Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Blaðsíða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Blaðsíða 16
býr hérna í Bjarkargötunni, og hann leiddi hana alltaf me'ð sér, hvert íseim hann fór. Ég get til gamans sagt >ér eina sögu af við- skiptum þeirra. Einn góðan veður- dag að sumri til gekk hann hérna niður að tjörninni til þess að sitja þar í góða veðrinu o g hlusta á fuglana. Auðvitað hafði hann tik- ina með sér, eins og vant var, þótt þetta séu ekki nema fáir faðmar, eins og þú sérð. Jæja, á heimleið- inni tekur tikin alilt í einu upp á því, að vilja beygja þvert úr leið. Maðurinn skildi ekkert í þessum kenjum í skepnunni, og þar sem hann var alveg hárviss að rata í myrkrinu þessa örstuttu leið, hérna heim að húsinu, tók hann af henni ráðin, sem hann þó aldrei annars gerði. En viti menn: Hann hefur ekki gengið nema eitthvað þrjú eða fjögur skref, þegar hann dettur niður í skurð, sem viðgerð- armenn höfðu grafið í gegnum gangstíginn á meðan hann hafði setið þarna niðri við tjörnina. Tík- in skiildi, að maðurinn gat ekki séð þessa hæt'tu, og vildi því sneiða hjá henni. — Já. Þetta getur maður nú kallað vit. Og hver urðu svo ör- lög þessarar afburðaskepnu? — Það er nú sorgarsaga. Hún fékk einhvern ókennilegan sjúk- dóm. sem ekki réðist við, svo að það varð að sikjóta hana. En auk þess er mjög vafasamt, að okkur hefði haldizt á henni til lengdar, því að krakkar og unglinigar esp- uðu hana og ertu, svo að hún var að verða griirim. Hún var jafnan tjóðruð úti á blettinum fyrir utan blindravinnustofuna í íagólís- stræti 16 á meðan eigandi hennar var að vinnu sinni. — Já. Alveg rétt. Ég man, að ég las einhvern tímia í dagblaði fyrir nokkrum árum, að verið var að skora á börn og unglinga, svo og á foreldra, að sjá um, að ekki væri verið að spilla þessari ágætu skepnu, sem svo ómissandi væri eiganda sínum. En nú er hann hundlaus eða hvað? — Já. Og það er mjög illa far- ið, að ekki skuli vera friður með þessar dásamlegu skepnur, sem svo mikið gott geta gert. Góður og vel þjálfaður leiðsöguhundur er ekki hótinu verri tl fylgdar blind- um manni en sjáandi maður. Hund urinn stanzar, hleypir bílum fram hjá og fer alls ekki út á götu, nema öllu sé óhætt. — Þú varst að segja, að þessi hundur hefði verið fenginn frá Danmörku. Vel á minnzt: Hvert er samband ykkar við samtök blindra manna í .öðrum löndum, til dæmis annars staðar á Norður- iönduim? — Ja, það er nú kannski ekki hægt að tala um fast samband, en bæði Norðmenn oig Danir hafa ver- ið afarhjálplegir við menntun blindra manna héðan. Til dæmis eru tveir við nám úti núna — ann- ar í Danmörku, en hinn í Noregi. Ennfremur er einn maður frá okk ur í Danmörku núna til þess að læra blindrakennslu. — Hverja telur þú vera algeng- ustu orsök blindu? — G'lákan er langsamlega al- gengust. Og það gildir um hana, eins og alla aðra sjúkdóma, að allra mest nauðsyn er að koma nógu snemma, hvort heldur er tl lækningar, eða bara til eftirlits, einkum ef gláka er í ættinni. — Já. Þú ert búinn að sinna þessum málum afarlengi. Hvert er viðhorf þitt til þessara mála nú, eftir öll þessi ár? — í einu veigamiklu atriði hef ég skipt um skoðun, síðan ég fór að gefa mig að þessum miálum fyr- ir röskum fjörutíu árum. Ég taldi þá, að blindir menn ættu að vera sér, til dæmis á vinnustað og svo framvegis. Þetta er reginfirra. Blindir m'enn eiga einmitt að vera inni á starfsvettvangi okkar hinna, enda hefur reynslan sannað, að það er síður en svo óframkvæman- legt. — Er eitthivert sérstakt starf, fyrir utan körfugerð og bursta- gerð, sem hentar blindum mönn- um sérlega vel? — Það er orðið auðvelt að fá símaborð, sem sérstaklega eru gerð fyrir blinda menn. Og mörg stór- fyrirtæki og stofnanir hafa ein- göngu blint fólk við símavörzlu. Því má skjóta hér inn, að á skipti- borðinu niðri í Sambandshúsinu vinnur blindur maður. Þetta er einmitt tilvallin atvinna handa blindum. - — En svo að við snúum okkur að öðru: Þekktir þú Þórð á Mó- fe'llsstöðum? Hann var fyrsti blindi maðurinn, sem ég las um á prenti, þegar ég var unglingur. — íá, já. Ég þekkti Þórð. Hann var ákaflega skemmtilegur mað- ur. Hann var iþjóðhagasmiður og uppfinningamaður, svo að lands- frægt varð. Hann smíðaði sjálfur sögunarvél eftir minni, eftir að hafa fengið að þukla á einni slíkri hér suður í Reykjavík á iðnsýning- unni árið 1905. Svo hef ég þekkt annan afburða kkemmtllegan blindan mann, Hal* T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ sína. Bltftdur hefur hann veriS siðast liðin átján ár, og nú stendur hann á átt- ræðu. 952

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.