Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 9
ekki tllheyrði hann smáþjóð, eins og Norðmenn nú eru, og þó ís- lendingar ennþá fremur, og ekki bera það lengur með sér, að sum- ir Norðmenn og þó einkum íslend- ingar munu hafa gert á tíundu öld, eins og líka ýmsir Rómverjar á dögum Sesars. Gat ég þess til, að maður þessi væri Englending- ur og afkomandi norrænna vík- inga, því að þótt hið enska ríki sé ekki lengur neitt Rómaveldi, þá kynni þó þar hjá sumu fólki eitthvað að eima eftir af því, sem var fyrir hinar tvær Evrópustyrj- aldir aldarinnar. Og þegar við svo komuin í klefa þann, sem nafni minn hafði útvegað okkur, þá hitt- ist svo skrítilega á, að maður þessi var þar fyrir, og varð hann því klefafélagi okkar alla leið. Kom- umst við þá að því, að hann var, eins og ég hafði getið til, Englend- ingur, og var á margan hátt gam- an að kynnast honum. En merki- legast við hann var það, sem ástæða er til að setja í samband við áhrif útlits hans, að hann var samkvæmt sjálfs hans frásögu gæddur hugboða- eða spágáfu, en sú gáfa er það nú einmitt, sem svo mjög þyrfti á þjóðernislegu sjálfstrausti að halda. Eða hver ætli saga hinna fornhebreksu spá- manna hefði orðið, ef slíkt sjálfs- traust hefði þar ekki verið til staðar? Eins og vikið var að í upphafi þessa þáttar, þá var það naumast, að ég tímdi að fara þessa Nor- egsferð. Var ég því, stuttu áður en ég lagði af stað, að ákveða það með sjálfum mér að eyða ekki lengri tíma í hana en svo sem tveimur vikum, og sýnir það ætt- lerahátt minn, því að ekki hefði Egill og aðrir forfeður fyrir níu til tíu öldum hugsað þannig. En þegar af stað var komið, mun þessi smábóndahyggja og tveggja vikna ákvörðun hafa fokið út í veður og vind. Og þegar loks kom að þeim degi, sem við ákváðum að halda aftur heimleiðis eftir sex vikna dvöl í Noregi og einum degi betur, þá var ég jafnvei tregur til að koma mér af stað. Hefði ég þá vel getað hugsað mér að dveljast þarna vetrarlangt eða lengur, og má af því ráða, hversu ég undi mér. En þó kann þarna að auki nokkuð annað hafa komið til greina. — Ég hef stundum reynt það, hve afturdrægar vanrækslu- syndir eru, eða að hafa á vitund- inni það, að hafa á einhvem hátt leift af getu minni. Og hér var nokkuð, sem mér fannst ég hafa vanrækt og þar af leiðandi ekki fært mér þessa dvöl í nyt eins og mátt hefði. Ég hafði vanrækt það nálega alveg að verða norsktal- andi, og var þarna því ámóta ómálga við burtförina og þegar ég kom. En þrátt fyrir þetta skildi þó ferðin eftir hjá mér það, sem hér hefur þegar verið rakin og meira til, og skal nú enn víkja að einhverju slíku fremur en hinu, sem ekki varð. Fyrst eftir heimkomuna að norð an hafði ég fremur hægt um mig í Osló. íslendingur, sem langdvöl- um hafði verið 1 Noregi, sagði mér, eftir að ég kom heim, að fólki væri gjarnt til að kvefast, sem ferðazt hefði þá leið, sem við nafnar hefðum nú farið, og taldi hann orsökina vera ólíkt loftslag austan fjalls og vestan. Og þetta er nú einmitt það, sem mér reyndist. Eftir að suður kom, var ég nokkra daga slæmur af kvefi, þó að ekki væri það neitt alvar- lega, enda fór ég nú stundum að taka mér alllangar göngur um suma hluta borgarinnar og út fyr- ir liana stundum. Fór ég jafnvel að festa nokkra tryggð