Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Side 7
tHtek'
f^xécítm-utMr^ffí
'\
. .•:':::Í:-.-: :•::.
............ ........
Kjötpottur landsins, teiknaöur og gefinn út á þeim dögum, er Björn Jónsson var ráðherra. Sjálfur er hann að færa upp
úr pottinum, en i kring um hann eru vlldarmenn hans ýmslr, hver vlð sitt flát. Kjörorðið er: Gott er, þegar slfk ævintýrl
gerast með þjóð vorri.
v- í
! i 0n »
í? v* w/i' * ■.
son og studdi hann til mennta, og
Símon Dalaskáld. Hann safnaði
efni til ævisögu Bólu-Hjálmars,
auk þess sem hann var sjálfur
ekáldmœltur. í flokknum eru ann
ars þessir menn: Brynki frá Hólmi,
Dabbi í Nesi, Eyjólfur ljóstollur,
Gísli „þingmaður Bolvíkinga",
Gvendur dúllari, Jón sinnep, Jón
söðli, Óli gossari, Óli prammi,
Símon Dalaskáld, StuttbBjarni, og
Sæfinnur með sextán skó.
Hin fagra skrautmynd Benedikts
Gröndal til minningar um 1000
ára byggð á íslandi 1874 er all-
fræg. Upplhaflega var hún teikn-
uð i Mtum og loks gefin þannig út
árið 1930, og kostaði þá sex krón-
ur. Pyrst var hún prentuð svört
og hvít og seinna gefin út á korti.
Litprentaða útgáfan er mjög fal
leg, og hef ég oft undrazt snitli
Benedikts. Hvar hefur hann lært
slíkt handbragð? Áreiðanlega
hvergi. Þetta er meðfætt. Auðvitað
hefur Benedikt séö skreytingar i
gömlum handrltum og annað slíkt,
því að enginn er svo frumlegur,
að hann hafi ekki við eitthvað að
styðjast.
Til er kort af Vatnsmýrarborn-
um, sem varð gullbor. Á því er
þessi áletrun: „Reykjavík: Gullbor
un“. Myndina hefur Sigfús Ey-
mundsson tekið og svo gefið út
kortið. Einnig er til frá hans hendi
kort, sem á er letrað: „Fyrsta járn
brautarferð á íslandi". Á pöllum
þessarar fyrstu, kannski nálega
einu járnbrautar hér á landi. er
margt manna. Einnig er fólk um-
hverfis járnbrautarvagninn. Hér
mætti og nefna kort, sem á er
letrað: „Fyrstu landskjörnu þing-
mennirnir". Þeir eru sex, og mynd
unum raðað líkt og á skólaspjaldi.
Svipað kort er til, sem á er letrað:
„Fyrsta stjórn Eimskipafélags Is-
lands".
Og enn mætti nefna gamalt
kort, skopteikningu af lögreglunni
1 Reyfkjavdk. Ég hef eintak undir
höndum. Sá, sem sendir kortið,
hefur skrifað aftan á: „Þekkir þú
ekki lögregluþjónana 1 höfuðstaðn
um?“ Ekkert ártal i|r á kortinu,
en það er litprentað. Búningar eru
dökkbláir og hjálmar á höfði. Svo
vill til, að sá, sem kortið fékk,
hefur skrifað nöfn mannanna á
það, við hvern og einn. Nöfnin
eru þessi: Þorvaldur, Ólafur,'
Rúnki, Jónas og Páll. Svo mikið
er haft við, að nafn útgefanda er
með grísku legri: Kostnaðarm. E.
Sandholt.
Auðvitað er til mesti fjöldi póst-
korta frá Reykjavík, bæði gamalla
og nýrra. Ómögulegt er að nefna
nema fátt eitt hér og læt ég þetta
nægja.
Fánakort. Meðan fánamálið var
á döfinni, frá því rétt eftir alda-
mótin og til 1915, er við fengum
fánann, voru gefin út nokkur
kort með HvítJbláni, bæði einum
sér og ásamt öðru, til dæmis 1911,
þegar Jón Sigurðsson var hafður
í miðjum fánanum. Útgefandi var
Einar Gunnarsson, einn af land-
varnarmönnunum. Einnig 1913,
líka ásamt Jóni Sigurðssyni, þar
sem fáninn er á þverslá yfir höfði
hans, útgefandi Jóhann Eyjólfsson.
Þá gaf Davíð Östlund hann út á
korti 1907, ásamt hluta af kvæði
rtHINN — SUNNUDAGSBLAÐ
943