Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Blaðsíða 5
SKÚLi HELGASON: Þáttur af Ófeigi smií í Heiðarbæ Milll þeirra Kristjáns hrepp- stjéra í Skógarfcoti og Ófeigs á Heiðarbæ urðu mægðir. Jón, son- ur Kristjáns, gekk að eiga Guð- rúnu yngri Ófeigsdóttur, en missti hana eftir mjög stutt hjónaband. Varð Jón Kristjánsson síðar bóndi í Skógarkoti eftir föður sinn og hreppstjóri Þingvallasveitar- manna. Á árunurn 1820—1830 byggði Kristján í Skógarkoti géstastofu, er stóð fram yfir 1880. Á síðustu árum var hún orðin hrörieg og þá notuð sem geymsluhús. Þessa stofu málaði Ófeigur. Var hún ljósblá í lofti og á veggjum.einn- ig var hún skreytt rósablöðum uppi við loftið umbverfis. í stof- unni voru þrír loftbitar. Þeir voru dekkri á lit en loftið og skreyttir rósum beggja vegna. Einnig var stofuhurðin skreytt rósum ^ á spjöldunum, sem inn sneru. Ás- mundur Eiríksson bjó í Skógar- koti 1880—1884, siðar lengi bóndi á Neðra-Apavatni í Grímsnesi (dáinn 1949). Mundi hann vel eft- ir þessari stofu og lýsti henni fyr- ir þeim, er þetta ritar. Guðrún, kona Ásmundar, var dóttir Jóns hreppstjóra i Skógarkoti og máttl þeim hjónum vera vel kunnugt um sögu þessa stofuliúss. V'ð út tekt á Skógarkoti 1843, þegar Jón Kristjánsson tebur við jörðinni eft ir föður sinn, er stofunnar ekki getið. En augljós skýring virðist vera á því. Jörðin var elgn Þing- vallakirkju, en stofan hefur ekki verið jarðarhús. Kristján hrepp- stjóri iiefur byggt hana sjálfur fyr- ir eigin rei'kning, og sonurinn sið an tekið hana eftir föður sinn. Þórður Sveinbjörnsson varð sýslumaður í Ámessýslu árið 1822 SÍÐARI HLUTI og fluttist þangað sama sumarið. Honum virðist hafa verið kunnugt um rokkasmíðar Ófeigs, því að strax um haustið hefur hann beð- ið Kristján hreppstjóra í Skógar- koti að kaupa rokk hjá Ófeigi, vafalaust handa konu sinni. í bréfi dagsettu 18. nóvember (1822), sem Kristján ritar sýslu manni getur hann um þetta með svofelldum orðum: „Ófeig hef ég ekki fundið síðan ég fékk bréf yðar, því hann hefur verið suður í Gufunesi, en þegar hann kemur, skal ég reyna að út- vega rokkinn, en þið semjið um betalinginn." Rokkinn hefur sýslumaður sjálf- sagt fengið og hann reynzt vel. Svo líða næstu þrjú ár. Þá gerist það, áreiðanlega fyrir áeggjan Þórðar sýslumanns Sveinbjörns- sonar, að Ófeigur sækir um viður- kenningu eða verðlaun fyrir rokka smíðar sínar. Verður nú umsókn in birt hér og einnig meðmæla- bréf sýslumanns. Eru bæði bréfin á dönsku í frumriti, en birt hér í íslenzkri þýðingu. Heiðarbæ í Árnessýslu á íslandi 8. ágúst 1825. Til konungs. Árum saman hef ég af fremsta megni leitazt við að rækja köllun mína sem trúr þegn Yðar Hátign- ar í hinni erfiðu bændastétt og einnig leitazt við meir en á einn hátt að vinna það gagn i þegn- félaginu, sem unnt er í bóndastöð minni með litlum efnum. Þar sem ég hafði engan arf að treysta á hef ég með svo mikilli kostgæfni sem unnt hefur verið hirf um bú- jörð mina og með þeirn liætti ár- lega þegið af náttúrunnar hendi gegn sveita mínum nægilegt tij framfærslu minnar stóru fjöl skyldu. Á þennan hátt hefur mér verið kleift að framfæra og ala upp tólf börn, sem nú eru að mi'klu leytí farln { þjónustu anh- Íirra og munu með tímanum koma bændastétt eins og ég. Á hinum öngu vetrum, sem hér á landi efja bóndann frá allri vinnu, er að jarðyrkju lýtur, hef ég árum saman lagt stund á rennismíði án annars leiðbeinanda eða kennara en upplags, æfingar og reynslu og með þessu móti náð svo langt, að ég hef þegar smíðað nálega fimm- hundruð spunarokka, sem að nokkru leyti hafa selzt hér í Ár nessýslu, að nokkru leyti í Gull- bringu-, Borgarfjarðar- og Rang- árvallasýslum, og er óskað eftir fleiri en ég get smíðað. Mér til gleði hyggst ég að hafa með þess- ari viðleitni minni nokkuð stutt að vexti og viðgangi heimilisiðnaðar í Árnessýslu og nágrannasýsluin, og ég vona, að yfirvald mitt sanni það, sem hér er allra undirgefnast bor- ið frarn. En þar sem ég veit, að Yðar landsföðurlega Hátign iítur með velþóknun á sérhvern þann, háan eða lágan, sem vinnur eitt- hvað gagnlegt til almennings heilla, þá dirfist ég hér með í allra dýpstu undirgefni að sækja um: Að Yðar hátign allra mildi- legast vildi veita mér hæfileg laun eða sæmd fyrir góðs tilgangs við- leitni mína, og gæti það orðið öðrum samborgurum mínum hvatning til svipaðar iðni. Allra undirgefnast. Ófeigur Jónsson. Meðmælabréf sýslumanns til stiþtamtmanns: Hér innlögð sendist yðar hável- borin heitum allra undirgefnust umsókn í tveimur eintökum frá bóndanum Ófeigi Jónssyni að Heið arbæ í Árnessýslu, þar sem hann sækir um, að honum allra mildi- legast megi veitast hæfileg laun eða sæmd fyrir það framtak tjl almenningsheilla, sem hann hef ur sýnt með því að smiða nálega fimmhundruð góða spunarokka og hlýt virðingarfyllzt að taka ábyrgð á því, að allt, sem umsækjandinn ber fram í umsókninni, er full- kominn sannleikur. Um hans áigætu sómaafrek má enn goba þess, að hann hefur bætt og setið vel ábýlisjörð sína, sem hann tók vlð í niðurfallsástandi, en hún er opinber eign, Þingvallarkirkju- jörð, og er þetta því fremur launa vert sem slíkit er lieldur sjaldgæit >um lelguliða. Hann hefur með iðni og heppni stundað refaveiðar, sem T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 53

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.