Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 11.04.1971, Blaðsíða 10
Hinn 19. febrúar síðastliðlnn andaðist í Reykjavík Þorgeir Sveinbjarnarson skáld, sextíu og fimm ára að aldri. Þorgeir var Borgfirðingur að uppruna, íþróttakennari að mennt og stundaði kennslu í þeirri grein að Laugum í Þingeyjarsýslu í hálfan annan áratug. Árið 1945 gerðist hann forstjóri Sundhall- arinnar í Reykjavík og gegndi því starfi til æviloka. — Þorgeir mun hafa fengizt við skáldskap frá æskuárum, en tók ekki að Vísur Bergþóru eru ekki með neinum byrjandabrag. Hér kvaddi sér hljóðs skáld sem hafði þroskað ijóðgáfu sína til hlítar í kyrrþey. Bókin sýnir býsna gott vald höfundar á listrænni tækni í meðferð máls. Hún vakti ekki sízt at- hygli vegna ljóðformsins sem er nokkuð sérkennilegt, því að þar mætast hefðbundinn bragur og frjálsleg nýstefna. Menn þóttust eygja hér æskilegan meðalveg, Aí Hfa steiainn leggja markvissa rækt við hann fyrr en eftir lát konu sinnar, Bergþóru Davíðsdóttur, árið 1952. Fyrstu Ijóðabók sína nefndi hann einmitt Vísur Berg- þóru, og kom hún út 1955, þeg- ar skáldið stóð á fimmtugu. Tíu árum síðar kom önnur ljóðabók frá hendi Þorgeirs, Vísur um drauminn. Skömmu fyrir andlát sitt hafði hann gengið frá handriti þriðju bókarinnar sem nefnist Vísur jarðarinnar, og kemur hún væntanlega út á þessu ári. Þá verður fyrst unnt að leggja fullt mat á framlag Þorgeirs Sveinbjarnarsonar til íslenzkrar ljóðlistar. En bækur hans tvær leiða í ljós að hann var á ýmsa lund merkilegt og sérstætt skáld sem verðskuldar fyllstu athýgli. Vart er að efa að Vísur jarðarinnar n7 uni stað- festa þá hiðurstöðu, og er fagn- aðarefni áð skáldinu skyldi auðnast að leggja á þær síðustu hönd. og slíkt viðhorf féll í góðan jarðveg um þær mundir: sama ár og bók Þorgeirs birtist kom Kvæðabók Hannesar Pétursson- ar, og þar var farin áþekk leið í ljóðformi. Af Vísum Bergþóru er ljóst að hefðin á sterk ítök í Þorgeiri sem vænta má af aldri hans. En bókin hefði varla sætt tíðind um ef hann færði sér ekki í nyt þá^möguleika sem felast í frjáls- um stíl yngri skálda. Ljóðið er ekki skorðað föstu rími og brag- línulengd, með hvort tveggja er frjálslega farið en ljóðstafasetn- ingu hvarvetna beitt. Mestu skiptir vitanlega að Þorgeir Sveinbjarnarson er einkar per- sónulegt skáld í Vísum Berg- þóru, hefur náð tökum á þeim áslætti máls sem ekki er af hljómborði neins annars: Hún býr hérna skófin. Hún kjáir við klettinn og karpar við mosann. Okkar skógur er fjalldrapinn, skakkur af því að skjóta herðum í rosann. Af þessu dæmi sést hve nátt- úran er Þorgeiri eðlileg og nær- tæk viðmiðun. Segja má að bækur hans séu samfellt nátt- úruljóð. Þangað er sótt kveikja ljóðmáls og líkinga: af landinu, sveitinni með víða sýn til hafs og heiða tekur skáldið jafnan mið. Þorgeir beitir því stíl- bragði flestum skáldum meira að persónugera náttúru og um- hverfi. í ofanskráðu dæmi skýt- ur fjalldrapinn herðum í ros- ann. Nýstárleg tengsl hugmynda og ferska meðferð máls er víða að finna í bókum Þorgeirs. Þær eru vitnisburður um frumlega sýn til umhverfis og jafnframt um það hve innilegt getur orð- ið sambýli manns og lands. Víða í Vísum Bergþóru er hlýleg kímni, kaldhæðni bregð- ur varla fyrir. Kímni skáldsins birtist helzt í fimlegri málnotk- un sem nefnt var: hnyttin með- ferð vanabundinna orðtaka verður einatt kímileg og kemur lesandanum á óvart. Tök skálds- ins eru í senn frjálsleg, hófsöm og örugg: Vorið sínum laufsprota á ljórann ber. Ég fer á fund við ástina í fylgd með þér og er aldrei síðan með sjálfum mér. Þrátt fyrir glettnislegt yfir- bragð í Vísum Bergþóru er und- irtónn ljóðanna af streng harms og trega. Hér yrkir maður sem hefur setið í myrkri, þolað von- 322 ItMlNN SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.