Tíminn Sunnudagsblað - 30.03.1969, Síða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 30.03.1969, Síða 13
Það var á glöðum dögum góðra vona, áður en blóðheimstyrjaldar hinnar tyrri kom yfir heiminn, og ungt fólk, sem manntak var í, átti sér sameiginlegan draum:Að bæta landið og hefja þjóðina til vegs. Þá voru þau í æskublóma Guðbjörg Kristjánsdóttir og Einar Jónsson,og fram undan löng ævi, sem enginn vissi, hvað bera myndi í skauti sínu. á fjörðunum á unglingsárum þín- um? — Jú, það var mikið af Norð- mönnum þar á haustin, og sumir þeirra settust að á fjörðunum. Svo komu lika Færeyingar. Þeir voru úti á nesjunum á sumrin — reru þaðan til fiskjar. — En Norðmennirnir hafa ver- ið í síldinmi? — Já, þeir voru í síldinni, mað- ur lifandi. Það var sild alveg til jóla, og No'rðmennirnir kunnu sér ekki læti. Þegar ég var strákur, voiru næturnar als stað'ar út með firðinum. Svo komu skipin, og það var háfað úr nótunum. Þetta voru iandnætur, og þegair minnkaði í þeim, var þrengt að sildinni, þang að t'il allt var upp ausið. Svo sölt- uðu þeir sjildina á skipumum og sigldu heim, þegar kominn var farmur. Hún var alveg uppi við land, síldin — fór alia leið inn í fjarðarbotn. Stundum voru torfurn ar svo þéttar, að það sást ekki í sjóinn — svartur sjór, sögðu menn. — Voru ekki einhverjir íslend- ingar, sem mikið höfðu umleikis í Mjóafirði? — Það mætti kannski nefna Konráð Hjálmarsson. Hann var í veldi sinu á þessum árum á Brekku, einhver umsvifamesti út- gierðarmaðurinn á Austfjörðum. Fólk flykktist á Austfirði í atvinnu Ieit, því að óvíða var jafnblómlegt og þar. Sunnlendingar komu og settust að í Mjóafirði — það voru þeir, sem byggðu Brekkuþorpið. Þegar ég var strákur, voru þarna fjögur eða fimm hundruð manns og margir, sem eimhverja útgerð höfðu. Svo fkittist margt af þvi til Norðfjarðar, og þangað fór Kon- ráð sjálfur og hafði engu minna um sig en á Brekku. — Mjófirðiimgarnir — mynda þeár kannski gamla kjamann i Nes kaupstað? — Nesið, já — þeir byggðu það. Það var fjöldamargt, sem fluttist þangað. Dugnaðarfól'k. — Voru ekki hvalstöðvar þarna, þegar þú varst að alast upp? — Nei, þær komu seinma. Síðar meiir var hvalstöð á Asknesi — það var jörð, sem mamina átti einu sinni. — Nú er Fjörður i eyði? — Já, og ég er viss um, að það er einhver bezta jörðin á Austur- landi. Þar stendur allt autt — gott hús með sima og rafmagni. Mér finnst bágt að hugsa til þess. Svo var mikil veiði í ánni, Fjarðará. Ég var alitaf i henni. þegar ég var strákur, og væri dregið á, fengust iðulega fullir pokar af vænni bleikju. Þá var líf og fjör við ádráttinn. —- Var kannski yfirleitt talsvert líf og fjör á Austfjörðum á upp- vaxtairárum þínmfi? — Það mun naega að segja. T f M I N N — SUNNUD4GSBLAÐ 277

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.