Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 5
lands, og var það þó ekki til fulls ti'vr en flugvélin hafði lent. Hvers vegna skyldu menn ekki hugsa tll þess stundum, sem við tekur að aflokinni þeirri ferð, sem enginn kemst hjá að fara? Að minnsta kosti verður mér hugsað til sliks, þegar ég nú minnlst þess, er þau Gerða, Þorsteinn og synir þeirra tóku á móti okkur á flug- velli Oslóarborgar. Var það líkt og ég get hugsað mér móttökur á annarri jörð, hlýrri og sólríkri, því að ekki var veðrið þarna lakara en það hafði verið heima, þegar við fórum þaðan. Og eitt var það, sem ég lærði þarna að skilja bet- ui' .en áður. Vegna þess, hve löng- un mín varð nú rík til þess að gefa þeim. sem heima sátu. ein- livern þátt í því.að sjá og njóta þess. sem ég nú sjálfur sá og naut, skildi ég, hversu sterk iöngun framiifendanna geti verið til þess að gefa eftirlifendum þátt í hinu nýja lifi sínu og'skynjunum. Hygg ég, að mörgum þeirra þyki það vera allmikið mein að geta slíkt ekki, og mun þeirn ekki sízt finn- ast svo. sem horfið hafa til hinna betri staða. En því skyldi slikt þó ekki geta orðið? Hvers vegna skyldi ekki einnig þar geta orðið aukning og fullkoninun sambanda. eins og þegar hafa orðið hér á jörðu á milli landa og heimsálfa? Það, sem ég fyrst veitti athygli á leið okkar frá flugvellinum til stúdentabústaðanna. sem vera skvldi nú heimkynni okkar um hríð. var gróðurinn og grjótið, og kann einhverjum að þykja það skrítið. En byggingar og önnur mannvirki slík vekja mér sjaldan mikinn áhuga, nema því aðeins, að um einhver sögutengsl sé þar að ræða. Og varðandi gróðurinn og griótið var einkum tvennt, sem ég tók þarna eftir. Á vesturströnd- inni og víðar hafði ég þegar séð niður á hið ljóslitaða granítberg, sem er aðalbyggingarefni lands- ins. En hér í borginni risu sums staðar upp dökkir eða nálega svart ir bergkambar, sem hlutu að vera annarrar tegundar. Berg þelta var einnig umturnað og brotið, og var mér síðar sagt, að það væri set- lagaberg, 600 milljóna ára gamalt, frá því að sjór hefði legið þarna yfir, og að það hefði skriðið til síðan og sporðreist ýmislega. En hvar gróðurinn snerti vakti það fyrst furðu mína hve nægjusam- ur hann virtist vera. Yfirleitt virt- ist mér jarðvegur vera grynnri í Noregi en hann er víða bér á landi, og hafði ég því einhvern tíma orð á því í gamni, að íslendingar gætu selt mold þangað austur yfir haf. En grjótið og þá einkum þetta dökka berg virtist gera jafnvel meira en að bæta upp moldarleys ið, því að víða var svo að sjá, að tré og annar gróður yxi út úr tyí. Vafasamt þykir mér, að x írir staðir Oslóborgar séu viðfeldnari en stúdentahverfið, þar sem við nú bjuggum, og er það ekki sízt vegna þess, að það er í útjaðri. Eru húsin þar strjál og sums stað- að nokkurt brattlendi, jafnvel klettaklungur, sem víðast hvar er þó meira og minna hulið trjá- gróðri, svo að mörg hús eru þarna nálega í kafi. Er þarna vitanlega um margs konar trjágróður að ræða, svo sem epla- og perutré, auk barrtrjáa. reyniviða og vmissa tegunda annarra. En þó fannst mér björkin bera þarna af öllu, og er mikill munur á henni og birk- inu íslenzka. Þó er eitt, sem björk- ina þarna skortir á við það' TJmur- inn af henni er ekki nærri eins sterkur og af íslenzka birkinu, og er svo reyndar um margan annan gróður. Þannig