við suma staði og götur, sem ég heimsótti nærri daglega. Man ég bezt eftir Sognvegi, sem við bjuggum við og liggur frá suðri til norðurs, Norð- bergsvegi, skemmtilegri götu vegna fjölbreytts landslags, og lá hún í austur, og Bröttuhlíðum, sem ekki var síður fjölbreytileg vegna bratta síns og hálfgerðs klungurs. Fyrir neðan þá götu var allvíðáttumikil, grasivaxin slétta, og sat ég þar stundum, því að hvarvetna á slíkum stöðum eru bekkir til að sitja á. Norðvestur af heimkynni okkar og talsverðan spöl utan við borgina man ég sérstaklega eftir bjarka- lundi einum, sem heillaði mig. Voru það nokkrar bjarkir í þyrp- ingu, háar og beinvaxnar, sem báru laufgreinar sínar uppi af mik illi tign. Fannst mér alltaf, þegar ég horfði á þennan bjarkalund, að ég væri þar að horfa á draumsýn, sem einhvern tíma hefði borið fyr- ir mig áður, og er ekki heldur óhugsandi, að svo hafi raunveru- lega verið. Einhver Norðmaður, sem verið hefði að virða fyrir sér þennan lund einhvern sumarmorg- un, getur vel hafa orðið mér draumgjafi, meðan ég svaf mina síðnæturblund heima á íslandi, og þykir mér þó hitt líklegra, að daumsýn mín hafi verið lengra að komin, þó að bjarkalundur þessi minnti mig á hana. Og ein var sú hæð í norðaustri, nokkuð langt frá heimkynni mínu, sem ég horfði gjarnan til, þegar sól fór til vesturs, því að hún roðnaði þá stundum svo fagurlega. En þó var það ekki nema í eitt skipti, að ég gekk þangað alla leið, • og skrifaði ég þá þetta í dagbók mína: „Eg sit hér á brattri brekku- brún móti austri. En þar fyrir neð- an mig í nokkuð kröppum dal Maríudal, eru nokkur stórhýsi. Gegnt mér blasir við brött hlíð móti vestri, og rís hún allmiklu hærra en brekkubrúnin, þar sem ég sit. í hlíð þessari sé ég mörg hús, og eru sum stór, en þar fyr- ir ofan er skógur, ýmist dökk- grænt barr eða haustbleik lauftré. Efst er trjágróðurinn strjáll. Suð- vestast er hlíð þessi mjög brött og blasa þar við hamrar, og' eru þó sums staðar byggingar og trjágróð ur. Þar fyrir neðan í dalbotninum sé ég bleika akra og slegin tún. TJpp af hlíð þessari er hæðarkoll- ur, lítt byggður, en þó sé ég ali- mikið stórhýsi eitt bera þar við loft efst uppi, og veit ég ekki, hvers konar hús það er. Ekki sé ég þaðan, sem ég sit, neinn veg liggja upp á hæð þessa. Og nú kemur til mín lítil stúlka, þangað sem ég sit, og horfir á mig dálít- ið forvitnislega. Hún fer ekki, og loks yrðir hún eitthvað á mig, og verður þó lítið úr samtali. Ég segi henni, að ég eigi heima mjög langt í burtu — að ég sé íslendingur og kunni illa að tala norsku. Loks kveð ég hana og sný heimleiðis.“ Einhvers staðar mun Jón bisk- up Vídalín komsta þannig að orði, að maðurinn sé hið ypparlegasta alls á jörðinni, og er það í sam- ræmi við, að mest augnayndi alls þess, sem fyrir mig bar í Osló, svo sem reyndar annars staðar, var æskan og bernskan. Tímum sam- an rápaði ég þar um götur, mest til þess að virða fyrir mér ungu stúlkurnar og þó ekki síður bernskufa, því að þar er fegurð- in allra ferskust og bendir bezt tii þess, sem verða mætti. Hygg ég, að listamaðurinn, Bertel Thor- valdsen, hafi verið flestum eða öll- Framhald á 334. síðu. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 321

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.