Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Blaðsíða 20
Loki bundinn, mynd af skeiðum sverðs- Ins, sem fannst í grennd við Uppsali í Sví)>ióð. Sverðið er frá sjöundu öld. Gamlar goðsagnir herma, að Loki hafi verið fjötraður með þörmum sonar síns. Hann iiggur á þrem hellum og yfir hon. um hangir naðra, sem lætur eitur drjúpa i andlit honum. á stjaka, ásamt húðinni og fótun- um, svo sem sumir þjóðflokkar í Asíu hafa tíðkað til skamms tíma. Blótin hafa verið á fastsettum tímum árs, og þangað hefur án efa komið múgur og margmenni. Þar hefur verið etið og drukkið dög- um saman, og mun mega hafa það f.vrir satt, enda stutt rökum, að framhald þessara fórnarhátíða hafi seinna orðið markaðir, sem tíðkuð- ust til skamnvs tíma, líkt og al- menningsskemmtanirnar á Bakkan um norðan við Kaupmannahöfn eru síðustu leifar marVp^pr sem þar var lengi haldlnn i námunda við helga lind. Og kannski hefur það efcki allt borið ýkjamikinn helgikeim. er fram fór á þessum gömlu helgistöðum að blótum O'g fórnum afloknum. Saxi segir svo frá, að farnaldarkempan Starkaður hafi farið í reiði úr blóti í Upp- sölum, er honum þóttu úr hófi ganga tilbutðir trúða og apakattarlæti. Og hver veit nema þefcta hafi á sinn hátt við eitthvað að styðjast? í Vimose fannst til dæmis lítil tréskurðarmynd a£ manni, sem beygir sig svo aftur á bak, að hnakkinn nemur við ilj- ar. Það hefði Starkaði eða hans Iíkum að siðavendni sjálfsagt þólt óviðurkvæmilegir tilburðir á helg- um stað. Þegar fram í sóttj hefur dreg- ið mjög úr fórnunum. Um 600 hef- ur verið liætt að fleygja voonum í dý og vötn, víðast á Norðurlönd- um. í Hávamálum er líka varað við óhóflegum blótum: Betra er óbeðið en sé ofblótið, æ sér gjöf til gildis. Betra er ósent. en sé ofsóað. Svo Þundur of reist fyrr þjóða rök þars upp of reis, er aftur of kom. Lýsing Edduívæða á bardögum Ása kann að eiga sér stoð í at- burðum, sem raunverulsga hafa gerzt: Trúarskiptum eða kannski öllu fremur einhvers konar siðbót — kannski reikningsskii.um við gamla goðastétt, sem orðin hefur verið frek í álögura sínum. Viktor Rydberg taldi líklegast, að sá, sem ósigur hefði beðið, hefði verið Loki, þá fyrrum virtur guð, en gerður að skálki, sem settur var í bönd. Fornfræðinga órar fyrir einhverjum siðaskiptum, sem ekki birtast í því einu, að hætt er að mestu að færa guðunum vopn að gjöf, heldur verður graffé einnig mun knappara en áður. Samtímis þessu koma til sögunnar fyrstu myndirnar af Óðni á Sleipni átt- fættum og Loka bundnum. Auðvitað tók ekki alveg fyrir það, að menn gæfu guðunum vopn. Slíkt gerðist allt fram á víkingaöld — jafnvel fram á miðaldir. Got- land hefur sérstöðn, því að þar hefur fundizt mikið rnagn vopna, sem fórnað heufr verið á víkinga- öld, og í Lapplandi, sem eiginlega Fimleikamaðurinn — tréskurðarmynd, sem fannst I Vimose á Fjónl. tókst aldrei að kristna, hélzt þessi siður langt fram á miðaldir. Þótt menn hættu að fleygja her- fangi í vötn og fen, guðunum til vegsemdar, voru vopnin að sjálf- sögðu ekki látin fylgja föllnum hermönnum í grafirnar, þegar val- urinn var ruddur. Hreyknir sigur- vegarar hirtu þau handa sjálfum sér, og þegar fram liðu stundir, var taia hringabrynjanna. sem dregnar voru af búkum dauðra fjandmanna, höfð til marks um það, hversu frækilegur sigur var, líkt og tala var síðar höfð á fall- byssunum, sem teknar voru af ó- vinunum til þess að grobba af í frásögum og varpa ljóma á her- foringja. Þeir sem senda Sunnu dagsblaðinu efni til birHngar, eru vinsam- lega beðnir að vanda til handrita eftir föng- um og helzt að láta vél- rita þau, ef kostur er. Ekki má þó vélrita þéttar en í aðra hverja línu. 68 TÍMINN — SUNNUÐAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.