Tíminn Sunnudagsblað - 16.02.1969, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 16.02.1969, Blaðsíða 2
réf til Bjargar Um skeið heíur verið sönn friðaröld í djúpunum og fögn- uður meðal sækindanna. Gaml- ir aular muna Mklega varla aðra eins dýrðartíma: Hvergi agn né gildra, sem iífsháski er að nálgast. Mikið má vera, ef þorskurinn hefur ekki haldið, að upp væri runninn Fróða- friður. Ekki er alls staðar slíkur sældartími í ríki náttúrunnar. Ritningin segir okkur að Mta tii fugla himins. Ég hef fylgt þvi ráði, og ég íhef séð vesalings mávana og veiðibjöllurnar og alt það fuglakyn, sem oftlega jjiá virða fyrir sér af Skúlagöt- unni, fljjúga um í stérum flokk- um, hivimandi og skimandi, með aumkunarverðu látbragði. Ég beld, að bilessaðir fuglarnir bo.tni hivorki upp né niður í duttlungum tilverunnar. Þeir haifa ekki safnað í kormhlöður, sem tæpast er von, því ei lifa þeir við brauðmeti, og þeir eiga ekki heldur fiskkasir, því að þeim er það í brjóst iagið að Játa Jiverjum degi nægja sina þjáning. Og nú er hallæri bjá þeim. >að er fátt og fátæklegt, sem úr skólprætsunum flýtur, og dauður sjór í fiskihöfnunum. Þeir hafa tæpast séð ugga, kút- maga né lifrarbrodd síðan þetta ár gekk í garð. Á annan mánuð hafa þeir rennt fránum augum yfir sjóinn og vappað um fjör- una og Ktið borið úr býtum. Meðal þeirra má sjá gerast þá sögu, sem er fylgifiskur hallær- anna, og raunar tíðkuð í mann- heimi bæði í góðæri og misæri: Þeir, sem máttinn hafa mestan, ihrifsa til sín það Mtið, sem gleypt verður, en hinir fá að horfa á, helzt álengdar. Þetta er MI ævi. Hrafninum gefur gott fólk í vetrarhörkum, og oft er Mknað smáfuglunum, sem flögra um hjarnið. Góð- vild Reykvíkiniga vona ég, að nægi til ^ess að endurnar á tjörninni haldi holdum. En fuglar hafnarinnar, hinir fiðr- uðu vetursetugestir við frysti- húsin og fiskverkunarstöðvar- innar, eiga sér enga hauka i horni á-svona tímum. Þeir verða að bíða og þrauka. Með sanni má segja, að marg- váslegar og sundurleitar haifi verið afleiðingar þess, að sjó- mannaverkfal'lið dróst á lang- inn. Við tvífætlingar, fleygir og jarðbundnir, verðum að lifa í trúnni á það, er löngum hefur reynzt sannmæli, að öll él birti upp um síðir. Kannski verða sjómennirnir komnir á miðin, þegar þetta rennur gegn um prentvélarnar, siðasti karlinn róinn og úti hið sæla andvara- leysi þorsksins, en nægtaöld runnin upp hjá svöngum fugl- um og vinnuvon hjá fólki, sem nauðugt heffur setið auðum hönd um og lagt atvinnuleysisstyrk á borð með sér. Að minnsta sann- áðist það á Norðfirðingum og Siglfirðingum, að biðblundin Mýtur sína umbun. Því viti menn: Aðrir eru fyrir löngu búnir að fá jólapóstinn og fjörga nú anda sinn á kjarnfóðr inu að sunnan, en hinir efni- við í nær óteljandi síldartunn- ur að fella saman í vetur. Því er svo sem ekki að leyna, að allmikil tíðindi gerast með þjóð vorri, etf í saumana er far- ið, svo að ég bregði fyrir orð- tæki, sem við eigum gömlum lúsaieitarmönnum að þakka. Við höifum á undanförnum ár- um getið okkur frægð fyrir skipti okikar við Tertubotna- Klásén og aðra miðlara góðra hluta í útlandinp. Af þessu höf- um við vel þrifizt, sem reyndar er ekki þakkandi, en iðnfyrir- tækin miður. En allt gengur mannMlfið í bylgjum eins og sprottið tún í stormi, nært bezta Gufuneskjarna. Og nú er eins og þær blikur séu á lofti, að til andbyrjar teikni sumum þeim þjóðráðum, er við bjugg- um við í velmaktinni. Einn dag inn sá ég getið þeirra nýmæla í blöðum, að stórkaupmenn hefðu boðið iðnrekendum lið sitt og aðstoð til þess að glæða sölu á innlendum iðnvarningi, þó í því trássi við hið loflega og afrekssæla einkaframtak, að smákaupmenn sumir höfðu um sama leyti tekið á sig þá rögg að neita að selja Sana-öl þeirra Akureyringa. En kannski er það bara svo sem eins og til að tukta Magnús frá Mel og hindra, að peningahirzlur ríkisins springi utan af umboðsgróðanum. í stuttu máli sagt: Gjaldeyrisfórn- ir okkar á liðnum árum eru ekki taldar hafa áorkað því til hMtar að ganga af innlendum iðnaði dauðum. Hann svatf bara, og nú á hann að vakna. Tak upp sæng 'þína oig gakk. Það á að 'láta vel að honum, ef hann gerir það. Nú er mál að ljúka þessu bréfi, því að ekki bíður póstur inn. Þó verð ég að segja þér, hve hnugginn og ráðvilltur ég vaT á sunnudaginn var. Ég sat við sjónvarpið mitt eins og þú manst og beið þess að sjá ráð- hierrana eins og ég er vanur, hressa og pattaralega að bjarga Iandinu. Ég beið oig rýndi, og rýndi og beið. Og þeir komu ekki. Ég hafði séð þá tvo og þrjá^á kvöldi í vikunni á und- an, og jafnan fyilzt sælu trún- aðartrausti, en nú brá þeim ekki einu sinni fyrir. Mér varð hugsað til Kosygins, sem ekki kom í léitirnar fyrr en eftir heil an mánuð.. En ég lét huggast eftir helgina. Því að ég fékk að sjá þá aftur. Og þeir voru svo bústnir, að ég veit, að þeir hafa ráð undir hiverju rifi- J. H. 122 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÖ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.