Tíminn Sunnudagsblað - 09.02.1969, Qupperneq 18
/
..
Guðmundur Ingi:
Selvæa
Til að sjá þig, Selvæn,
sit ég dall í búri,
sé þig eina í seli
setja kvöldsins nyt.
En í aftanskini
útitekinn smali
heldur mylkum hjörðum
haga síns á vit.
Inn um opinn Ijóra
eldur nætursólar
roðar trog og rjóma,
roðar hár og kinn.
Dregur fullum fetum
freisting mfn í seli,
augans eftirlæti,
yndisleikur þinn.
Geng ég þína götu,
gleðst við lága bunu,
meðan mjúkar hendur
mjólkurfötur þvo,
hvolfa þeim til þerris/
þvaga er geymd á stagi,
snúið heim til hvíldar,
hvað sem verður svo.
Sit ég sæH á beði,
sængurstokkl þínum.
Leysir þveng og linda
liðug meyjarhönd.
Skreppa skór af iijum,
skyrta af lausum brjóstum.
Undan feimnum fingrum
falla sokkabönd.
Sé ég, veit ég, Selvæn,
sumardrauma þína
gegnum ár og aldir
eins og vegginn hér.
Verður von að brigðum,
verði mær að skugga.
Verður allt að angri,
ef þú hverfur mér.
> Kötlugjá og „Kötlustapar” -
Framhald af 104. síðu.
Margan hefur undrað, hvernig
staðið gæti á hinu mikla vatni, sem
svo skyndilega brýzt fram úr jökl
inum. f Ferðahiók Eggerts og
Bjarna (II. bindi, blaðsiðu 106—
107) segir svo: „Enginn efast um,
að loft leiki miög um iður þessara
fjalla. Einnig hefur reynslan svnt,
að sum þeirra standa í sambandi
við sjóinn". „Það sem nú var sagt,
114
mun ef til vill styrkja þá skoðun
á eðli jökla þeirra, sem gjósa eldi
og vatni, og hversu þeir haldast
við, það er, að þeir sífeldlega fái
vatnsbirgðir sínar frá hafinu og í
undirdjúpum þeirra séu vold-
ugar vatnsþrær".
Við vitum nú, að sumt, sem þeir
Eggert og Bjarni sögðu, fær ekki
staðizt, en það er líka margt, sem
okkur er ennþá Ókunnugt um.
(Jpp í sjöunda himni —
Framhald af 107. siðv.
aftur, þegar ég yrðl send tii þess
að lesa inn á plötu....
Og ég beið í þöguili þrá eftir
uppreisn æru minnar og austfirzk-
unnár minnar, byggði skýjaborgir
og í'ét mig dreyma dagdrauma.
Hvað beið ég lengi? Eða bíð ég
enn? Nei, ég hef líklega hætt að
bíða, þegar ég heyrði lát doktors-
ins.
Það er orðið langt síðan, og það
er farið að fyrnast yfir ósigurinn.
itHINN - SUNNUDAGSBLAÐ
I