Tíminn Sunnudagsblað - 30.03.1969, Page 9

Tíminn Sunnudagsblað - 30.03.1969, Page 9
Fjöldi hvítra manna trúir því, a'ð New York muni farast sökum þess, að mennirnir hafa byggt sér hærri hús en kirkjurnar, hús drott- ins. Mörgum hvítum presti í litlu, gömlu kirkjunum á Manhattan verður það á, að steyta hnefana að musterum Mammons i kringum Rockefell’er Center. í öllum klukknaturnum verður að hafa hljóðmagnara, svo að hringingin heyrist í gegn um umferðargnýinn. Hugsum okkur, að við stöndum uppi á einum skýja'kljúfinum, til dæmis Empire State. Langt niðri er kirkja, lítil og auvirðileg að sjá úr svimandi hæð, líkust gullastokki barns. Þar er verið að syngja ein- hvern til grafar. Líkfylgdin kemur út úr kirkjunni. Umferðin er stöðv- uð hálfa mínútu, og klukkunum er hringt. Svo verður allt sem áður. En ofan af skýjakljúfnum er Man- hattaney öll keimlíkust tíinum miklu graflendum úti á Langey, þar sem auðkýfingar hvíla í firna- miklum grafhýsum og fátækling- ar rotna undir litlum og veðruð- um legsteinum. í þessari borg trúa margir á heimsendi. En hugmyndirnar um það, hvernig hann beri að, eru sundurleitar- Syndaflóðið er mörg- um tiltækast: Fúlt og skoldökkt Hudsonfljótið tekur að vaxa, og það iheldur áfram að vaxa í fjöru- tíu daga og fj'örutíu nætur, eða kannski hundrað daga og hundrað nætur, unz það færir Manhattan- ey í kaf og drekkir þar öllu lí'fi. Aðrir hafa alið með sér þá trú, að Jesús komi gangandi norðan úr Conneeticut — tröllvaxinn Jesús, sem veltir skýjakljúfunum með berum höndum, ef honum er ekki nóg að blása á þá, og treður Rocke- feller Center umdir fótum sér. í 42. götu er til sölu málverk af Kristi við byggingu Sameinuðu þjóðanna. Hann skyggnist inn í sfcóra salinn, þar sem sendimenn þjóðlandanna eru að ræða heims- málin. Allir verða skelfingu lostnir. Sendifulltrúarnir þjóta af stað í áttina að lyftunum. Ú Þant einn situr kyrr, hellir sódavatni í glas sitt. Og við heyrum spurningar, sem koma okkur á óvænt: Var Jesús swartur apd? Var hainn 'kannski svertiinigi? Bergmial af sfcríði kyn- þáttanna rennuir saman við heims- endisdraumana. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 273

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.