Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Page 12
Stefán Eiríksson var í senn
eftirminnilegur samborgari og
mikill listamaður. Verk hans
munu lengi tala sínu máli um
meistara sinn. Þeim fækkar aft-
ur á móti, er voru honum ger-
kunnugir, því að hann lézt árið
1924.
Hér rita tveir menn þætti um
ævi hans og störf, báðir Aust-
firðingar eins og Stefán sjálfur.
Fyrri þátturinn er eftir Jón
Þórðarson prentara, en hinn
síðari eftir Ríkarð Jónsson
myndhöggvara, sem fyrstur
manna lauk myndskurðarnámi
hjá Stefáni.
Stefán Eiríksson, er hann var kominn
á efri ár
1.
Stefán Eirlksson listskurðar-
xneistari eða Stefán hinn oddhagi
(eins og hann var venjulega
nefndur) fæddist 4. ágúst 1862.
Foreldrar hans voru Katrín
Hannesdóttir frá Sómastaðagerði
Guðmundssonar hún var komin
af Asunnarstaðaætt, en framætt
hennar verður ekki rakín með
vissu lengra en til Bjarna Guð-
mundssonar á Karlsstöðum á
Berufjarðarströnd, og Eiríkur
Einarsson, er fæddur var 1833, en
ólst upp 1 Hjarðarhaga hjá
Eyjólfi móðurbróður sínum, en
dvaldi síðan á Jökuldal.
Þótt Stefán hafi verið einn
mesti skurðsnillingur sinna sam-
f tiðarmanna islenzkra, vóru einn-
ig til skurðsnillingar fyrr á öld-
um. Skal þá fyrst nefnd Margrét
oddhaga, er skar bagal handa
Grænlendingabiskupi og hefur
sennilega líka skorið biskupsstaf-
inn í kistu Páls Jónssonar. Þá
má og nefna Guðbrand Þorláks-
son, er sjálfúr skar mpphafsstaf-
ina í Guðbrandsbiblíu, einnig
Þórð Þorláksson og Guðmund
bíld, er smiðaði Skálholtskirkju
Brynjólfs Sveinssonar. Ennfrem-
ur Árna biskup Þorláksson.
Stefán Eiríksson var afkom-
andi Þorsteins jökuls, en það er
ein höfuðættin í Ættum Aust-
firðinga. Frá Þorsteini jökli segir
m. a. í Ættum Austfirðinga:
„Þorsteinn jökull bjó á Brú á
Jökuldal um aldamótin 1500. Það
hefur verið algeng sögn um hann
í Austfjörðum, að hann hafi búið
þar, þegar plágan mikla gekk
108
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