Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 5
um marga linyttna söguna, þegar þeir voru að koma heim af engj- líin á fögrum sumarkvöldum. Og hér eru svo þessar gömlu sögur komnar fyrir sjónir almennings, áratugum síðar. Nafn bókarinnar er mjög haglega valið: Saltkorn í inold. „Þér eruð salt jarðar“, sagði Jesús Kristur. Já, víst voru þessir gömlu karlar og kerlingar trúir og traustir þegnar þessa litla þjóð- félags, hér norður á hjara verald- ar, hver á sínum afmarkaða bletti. Og þjóðin komst ódrepin í gegn- um allt harðréttið og hörmungarn- ar. meðal annars fyrir þeirra til- verknað Víst voru þeir „salt jarð- ar“, þótt sitthvað hafi orðið skringi legt í sambandi við þá — eins og okkur öll. Við staðnæmdumst stuttan tíma á ströndinni frægu við hafið. þar grétum við eða giöddumst. ýmist van eða of. Þar kynntumst við vaskleika körlum og konum — guði sé lof. . . . Þetta eru upphafsorðin á for- miálanum að fyrra bindi. Þeim for- mála lýkur svo með þessurn orð- um: Þau sigldu á hafið og síðan — já. síðan veit enginn neitt. Og svo skulum við bregða okk- ur með höfundinum út í kirkju- garð og vita hvort ekki rifjast eitt- hvað upp, þegar við förum að rölta þar á milli þúfnanna: Hér sefur Salómon Jónsson, svarbhærður, úfinn, grimmur, afrenndur maður að afli, orðfár, rómurinn dimmur. Það gekk víst á ýmsu fyrir þelm karli á meðan hann dvaldi liérna megin, a-m.k. átti hann í eilifum útistöðum við Iíóls-Manga, bróður sinn. Og einu sinni, þegar þeir flugust á í illu, bræðurnir, þá gerð ist það eitthvað á þessa leið: og Salómon festi með fræknleijc einn fingur i bróður síns kjafti og ætlaði að rífa þar út úr með alveg sérstökum krafti. . . En þótt Hóls-Mangi væri að vísu væskiiimenni, þá var hann þó . . .vígtenntur eins og hundur og fól, svo sem frægt er orðið, því fingurinn heít hann i sundur, hann tolldi rétt saman á taug- . . Þar fékk þó fanturinn Salómon einu sinni sína vöru selda. Og ekki má gleymast að koma við hjá þeim bræðrunum frá Leiru. sem voru háværir hreystigarpar, hestamenn frægir með meiru. En ekki voru þeir nú samt alllof vel þokkaðir af nágrönnum sínum. því að þeir drukku brennivín eins og vitlausir menn, og riðu svo bráðólmum hestum um sveitina. jafnvel upp á lág torfþök kotung- anna svo allt var í braki og brestum og fólkið bljóp allsnakið fram úr og frávita út á blað: er dómsdagur drottins kominn? er djöfuliinn laus. eða livað? Nú er langt urn liðið og bein bræðranna fúna í garðinum, en i hvert skipti, sem kátir unglingar hleypa fjörugum hestum um grundirnar þá dunar i dimmum moldum svo dauðir leggja við eyru. og grasið bærist á gröfum garpanna tveggja frá Leiru. Þessar seinustu Mnur eru fagur vitnisburður um vinnubrögð höf- undar síns. Þótt glettni hans geti stundum orðið að beinum ærslum. þá verða ærsl hans aldrei að skrípalátum. Fyndni lians er of sönn og eðlileg til þess að í benni verði tómahljóð. Síðara bindið af Saltkornum í mold. sem kom út árið 1965. er tæplega eins tilþrifamikið sem hið fyrra, en þó eru þar nokkur kvæði, sem standa í fremstu röð þess, sem Guðmundur hefur ort í þessum anda. Má þar til dæmis nefna kvæðið um danska faktor inn, sem var „danskastur allra manna“. en er nú „orðinn að ís- lenzkri mold“. (Meira lagðist nú ekki fyrir kappann). Ekki var nú Mtið bramboltið í þeim karli á með an hann var og hét. En þegar hann bað íslenzka stórbóndann uim hönd og hjarta dótturinnar, eftir messu við Krossevrarkirkju. þá gerði hann það með svofelld- um orðum: — Ég tiúi ég tekur hana, ég trátí i'ig elskar henui, já. mikinn, tað er nú tað. Og víst fékk hann jávrði bónda. þótt hiónabandið yrði honum til lítilla heilla, en það er nú önnur saga, sem of langt yrði að rekja hér. Að lokum skulum við svo nema staðar hjá leiðinu hennar Vöiku gömlu frá Tjörnum. Hú.n ha:ði þann starfa í lifanda lífi að passa kvíaær hreppstjórans — forr í skapi og hafði ódrepandi löngun til þess að vinna sér eitthvað til frægðar, áður en ævin væri ö i Og sú ástríða varð henni að minnsta kosti einu sinni að falli. Það var eitt kvöld, að aðeins úr- fáar gamalrollur komu röltandi heim undir kvíarnar. en smaii og hundur hvergi nærri. Hvað vai nú á seyði? Höfðu álfarnir heillað Völku? En ekki þýddi að velta vöngum. heldur hefjast handa, og það strax. Og „afi“ söðlar hros» og hefur dauðaleitina. Og rni sjá- um við fyrir okkur einhverja eft- irminnilegustu og fyndnustu mynd þessarar bókar, þar sem karl skeið ríður Refstaða-Rauðku aftur og fram um landareignina í leit að Völku. „Og vestur við Vátnsmýr arpollinn“ ríður hann loks fram á hana og dauðskelfdur fleygir liann sér af baki og biður guð al- máttugan að hjálpa sér þvi Mla var ástatt um Völkir öðrum stuttfæti sínum krækt hafði hún yfir kollinn og kom bonum ekki þaðan. allt var í hörðum hnút. Af hverju í ósköpunum tók aum ingja manneskjan upp á þessari bölvaðri vitleysu? Æ. hún vildi bara sanna sjálfri sér það að hún gæti þetta. rétt eins og kaupamað- urinn á Tjörnum. sem var ,.katt- liðugt kvikindi“ og var sí og æ að leika þessar og aðrar kúnstir fvr- ir krakkana þar á bænum. Eftirmáli síðara bindis þykir mér einna bezt gerður af þessum kvæðurn Það væri ákaflega freist andi að birta hann hér ailan. en bæði leyfir rúmið það ekki, og svo væri það líka bæpinn greiði við þá. sem vilja kvnna sér þetta af sjálfsdáðum. Þó get ég ekki stillt mig uim að tilfæra hér seinusta imurnar: r i R I N N SUN I'ÍUB AGSBLAÐ 845

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.