Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Page 5

Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Page 5
Benedikt Gröndal út alls konar smákort. ónothæf til allrar áritunar og varla hæf til að senda. nema þá í umslagi. Eftir því sem ég hef komizt næst er mjög líklegt, að notkun póstkorta hafi hvergi verið eins almenn og í Englandi. Þar mun hún hafa náð hámarki árið 1904, en það ár komu þar viku’.ega sextán milljónir korta í póst. Á árunum 1890—1900 er talið, að póstkortin hafi verið orðin algeng í öllum löndum Evrópu, nema kannski á íslandi. Póstkorlasalan í Þýzkalandi, og þó sérstaklega í Englandi, var svo mikil, að' al- mennt var talið, að hún nálgaðist æði. Auk þess sem fór gegnum póst- inn. var þá þegar safnað mörgum milljónum korta árlega, einkum ónotuðum kortum, og safnarar voru fjölmargir. Einnig mátti heita. að hvert heimili hefði sitt „albúm“. Hefur þannig varðveitzt mesti fjöldi korta um þvera og endi- langa Evrópu. Sumarið 1967 dvaldist Jón Hall- dórsson, póstkortasafnari í Reykja lúk. um tíma í Lundúnum. Kom hann þar í fornsölur, sem ein- göngu verzla með myndir og göm- ul kort. Sögðust forráðamenn sumra þessara verzlana vera með allt að hálfa milljón korta, og eru íslenzk kort flokkuð með kortum frá Skandinavíu. Jón segir: „Það bezta, sem ég náði í þarna, voru fjórtán kort, útgefin af Ólafi Johnson og send af honum sjálf- um í kortaskiptum til konu í Róm. Samúel Eggertsson. Þaðan berast þau einhvern tíma til London og rúmum sextíu ár- um seinna korna þau aftur heim til íslands eins hrein og fín og þau fóru héðan. Að þessu þótti mér gaman“. Það er talið, að fyrstu útgefend- ur póstkorta hér á landi hafi ver- jð þeir Ólafur Johnson, stórkaup- maður í Revkjavík, og Karl Finsen vátryggingaforstjóri, einnig i Reykjavík. Svo segir Ólafur Björns son í blaðinu Akranes. Ólafur tei- ur þó lfklegt, að Jón Vestdal, sem var uppeldissonur Sigfúsar Ey- mundssonar, kunni að hafa riðið á vaðið og látið gera eitt kort í litlu upplagi, 500 eintok. Upplag þeirra Ólafs og Iíarls var venju lega þúsund kort af hverri tegund. Hafi Jón Vestdal gefið út fyrsta kortið, er það í fyllsta máta eðli- legt, þar sem fósturfaðir hans var lærður myndasmiður og þeir fé- lagarnir, Ólafur og Karl, höfðu flestar sínar myndir frá Sigfúsi. Hann lærði ljósmyndasmíð i Björgvin á árunum 1863—1864. Kortin voru prentuð i Þýzkalandi, fyrst aðeins gráhvit, en seinna lit- prentuð. En ekki leið á löngu áð- ur en farið var að prenta þau i Reykjavík, til dæmis í prentsmiðju Davíðs Östlunds (1907) og svo í Gutenberg. Hinn mikli bókasafnari, Bene- dikt S- Þórarinsson, safnaði ýmsu smáprenti, þar á meðal póstkort um. Safn hans er í liáskólabóka- safninu. Eru þar nokkur „álbúm“ með þessutn fyrstu útgáfum, eti Ríkarður Jónsson hinar elztu eru frá því um síðustu aldamót. í safni Benedikts eru um 2300 íslenzk kort íþar með nokkur frá Winnipeg). um 180 kort frá Færeyjum, um fjörutíu grænlenzk og fáein frá Björgvin. Kort frá Reykjavík. Hið gamla stjórnarráðshús íslands og fyrr- verandi tukthús, einnig eitt sinn landshöfðingjahús og stiftamt- mannshús, er vafalaust ein af kunnustu byggingum Reykjavíkur, enda oft verið prentað bæði á póst kort og frímerki. Til er kort meö mynd, sem tek- in hefur verið suður yfir lækinn í Reykjavík áður en byggt var yfir hann, en hann var opinn fram um síðustu aldamót. Vafalaust hefur margur krakkinn dundað sér við lækinn í þann tíð. Ragnar Ásgeirs- son sá þetta kort hjá rnér eitt sinn, og varð honum þá að orði: „Nei! Og þarna er lækurinn, sem við Ásgeir bróðir minn vor- uim að leika okkur að stökkva yfir, þegar við vorum strákar“. Alþingishúsið kemur okkur kunnuglega f.vrir sjónir, svo mörg kort sem hafa verið gefin út með því. Langoftast fylgir dómkirkjan með, smá í sniðum. Með skemmtilegri kortum, sem liafa verið gefin út af byggingum í Reykjavík, er tréskurðarmynd af háskólanum eftir Hans A. Muller- Framan við húsið eru bílar, ungt fólk og bækur — mikið af bókum. Þar er einn náunginn stiginn í stól inn og les úr miklum doðranti. Antvar húkir í grasinu í huglelð- ff I « I N N - SUNNUnAGSBLAÐ 941

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.