Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Qupperneq 4

Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Qupperneq 4
Guðbrandur Magimsson: Saga póstkortanna í eitt hundrað ár Árið 1869 voru fyrstu póstkort gefin út í Vín. Fjórum árum áður hafði þýzkurn póstmeistara, Hein- riöh von Stephan, dottið í hug að nota bréfspjöld til að skrifa á stutt ar orðsendingar. Burðargjald fyr- ir þau átti að vera allmiklu lægra en venjuleg bréf. En yfirvöld Þýzkalands neituðu að taka upp þessa nýjung. Austurrískur maður, að nafni Emanúel Herrmann, fékk svipaða hugmynd nokkru síðar. Hann var efnahagssérfræðingur og um tíma ráðherra. Eins og von Stephan vildi Emanúel hafa burðargjöld in lægri á póstkortunum en venju legum sendibréfum, og taldi hann, að mismunurinn mundi auðveld- lega vinnast upp, því að bréfa- skriftir mundu aukast til muna. Um þessar mundir var von Maly barón póstmeistari Austurríkis, og féllst hann strax á hugmyndina. Fyrstu póstkortin komu svo út í Vín 1. október 1869. En póststjórn in óttaðist, að fólk kynni að mis- nota þau á ýmsan máta, og gaf út tilkynningu, þar sem hún kvaðst ekki bera neina ábyrgð á innihaldi þeirra. Póstkortin urðu strax mjög vin- sæl og fyrsta mánuðinn seldist hálf önnur mil/ljón i Vín. Næsta ár voru þau leyfð í Þýzkalandi, og má geta þess, að fyrsta útgáfu- daginn þar seldust 45 þúsund í Berlín. Nákvæmlega einu ári sið ar, haustið 1870, voru þau fyrst seld í Englandi. Þar var eftirspurn in slik og þröngin við pósthúsin, að kalla varð á lögreglulið til að hafa stjórn á biðröðunum. Og enn má geta þess, að árið 1871 kom að meðaltali hálf önnur milljón póstkorta vikulega í póst í Eng- landi. Fyrst í stað var leyfð aðeins ein stærð á kortunum, og skyldu þau vera 9x11,5 sentimetrar, en frá og með 1899 máttu þau vera 9x14 sentimetrar. Var það lengi algeng- asta stærðin, einnig hér á landi. Á annarri hliðinni mátti vera aug- lýsing eða mynd. Helming bakhlið arinnar skyldi nota til áritunar, e:i hinn helminginn fyrir frímerki og nafn og heimilisfang — þann hægri. í Danmörku voru til ákvæði Fimmtán menn eru taldir safna íslenzkum kortum. Eng- inn þeirra á allt, sem komið hefur út af því tagi, enda vís- ast ,að glatkistan hafi þegar gleypt sumt. Sá, sem drýgst- ur hefur orðið við söfnunina á 3400 kort. Einn þessara safnara er Guðbrandur Magnússon, kenn- ari á Siglufirði. Hann er fróð- ur vel um þessa hluti og aðra þeim skylda. Hann hefur skrif- að handa Sunnudagsblaði Tím- ans þessa grein um hundrað ára sögu póstkortanna og póst- kortaútgáfu á íslandi. i ------------------________ um stærð póstkorta. Þar máttu þau ekki vera minni en 7x10 sentimetrar og ekki stærri en 10,5x15 sentimetrar. Ekki er mér kunnugt um nein ákvæði hér á landi í þessu sam- bandi, og má vel vera, að fyrstu forleggjarar okkari hafi látið sníða sín kort eftir erlendri fyrirmynd. Stærðin 9x14 er mjög handbæg. En eins og allir vita, eru kort nú gefin út í öllum mögulegum stærð um, og svo er líklega um allan heim. Mikið hefur komið út af kortum hér, sem eru um 10,5x15 sentimetrar, einnig óvenjnleg stærð, sem er 10,5x24 sentimetrar, sömuleiðis hlussustór kort, sem eru 16x22 sendimetrar að stærð og þar um. Þá hafa einnig komið 940 T I M 1 N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.