Tíminn Sunnudagsblað - 16.02.1969, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 16.02.1969, Blaðsíða 18
Vísnaspjall Gamla Breiðan skára sló hinn mikli sláttumaður á síðasta ári í hép íslenzkra hagyrðinga. Þá féllu frá í lotu þrír Húnvetn- ingar, Kristinn Bjarnason, Valdi mar Benónýsson og síðast Sig- urður Jónsson frá Brún og Borgfirðingarnir Guðrún Árna- dóttir frá Oddsstöðum og Hall- dóra B. Björnsson frá Grafar- dal. Hér verða birtar nokkrar vísur eftir þessi fimm, það get- ur af skiljanlegum ástæðum ekki verið um neitt úrval að ræða, aðeins til að minna á, hvað við áttum og mdsstum. Kristinn Bjarnason komst svo að orði um Bólu-Hjálmar, en hann var afkomandi Hjál'mars: Skáldið kól er skapaél skyggðu á sólarbjarma. Enn á Bólu blásinn mel brestur skjól og varma. Skildi enginn öreigans æviþrenging bitra. Þjóðin lengi heyrir hans hörpustrengi titra. Andvaka heitir þessi vísa: Sálin þjökuð verst í vök, von er slök um bætur. Leiða rök að sjálfs mín sök svartar vökunætur. Sem betur fer er honum ekki alltaf svona dimmt fyrir sjón- um: Vægir rosa og veðraþyt, vermist flos á steini. Gegnum mosans gróðurlit guð er að brosa í I'eyni. Valdimar K. Benónýsson gaf mér vitanlega aldrei út neina ljóðabók, en lélegar vísur eftir hann eru vist ekki margar. Hér er svolítið hrafl: Um Jón Bergmann: Beina kenndi listaleið, lag til enda kunni. Orðin brenndu og það sveið undan hendingunni. Til Ásgeirs frá Gottorp: Njóttu lengi gota góðs, góðra drengja, vins og fljóðs, þýðra strengja, lags og Ijóðs, lukkugengis, þreks og móðs. Mundi þeim ekki margs vant, er allar þessar óskir hefðu hrin iðá. Valdimar flyzt til Reykjavík- ur og finnst mikið til um tæfcn- ina og allt, sem rafmagnið vinn- ur: Þúsund hrossa gldi gaf glæsiblossinn rjóði: tæknihnossið alið af úrvals fossastóði. Sfcyldu margar flugvísur öllu betur kveðnar en þessi: Hreyfil glymur laus við land, loftsins brimar voga, fjaðurlima fleytt er gand fram á himinboga. Ekki er nú hlaupið að því að velja úr ljóðum Sigurðar frá Brún eitthvað, sem væri nógu einkennandi fyiir hann. Sætið kallaði hann þessar vísur: Vina mín, elsku vina mín, viltu'ekki þiggja sæti? Ég ber fram einn hrikt- andi bríkastól og býð, ef hann þófcnazt gæti. Vina mín, elsku vina mín, ég veit hann e? ekki góður. Ég bjó hann úr eigin beinum til og býð hann af sneypu rjóður. Svo skiptir um, enda kallaði Sigurður þessar vísur Mynd- breytingu: Úr eggjum álfta hvítra . er unga grárra von. MMBHBMMmsaWBHa Og unga ástin mín bjarta á arndökfcan harm fyrir son. Og arndökkur sonur ástar með ýrða ránfuglsbrá er ef til vili bráðum orðinn ylbjört og ljúfsár þrá. Svo kveðjum við Sigurð með þeirri kvöldbæn, er honum hef- ur nú verið veitt: Fel þú mig, Svefn, í svört- um, þykfcum dúkum, sveipa mig reifum löngum, breiðum, mjúkum, réttu svo strangann þínum þögla bróður. Þá ertu góður. Þeir hafa vist orðið nokkuð rúmfrekir hjá mér Húnvetning- arnir, svo lítið verður eftir handa borgfirzku skáldkonun- um — því miður. Guðrún Árna- dóttir fcvað: Man ég fyrst í leit að ljóði lítinn neista 1 barmi fann. Vorið þyrstu þaut í blóði þungt og geyst um æðar rann. Draumar engir, lægður logi, lúnir fætur, gránað hár. Slitnir strengir, brostinn bogi, burtu kæti, þrotin tár. HalTdóra B. Björnsson verð- skuldar meira rúm en hér verð- ur hægt að Iáta í té. En þessi litlu stef ættu þó að komast með: Vildi ég til þín veginn finna — vorið fór á burt með þér. Þú ert mér fjarri ein- hvens staðar, einhvers staðar fjarri mér. Þó ég leiti heiminn hátfan hvergi ber þig fyrir mig. Leggi ég bara augun aftur engan sé ég nema þig. Og að lokum þetta, sem hef- ur samheitið: Þegar blómið hef ur angað: Alls yndi í einum teyg, unaðsleg þjáning, eitruð guðaveig. 138 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.