halda að þetta einmana tré berðist i bökkum, að það væri kræklað og þyrkingsleg.t sökum skorts á rekju og lífefnum þeim, sem almennileg- um jurtum er gjarnt að draga til sín úr jörð. En þvert á móti: það var engu líkara en allt það gróður- magn, sem að öllu eðlilegu hefði mátt duga heilum óasa til fram- dráttar, hefði fyrir einhvem gald- ur hlaupið í þennan eina pálma. Hinn gildi sívali stofn var þakinn örþunnu lagi af grænu hrúðri, al- settu smáum sprungum, og í sprungunum sá hvarvetna í græna kviku, raka. Og hátt yfiir höfum mannanna grúfðu sig yfir þá voldug blöðin, löng og breið og þykk og vaxin þéttri ló. Þrátt fyrir vatnsleysið á þessum stað var pálminn allur löðrandi í rekju, sem minnti á dögg, bæði stofn og blöð: það draup ekki beint af þeim, en loftið í kring var mettað votum svala og sandurinn næst stofnin- um dökkur af bleytu. Sá mjölgrái hafði kveikt sér í vindli, London Docks. Hann stakk fiúruðum Ronson-kveikjaranum í skyrtuvasann og sagði við öku- manninum í eins konar kerknis- gremju: Nú þú segir ekkert? Ekillinn brá ekki svip svo séð yrði. Ef ég á að segja eitthvað, þá held óg að þetta heyri fremur undir guðfræðina en raunvísindin, sagði hann, allt að þvi hæðnis laust. Hinn leit illitega til hans. Þú þóttist rat'a. Ekillinn ók séir og saug langan teyg af reyk úr sígarettunni og tók hana síðan út úr sér: það var aðeins eftir stubbur. Hann sagði: Með leyfi að segja þá geri ég það líka. Þetta stendur allt heima: sam- kvæmt kortinu er hér óasi. Hann henti stubbnum frá sér í sandinn. Hér hendið þið ekki rusli, dreng- ir. Þetta var sagt reiðilaust, eigin- lega án nokkurrar áherzlu, likt og lesin væri upp ritningargrein ell- egar farið með möntru. Tveir mann anna, sá kinnaslappi og hinn kiringluleiti, kipptust eilítið við og litu í háifgerðu ofboði í áttina sem röddin kom úr, sá fyrrnefndi seildist meira að segja eftir riffli, sem hann hafði í aftursæti jeppans, en ökumaðurinn beygði sig hins vegar eftir stubbnum af Lucky Strike um leið og hann gaut aug- unum kæruleysislega á þann sem talað hafði. Liklega hafði hann, staðið á bak við pálmann, fyrst þeir sáu hann ekki fyrr en nú, þegar hann allt í- einu stóð hjá þeim, andlit haiis og föt hvort tveggja rakt af dögg líkt og þessi einstæða jurt sem einok- aði gróðurmagn heillar eyðimerk- ur. Hann var í kakí eins og hin- ir, en föt hans ákaflega snjáð, að því er virtist firemur af miklum þvotti en öðru sliti. Hörund hans var svo dökkt að þeir héldu fyrst að hann væri Mári eða Túaregi, en svo sáu þeir að hann var blá- eygur. Hann var heldur hár en svo holdskarpur að hægt var að láta sér detta í hug að hann hefði verið bakaður yfir eldi, unz allir vessar líkamans voru upp þornað ir, en þrátt fyrir þetta var hann drengslega kvikur í hreyfingum og merkilega lifandi til augnanna. Þakka yður fyrtr vinur minn, sagði hann við ekilinn. Ég ætlaði ekki að gera ykkur hverft við, en þessum stað verður að halda hrein- um. Hagfræðingurinn kinnaslappi varp öndinni léttara og sleppti rifflinum. Vð vorum hættir að bú- ast við fóM hér, sagði hann. En samkvæmt kortinu . .. Jú ég veit, greip vinjarbúinn hóg- látlega fram í um leið og hann tyllti sér-niður í sandinn upp við pálmann. Það var líka vin hér. Þangað til fyrir skemmstu. Sú blómlegásta og frjósamasta í allri eyðimörkinni, eða svo fannst mér. Kinnaslappur leit til gúð- firæðingsins og var fremur iUgjarnt sigurhrós í svip hans. Þetta hélt ég, sagði hann. Hvað var það sem kom fyrir? Sand- stormur? spurði hann auðnarhú- ann. Nei. Hann spennti hendurnar ut- an urn hnén og starði á eitthvað 1-angt úti á sandinum, eða í geimn- um. Það var undarlega mikið líf í augunum, engu líkara en þröngt væri um þau, en þó voru þau þreytt eins og af of langri vöku. Nei. Það var ekki stormur, sagði hann hæglátl-ega. Þeir eru skelfi- legir hér á eyðisöndunum satt er það, og sumir segja að þeir annað hvort grandi eða spilli öllu lífi hér fyrr eða síðar, en ég vil meina að vel megi verjast þeim. Á kortið ykkar er merkt vin, segið þið, og hér var líka vin sem var þess virði að hún væri varin. Ég hlóð varnar- garða allt í kringum hana. Þrjá garða hvern utan um annan, alla út stórgrýti. Ég marði mdg marg sinnis og flumbraðist daglega til blóðs á hrufóttum hr.ullungum, og stundum urpú flugur í sárin og lirf urnar átu sig hér um bil inn að beini, áðu-r en ég gæfi mér tíma til að hreinsa skeinurnar. Ég var að þrotum kominn þegar þessu lauk, útpískaður. en mér fannst það þess vert. Því eins og ég sagði held ég að önnur eins vin hafi ekki verið til í allri þessar eyðimörk: hvergi spruttu hærri og beinni pálmatré, og hvergi báru þeir sæt- arj döðlur, og vatnið í lindunum ilmaði engu verr en blómið gleym- mér-ei. Sá kinnaslappi var orði-nn grett- ur af óþoli. Og hvað olli þá þess •um ósköpum, maður minn, spurði hann og vottaði fyrdr hæðni i kald- mjúkri röddinni. Það hljóp pest í gróðurinn, svar- aði íbúi hins eydda óasa angurvært en án æðru, i-íkt og maður sem longu hefur sætt sig við orðinn hlut og slæman. Hún drap hann allan á einni nóttu, eða svo til. Allt saman, pálmana, blómin, gras- ið, alit. Þegar birti af næsta degi varð mér ljóst að ekkert var efbir — nema þessi eini pálmi. Hagfiræðingurinn púaði frá sér strókum af vindlareyk og spíg- sporaði í hri-ng íhugull og óþolin- móður í senn. Fjandans uppákoma, sagði hann og var e-kki langt frá því að sam- úðar kenndi í rómnum. En, bætti hann við, þessa-r jurtapestir koma nú aldrei eins og þjófur úr heið- skíru lofti. Þú hefðir átt að geta haft augun nógu opin til að greina fyrstu sjúkdómseinkennin, og úða og sprauta með DDT og öðru sem drepur allt óhreint. Vinjarbúinn kirndi. T í M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ 67

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.