ilmar blóðbergið norska miklu miður en hið ís- lenzka. En hokkru stórvaxnara mun það vera, eins og líka beiti- berjalyngið, sortulyngið og beiti- lyngið, sem ég sá allmikið af í skóginum skanimt frá stúdenta- bænum, og fórum við stundum þangað á berjamó, ásamt þeim Gaut og Steina. sex og fjögra ára. Ekki veit ég, hve gömul Oslóar- borg er, en allmiklu eldri mun hún vera en hin íslenzka höfuð- borg, Reykjavík. Og þó að ýmsir aðrir staðir kæmu meira við norska sögu og íslenzka fram eftir öldum, þá gefur þar að líta ýmis- legt gamalt og sögulegt, og það líklega fremur en á nokkrum stað öðrum í Noregi. Þannig hefur þar á einn stað, Byggðey, sem þó er ekki eyja, verið komið fyrir ýms- um gömlum byggingum, sem reistar höfðu verið i fyrstu á ýms- um öðrum stöðum. Má þar til nefna hinar sérkennilegu stafkirkj ur, sem gerðar eru af timbri og þó margra alda gamlar, og minn- ir sumt í skreytingu þeirra meira á heiðni en kristni. Ennfremur gef- ur þarna að líta íbúðir fólks frá ýmsum tímum, ásamt tilheyrandi búshlutum, og var þar víst ekki sízt um að ræða íbúðir sumra kunnra manna. Þannig sá ég þarna vinnustofu Hinriks Ibsens, og log- aði þar ljós á lampa þeim, sem lýsti honum við ritstörf hans, og var þetta nú að vísu rafljós í stað olíuljóss, þótt ekki virtist svo fljótt á litið. Á einhverjum stað þarna hefur verið byggt yfir skipið Fram, sem Friðþjófur Nansen fór á áleið- is til norðurskautsins og síðar bar Róald Ámundsen til suðurskauts- ins, og var þar til sýnis margt það, sem þessir frægu afreks- menn notuðu í ferðum sínum. og að sjálfsögðu iivað á sínum stað. Og ekki skyldi gleyma Gauksstaða- skipinu. sem á enn öðrurh stað þarna getur að ljta. en skip það held ég. að sé meira en 1100 ára gamalt. og þó að taisverðu leyti heilt. en að vísu ekki sjófært. Það var eins og fyrr segir þann 16. ágúst, að við koinum til Osló- ar, og hafði veðrið jafnan verið hið fegursta síðan. Stundum kom þó rigning. svo að um munaði. Þannig man ég þarna eftirrdembu meiri en ég áður hafði kynnzt. Rann vatnið þá eftir götunum eins og árstraumur, sem þó varaði að- eins um stund. því að ekki var þetta nema skúr. Og nú voru tíu dagar liðnir þarna við hvíld og þó marga skemmtilega tilbreytingu, og runninn upp hinn 26. ágúst, en þann dag var ákveðið að taka sig upp í nýtt feröalag. Var ferð þess- ari, sem nú skvldi farin á landi og með járnbrautarlest. heitið til Niðaróss (Þrándheims), og fór ég hana í fylgd með Þorsteini Guð- jónssyni. Lá leiðin fyrst nokkuö til austurs. en síðan norður um Heiðmörk, Upplönd og Guðbrands- dal, og er land þetta að vísu ásótt, en þó í heild sinni mikið til flatt. Eru þarna víða miklir skógar, en sums staðar akrar og fögur byggð. í Guðbrandsdal, sem mér virtist vera ekki sízt fjöl- byggður, liggur stærsta stöðuvatn Noregs, Mjösen, og fellur úr því Lögurinn. Er vatn þetta geysi- langt, svo að skipta mun tugum kílómetra ekki allfá- um, en breiddin er jnis- jöfn og hvergi ýkjamikil. Upp af Guðbrandsdal, sem er þröngur innst, taka við heiðalönd vaxin víði og birki, sem er lágvax- ið og kræklótt eins og íslenzka birkið. Vex það þar í allt að þús- und metra hæð, og ályktaði ég það af hæðamerkjum, sem sjá mátti T ! M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 317

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.