Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Side 11

Tíminn Sunnudagsblað - 24.01.1971, Side 11
 Hugi Hraunfjörð: Vísur að vestan. Hvítar öldur hvissa glatt við Rif og hvata sinni göngu upp á land. Brimi sollið, bólgið löðurdrif brotnar þó við mjúkan fjörusand. í djúpi hafsins dulinn kraftur býr. Þó dætur Ránar kveði fagran óð, Ægis reiði enginn maður flýr, sem út á hafið sækir, börnin góð. Sólbjartur lögur seiðir hug og hönd. Hérna á Rifi situr enginn kyr, hvar þráin stöðugt eygir ókunn lönd og ævintýrin bíða nú sem fyrr. Það hefur margur sótt á sundin blá, og sækir enn á miðin forn og ný. Á vígðum reit og votri gröf má sjá varla nokkurn mun, en gleymum því. Við skulum taka bát á bóli hér og bruna fram á þennan glæsta fjörð. Þó drýgð sé synd, ei deila um það ber, því dauðinn einn má halda um lífið vörð. Við skulum róa, renna færi í sjó og Rán og Ægi lofa hátt og snjallt. Það skiptir minnstu máli samt, og þó að maður lifi, förin, hún er allt. Knýjum árar — kríuger við sýn. Kannski að hérna lóða væri bezt. Ó, hafsins gull, ó, gróðavonin mín! Ég gríp þig, vina, hvar sem til þín sést. hans, Vigfúsar á Reykjum, veittur matur og brennivín, sarnt vín. Ég giaka á, að það mætti reiknast 6 rd. og verða þá með framtöldu 10 ríkisdalir 77 skildingar. Þetta óska ég, að rnætti verða mér útlagt af eftirlátnum munum þess fram- liðna. Görðum þann 22. febr. 1844. Á. Helgason. Líkræðuna nefnir séra Árni ekki í þessum reikninigi. En það er vegna þess, að Vigfús Magnús- son, mágur Vernharðs. hefur greitt ræðuna sitrax á útfarardeg- in-um. Síðar var lagður fram reikn- ingur í dánarbúið fyrir hana. Dánarbúið eða lausafjármunirn- ir eftir Vernharð voru skrifaðir upp og síðan seldir á opinberu uppboði Enga peninga átti hann utan fjóra ríkisbankadali. Af lif- andi pening átti hann eitt hross, sem hann hefur notað til ferða- laga. íveruhúsið keypti Jón bóndi Hjartarson á Óttarsstöðum á sex- tán rd. Af smíðatólum átti Vern- harður mikið, sem einungis voru trésmíðaverkfæri. Þar á meðal var rennibekkur vandaður. Þá voru eftir hann átta rokkar nýsmíðaðir, sex af þeim voru málaðir og var hver virtur á þrjá rbd., en þeir ómáluðu á tvo rbd. stk. — Af fatnaði var Vernharður vel byrg- ur. Hann átti meðal annars „bláa vaðmálstreyju og tauvesti“ og „dökka skarlatstreyju og vesti af sama efni“, er verið hafa spariföt. Dánarbúið hljóp á 158 rbd. og 81 skild., en úitistandandi skuldir og útfararkostnaður nam 109 rbd. 59 s>kild. Komu því til skipta 41 rbd. 42 skild., er móðir Vernharðs og systkini erfðu. Hér skulu að síðustu birtir þrír skuldreikningar á dánarbúið. Reikningur Ólafs hreppstjóra í Hausastaðakoti. „Skuldakrafa í dánai-bú Vern- harðs Ófeigssonar, er deyði á Ótt- arsstöðum, af mér undirskrifuð- um: 1. Fyrir að sækja lífcið þangað eftir bón hlutaðeiagnda. 1.) Betal- inigur til 4ra manna og skipslán 1. rbd. 64 skild. 2. Eftir hlutaðeiganda ósk fyr- ir fyrirhöfn mína að flytja þess burtdána eignir á axionsstaðinn á skipi með 6 mönnum í bjargræð- istíð 2 rbd. 32 skild. Tii samans 4 ríkisbankadalir. Hausastaðaikoti þann 30. maí 30. may.844. Ólafur Erlendsson. Reikningur Jóns „Hjörtssonar“: Lóðartollur fyrir íveruhús á lóð minni 4rbd. Fyrir aðhlynning og þjónustu á þeim burtdána í sjúkdómi hans um 8 vikur 4 rbd. Fyrir veturgamla kind, er dótt- ir mín, Rannveig, lánaði honum næstliðið haust 3 rbd. Samtals 11 rbd. Óttarsstöðum 28. maí 1844. Jón Hjörtsson. Og þá er að síðustu reikningur Guðrúnar Jónsdóttur í Reykjavík: Fyrir mína þjónustu og aðhjúkir- un ýmsa, sem ég í þau fjögur ár, sem Vernharður sál. var til veru í Einars pósts Einarssonar bæ í Þingholtum Fil hönum í té, hefi ég ennþá ekki fengið neitt í launa- skyni, en jöfn loforð af Vernharði sál., að ég skyldi fá hjá hönum uppborið það, sem siðvanalega gef- ið kvað hér vera í bænum, nefni- lega 4a rbd um árið, og verða það þá 16 rbd, sem ég óska að skipta- ráðandinn hr. sýslumaður Th. Guð- mundsson við skipti á þessu dán- arbúi útleggi mér. Reykjavík 14. febrúar 1844. Guðrún Jónsdóttir. Ekki er nú með neinni vissu vitað, hver þessi Guðrún Jónsdótt- Framhald á 70. síðu. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 59

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.